Harmonikublaðið - 01.12.2009, Page 18

Harmonikublaðið - 01.12.2009, Page 18
Cellini Luttbeg Fágætt eintak \ safni Ásgeirs S. Sigurðssonar Á liðnum árum höfum við Ásgeir S. Sig- urðsson á ísafirði haft með okkursamstarf um að leita að áhugaverðum harmonikum á ýmsum erlendum vefsvæðum, einkum þó á uppboðsvefnum Ebay. Ég hef látiðÁsgeir vita ef ég hef rekist á merkilegar harmonikur og síðan boðið í þær fyrir hann og oft hreppt þær þó stundum hafi það ekki tekist, enda margir um boðið í víðum netheimi. Eins hefurhann ofthringtefhann hefurrekistá harmonikur. Þannig höfum við sameiginlega náð að kaupa hátt á annan tug hljóðfæra, mörg þeirra dýrmæt og má þar nefna m.a. Magdeborgarspil, einstaka díatóniska harmoniku frá nftjándu öld, sem fékkst á þokkalegu verði á sfnum tíma. Rétt fyrir síðustu áramót hringdi ég í Ásgeirogsagði honum frá merkilegum grip, harmoniku sem merkt var Cellini Luttbeg, sem væri með píanóborð bæði í diskant og bassa. Ásgeir varð að sjálfsögðu óður og uppvægur enda safnari af guðs náð. Ég bauð svo íharmonikuna fyrir hann og náði að verða hæstbjóðandi en boðið náði ekki lágmarksverði og því dugði þetta ekki til. Eftir samninga við seljandann náðist þó saman að lokum ogÁsgeir fékk þennan grip í safnið. Þar réði miklu góðvild seljandans, því hann er sölumaður í hjáverkum en seg- ist vera áhugamaður um að ná í góða gripi ogkoma þeim ívarðveislu. Þvíleisthonum velá að koma harmonikunni á safn þarsem henni yrði sýnd tilhlýðileg virðing. Hann heitir Travis Joles og fyrirtæki hans heitir Mintvintagetoys í Montana USA. Netið hefur fjarlægt flest landamæri og auðveldað við- skipti milli fjarlægra staða. Að sögn Travis voru tvö söfn önnur sem vildu fá harmonik- una, en hann taldi sig skuldbundinn af bréfaskiptum okkar og stóð við sitt, þrátt fyrir nokkrar tafir vegna erfiðleika á yfir- færslu peninga sem tókst þó að yfirstíga. Með þessum ágæta grip fylgdu síðan ýmsar upplýsingar, meðal annars umsókn um einkaleyfi frá árinu 1931 á framleiðslu slíkra hljóðfæra. Umsóknin er dagsett 29. september 1929 og er númer 1.825.407. Framleiddarvoru 12 harmonikurafþessari gerð, en höfundur þeirra hét Max Luttbeg. Max þessi var reyndar þekktur glfmukappi á yngri árum sínum og vann meistaratitil í New York borg skv. frétt í New YorkTimes, 4. okt. 1889. Seljandinn hefur það eftir barnabarni Max, Ron Reichard, sem er sjálfur tónlistarmaður, að af þessum tólf harmonikum sé aðeins vitað um sjö á söfnum víðs vegar en þessi tiltekna harmonika hafi verið sú fyrsta í röð- inni, handsmíðuð (prótotýpa) ogsú sem Max Luttbeg notaði sjálfur. Þessa sér stað á grillinu, að sögn Ásgeirs, þar sem sjá má að munstrið hefur ekki gengið nákvæmlega upp samkvæmtteikningu á grillinu, sem er handsmíðað. Næstu ellefu undir þessu vörumerki voru svo fram- leiddar í kjölfarið á þessari. Aftur var skrásett einkaleyfi árið 1933 á endurbættri útgáfu á harm- oniku af þessari gerð og þriðja einkaleyfið skráð af Max Luttbeg árið 1940, þar sem um erað ræða harmoniku með hefðbundið bassaborð en að því er