Harmonikublaðið - 01.12.2009, Page 5

Harmonikublaðið - 01.12.2009, Page 5
varð til þess að hann var okkur innan handar varðandi heið- ursgesti á mótið en þar mættu Tatu Kantomaa og Daniel Isak- son. Þetta mót var einnig sér- stakt að því leyti að þarna voru líka þeir íslensku harmoniku- leikarar sem voru í fremstu röð á þeim tíma, þeir Bragi Hlíð- berg, Grettir Björnsson og Reynir Jónasson. Rétt er að það komi hér fram að þetta voru fyrstu kynni Tatu Kant- omaa af íslandi og þau kynni urðu svo til þess að hann kom hingað til landsins og dvaldi hér í nokkur ár sem ég tel að hafi komið harmonikuleik og harmonikutónlist að ómældu gagni. Hvernigsérð þú fyrirþérfram- tíðina varðandi harmoniku- leikara og harmonikutónlist? Það Iftur vel út með þá ungu harmonikuleikara sem eru að alast upp í tónlistarskólum vfðsvegar um landið en mér er Ijóst að marga árganga vantar inn ífélögin og þvíljóst að um nokkurt kynslóðabil er að ræða og sömuleiðis einnig breyttar áherslur i tónlistar- vali. Mér sýnist að danstónlist sé á undanhaldi en unga fólkið spili frekar klassíska tónlist, þá frekartil hlustunar. Nú veit ég að þú hefur einnig verið að fást við vísnagerð. Já ég hef aðeins brugðið því fyrir mig og því rétt að enda viðtalið á einni vísu. Harmonikan hrífursál hrindir burtu kvíða. Hennar töfra tóna mál tendrargleði víða. Jónas Þór Jóhannsson Kartöfluvalsinn í kartöfluvalsi ég kemst í stuð því kartöflur fjörga vel lund. Þó kartöfluræktun sé rammasta puð hún réttlætir glaðværa stund. í fjörugum dansi með faðmlög heit ogfyrirheit guleða blá ég kartöflum sái í sælunnar reit og syng um þær lengi ef má. Ef skyrbjúgur kvelur þá kann ég góð ráð sem kunnáttumaður upp fann, svo leiðistu ekki lægra í bráð læknirinn segirvið mann; þú kartöflur borðar hvern dýrðlegan dag og dansar af lipurð og þrá, með kartöflum heilsa þín kemst brátt í lag svo kemstu fljótt sporið þitt á. Já, kartöflur bjarga og styrkja strax þær styðja og efla þinn mátt. Þú heilbrigði finnur og forðast allt baks og færð með því andlega sátt. Ef færðu þér kartöflu fyrir dans þú finnur hve létt verða spor. í kartöfluvalsinum kemstu til manns og kyndir upp huga og þor. Hreinn Halldórsson Sumarmót í Fannahlíð 7. - 9. ágúst m Útileguhelgin gekk hreint ótrúlega vel, glæsileg mæting og góð stemming. Gestir voru á þriðja hundraðið og var fjölmennasta útileguhelgin til þessa. Þarna var slegið saman útileguhelgi og 30 ára afmæli Félags Harmonikuunnenda Vesturlands. Hátíðin hófst á föstudegi og þegar gestir voru búnirað koma sér vel fyrir á tjaldstæð- inu, var slegið upp dansleik um kvöldið sem stóð yfir í þrjá tfma. Þar spiluðu fyrir dansi hljómsveit H.U.V., síðan steig sín fyrstu spor ný hljómsveit sem heitir Bjórbandið sem undirritaður stofnaði í fyrra, svo kom Sveinn Sigurjónsson og sló lokapunktinn á föstu- dagskvöldið. Hver hljómsveit spilaði í klukkutíma. Á laugardeginum voru haldnir tónleikar og bauð harmonikufélagið upp á kaffi og meðlæti í tilefni af 30 ára afmæli sínu. Átónleikunum flutti Ingrid Hlíðberg leikþátt, Bragi Hlíðbergspilaði nokkurlög, einnig spiluðu Sigríður Hjördís Indriða- dóttir, Rut Berg Guðmundsdóttir og unnusti hennar Daníel Jóhannsson. Einnig lagði okkur lið Óðinn Helgason og Helgi Krist- jánsson ásamt harmonikuhljómsveit Sel- foss. Um kvöldið var svo dansleikur þar sem Harmonikuunnendur Vesturlands spiluðu ásamt Harmonikufélagi Rangæinga og Harmonikufélagi Selfoss. Það var aðdáunar- vert hvað gestir voru duglegir að dansa, það var fullt gólf bæði kvöldin á meðan dansleikirnir stóðu yfir. Égvil þakka öllum f harmonikufjölskyldunni fyrir gott harmonikuár og hlakka til að sjá og hitta fjölskylduna á næsta ári. Með góðri kveðju til allra. G. Helgi Jensson 5

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.