Harmonikublaðið - 01.12.2009, Síða 13

Harmonikublaðið - 01.12.2009, Síða 13
 „Gileyrargengid" íTálknafirBi „Gileyrargengið" F.v.: Torfi Andrésson, Hannes Bjarnason, BenediktG. Benediktsson og Eggert Björnsson ÁGileyri íTálknafirði hittast fjórir félagar á miðvikudögum til að spila saman á harmo- niku. Að sögn húsráðanda á Gileyri, Torfa Andréssonar, má mikið ganga á til að þessir spilatímar falli niður. Auk Torfa kemur Hannes Bjarnason úrTálknafirði, frá Bíldu- dal kemur Benedikt G. Benediktsson og Eggert Björnsson frá Patreksfirði. Allir spila þeir á pfanóharmonikur og æfingarnar eru miðaðarvið það. Þarfyrirutan eiga þeir Eggert og Benedikt ein- faldar hnappa- harmonikur sem þeirhafastundum meðogspilafyrir hina. Sá hængur er þó á þessu að þeir geta ekki spilað saman, því þessar einföldu diatoniskuharmo- nikur eru bara stilltar í eina tón- tegund. Þarna er önnur stillt í G og hin í E, svo sam- spil er útilokað. Þessar harmo- nikur komu tals- vert hingað til lands með norskum hvalveiðimönnum. Á Vestfjörðum voru margar hvalveiðistöðvar starfandi í loki9. aldarogfram á þá 20. Þar af ein á Suðureyri íTálknafirði. En aftur að samspilinu. Þeir hafa hist þarna í um tvö ár, en áður höfðu Hannes og Benedikt hist af og til og spilað saman á Bíldudal. Það er Eggert sem hefur komið með nótur og spólur fyrir æfingarnar, en þær fékk hann hjá Karli Jónatanssyni, sem hann hitti í Hveragerði. Hann segir þá hafa spjallað saman eina kvöldstund og Karl sendi honum svo ein fimm tög á spólu og jafnframt nóturnar með fingrasetningu, en Eggert segir hana nú fara svolítið tvist og bast hjá þeim. Það er misjafnt hvort félag- arnir nota nóturnareða spólurnaren niður- staðan er sú að þeir æfa þessi lög, sem hluta af prógrammi kvöldsins. Þetta ferfram íhinu besta bróðerni og allir hafa þeir mikla skemmtun af þessu. Það er mætt á staðinn um áttaleytið og strax tekið til við æfingarnar. Fyrri hluti kvöldsins fer yfirleitt í skipulegaræfingará þeim lögum sem eru á dagskrá hverju sinni. Svo er kaffi og spjallað um heima og geima, t.d. um harmonikutónlist! Svo er tekið til aftur, þá oft spilað af fingrum fram eða ef þörf er talin á farið betur yfir æfingarnar. Lögin frá Karli Jónatans eru í röddum og það er næst á dagskrá að fara að skoða þær betur. Eggert segir það hafa skipt miklu máli að hafa fengið þessa aðstoð og útsetning- arnar frá honum og þeir félagar senda Karli kveðju og þakkir með þessum línum. Þeirtelja fulla ástæðu til þess að halda æfingunum áfram, því fyrir nokkrum ára- tugum voru fjölmargir sem spiluðu á harm- oniku á þessum slóðum en þeim hefur farið mjög fækkandi. Þvf sé engin ástæða til ann- ars en æfa áfram. Þrír félaganna eru með- limir í Harmonikufélagi Vestfjarða, en þar sem starfsemi þess erað mestu bundin við ísafjarðarsvæðið þá ná þeir ekki að starfa með félaginu að æfingum. Þær skiptast reyndar í hópa á norðursvæðinu líka, því Dýrfirðingar æfa sérstakan hóp og ísfirð- ingar annan. Eftilvillmun Gileyrarhópurinn seinna færa út kvíarnar ogfá fleiri til liðs við hópinn en engin ákvörðun liggurfyrirum það. Eins og er una þeir glaðir við sitt og segjast allir hafa mjög gaman af þvf að hittast og glíma við músikverkefnin. Sömuleiðis liggur ekk- ertfyrir um tónleikahald á næstunni.en hver veit? Það vantar alltaf atriði á þorrablótin og núna er einmitt rýmilegur tími til að æfa fyrir þorrann. Gaman væri að heyra af fleiri óformlegum hópum harmonikuspilara. Þeir finnast nefnilega víða og eru þýðingarmikill þáttur í músiklífi þjóðarinnar. Pétur Bjarnason Benni og Eddi með einföldu harmonikurnar. Það erþó mikil einfeldni að halda að þeir geti spilað saman á þær, en uppstillingin er fyrir blaðið 13

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.