Harmonikublaðið - 01.12.2009, Side 11
Gísli Sigurbergur Gíslason
f. 30.07.1939 d. 25.06.2009
Vinur okkar og félagi Gísli Sigurbergur
Gíslason andaðist á Fjórdungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað 25. júní síðastliðinn eftir
erfið veikindi.
Gísli Beggi eins og hann var alltaf kall-
aður var einn af stofnendum Félags harm-
onikuunnenda í Norðfirði og starfaði óslitið
með félaginu nánast til dauðadags ásamt
því að sitja í stjórn félagsins til margra
ára.
Gísli Beggi var traustur félagi, alltaf
kátur og hress og missti nánast aldrei af
æfingu nema þegar hann þurfti að bregða
sér í burtu frá Neskaupstað en hér kunni
hann best við sig og var aldrei lengi í
burtu.
Hann var mjög músikalskur, hafði
gaman af allri tónlist og á sínum yngri árum
spilaði hann á trompet í Lúðrasveit Nes-
kaupstaðarogvar þareinn af stofnfélögum
þegar lúðrasveitin var stofnuð árið 1954.
En harmonikan var aldrei langt undan
og naut hann þess að spila á hana og var
alla tíð virkur í félaginu og spilaði með í
harmonikuhljómsveitinni okkar.
En hann var nákvæmur ogvildi gera allt
vet sem hann tók að sér og til þess þurfti
að æfa. Á slaginu kl. 20 hvert mánudags-
kvöld var hann mættur með hljóðfærið sitt
á æfingu, alltaf vel undirbúinn og tilbúinn
aðtakastá við alltsem stjórnandinn lagði
fyrir hópinn.
Viðfélagarhans ÍF.H.U.N. eigum margar
góðar minningar um Gísla Begga frá
æfingum, ferðum sem við fórum í saman
á landsmót og ekki má heldur gleyma
ferðum okkar til Færeyja. Hann var alltaf
hrókur alls fagnaðar en tók hlutverk sitt
samt mjög alvarlega.
Félag harmonikuunnenda í Norðfirði var
stofnað 1. maí 1980 og undanfarin mörg ár
hefur það verið fastur liður hjá félaginu að
spila við 1. maí hátíðahöldin í Neskaup-
stað. Að spilamennsku lokinni drekkum
við félagarnir svo saman afmæliskaffi og
höldum þannig upp á afmæli félags okkar
ásamt því að taka þátt í hátíðahöldum
dagsins.
Svona var það einnig þetta árið og að
lokinni spilamennsku settumst við niður
drukkum afmæliskaffið og röbbuðum
saman. En þennan dagvarokkuröllum Ijóst
að Gísli Beggi var mikið veikur en hann
lauk því sem hann hafði byrjað á og gerði
það með heiðri og sóma eins og hans var
von og vísa.
En daginn eftir, 2. maí, þegarvið héldum
upp á Dag Harmonikunnar fengum við boð
um að Gísli væri mikið veikur og gæti ekki
verið með okkur. Við héldum samt okkar
striki þennan dag þó erfitt væri vitandi hvað
væri að gerast enda hefði það ekki verið
í anda Gísla Begga að fara að slá eitthvað
af sem búið var að ákveða.
r \
Með þessum fátæklegu orðum viljum
við félagar Gísla Begga votta honum virð-
ingu okkar og þakka honum fyrir allar
ánægjulegu samverustundirnar.
Gísli var jarðsunginn frá Norðfjarðar-
kirkju 2. júlí og á undan athöfninni spil-
uðum við félagar hans nokkur lög í kirkj-
unni honum til heiðurs.
Guðrúnu og fjölskyldu vottum við okkar
innilegustu samúð.
Félagar í Félagi
harmonikuunnenda Norðfirði
Eftirminnilegir tónleikar
í Hömrum
Það var mikill viðburður ísögu Harmoniku-
félags Vestfjarða ervið fengum íheimsókn
dagana 1.-3. júní sl. stórkostlega harmo-
nikuhljómsveitfrá Bæjaralandi. Þessi þýsku
ungmenni heilluðu troðfullan saltónleika-
gesta gjörsamlega með sínum frábæra
tónlistarflutningi á tónleikum í Hömrum 2.
júní.
Efnisskráin var fjölbreytt, allt frá Brand-
enborgarkonsert j.S.Bach og Blue Tango
LeroyAndersonstilAconcagua, Astor Piaz-
zolla. Sérlega hrífandi var útsetning og
flutningur íslenska þjóðsöngsins. Einleik-
arinn, Konstantín Ischenko, margverð-
launaður snillingur, hreif viðstadda með
stórkostlegum flutningi erfiðra verka.
Ég vil sérstaklega þakka Guðmundi Samú-
elssyni að sýna okkur þann heiður að koma
með þessa stórkostlegu listamenn hingað
vestur.
ÁsgeirS. Sigurðsson
11