virðist nýja upp- röðun á tónstokkunum. Cellini var harmonikuframleiðandi á þessum tfma í USA og líldegt er að Max Luttbeg hafi samið fyrst við það fyrirtæki um framleiðsluna og þá hafi heitið orðið Cellini - Luttbeg. Þó hefur Ifka fundist ein- taksömu gerðar sem er merkt Bertini - Lutt- beg. Fyrrnefnt barnabarn harmonikusmiðs- ins segir að réttindin hafi svo verið seld til Soprani og þá varð til heitið Soprani - Lutt- beg. í auglýsingu ÍThe Music Trade Rewiew frá árinu 1932 eru öll þessi nöfn auglýst sameiginlega, hvert hjá sínum seljanda f Chicago ogNewYork, þ.e. Cellini - Luttbeg, Soprani - LuttbegogBertini - Luttbeg. Þar er m.a. auglýst: „Hin nýja Luttbeg tækni, þar sem píanóborð kemur ístað gamaldags bassaborðs". Gæði hins nýja verkfæris eru lofuð í hástert: „Hundrað prósent píanó- borð fyrir bassa jafnt sem diskant. Engir truflandi hnappar...Leikið á þetta hljóðfæri nákvæmlega eins og píanó.“ Pfanóleikurum ertilkynntað þeir muni innan tveggja vikna geta náð fullum tökum á hljóðfærinu og leikið á það engu síður en á píanóið. Hins vegar sýnist, þrátt fyrir þessi fögru fyrirheit, að þetta sérstæða hljóðfæri hafi ekki náð almennum vinsældum og því fyrir- finnst það það hvergi f dag, nema sem safn- gripur. Það erýmislegtá hutdu um hvernig eðaá hverra vegum þessartólffyrstu harm- onikur voru framleiddar. Þærvoru þó hinar fyrstu þessarar tegundar og harmonikan sem hingað er komin var í einkaeign höf- undarins og sérstök í tónlistarsögunni. Hún hefur þvf ómetanlegt söfnunargildi. Þessi saga og hljóðfærið minnir reyndar svolítið áTónalfn, íslensku harmonikuna sem áður hefur verið getið um í Harmonikublaðinu, þó það ævintýri hafi ekki komist jafnlangt og þetta virðist hafa gert. Þegar harmonikan komst í hendur Ásgeirs sá töluvert á henni, einkum grillinu, sem var illa farið, en hann tók hana til með- ferðar á verkstæði sínu og í sumar var hún til sýnis á safninu í Neðstakaupstað þar sem Ásgeir situr við harmonikuviðgerðir í þeirri deild sem er helguð harmonikusafni hans og viðgerðarverkstæði sem því fylgir. Með þessu greinarkorni er ekki gerð til- raun til að gera sögu þessarar harmoniku skil, heldur fyrst og fremst að vekja athygli á þvíað hún er komin hingað til lands. Það væri hins vegar skemmtilegt viðfangsefni að kanna þetta efni betur. í þróun harmo- nikunnar hafa ýmis nýmæli verið reynd og þau hafa reynst misvel. Best virðist hafa gefist að fylgja hefðunum ogstefna heldur að endurbótum á tóngæðum og mekanisma hefðbundinna hljóðfæra fremur en byltingar- kenndum breytingum. Harmonikusafnið í Sjóminjasafninu í Neðstakaupstað ogÁsgeirað störfum þar, hefur vakið mikla athygli erlendra ferða- manna, en þeir koma þarna hundruðum saman af erlendum skemmtiferðaskipum. Margir hafa skoðað og myndað þessa sér- stæðu harmoniku sérstaklega, enda á hún heiðurssess í safninu. Með tilkomu þessarar harmoniku í ein- stakt safn Ásgeirs aukast enn rökfyrir því að heimsækja hann á ísafjörð og skoða safnið. Pétur Bjarnason 18

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.