Harmonikublaðið - 01.05.2010, Page 3

Harmonikublaðið - 01.05.2010, Page 3
Frá ábyrgdarmanni ( . 'N Harmonikublaðið ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaður: Gunnar Kvaran, Álfaland 7,108 Reykjavík Sími 568 3670, netfang: alf7@mi.is Prentvinnsla: Héraðsprent, Egilsstöðum, www.heradsprent.is Netfang: print@heradsprent.is Forsíðumynd: Keppendurá Harmonikumeistaranum 2010. Meðal efnis: - Erindi haldið að Núpi ÍDýrafirði - Tilkynning um haustfund SÍHU - Að standa eða sitja? - jörgen Sundeqvist - Guðmundur E. Jóhannsson - Minning - Róbert Nikuiásson - Sigurður Þorvaldsson • Minning - Vals fyrir Hreinsa e. Gunnar Kvaran - Harmonikumeistarinn 2010 - Þórir Jóhannsson ■ Kveðja frá HUH - Þegar amma var ung! - Saga harmonikunnar 1 - Pétur Bjarnason - Við ferjustaðinn Auglýsingaverð: Baksída 1/1 síöa kr. 23.000 1/2 sída kr. 15.000 Innsíður 1/1 síöa kr. 18.400 1/2 sída kr. 11.500 1/4 síða kr. 6.700 1/8 síða kr. 4.600 Smáauglýsingar kr. 2.500 Efni í næsta blað sem kemur út íseptember 2010, þarfað berastfyrir miðjan ágúst20io. V_________________________________________) Heil og sæl öllsömul! Nú hefst með útgáfu þessa blaðs annað árið sem undirritaður sér um útgáfu blaðsins, ásamt góðum félögum úrstjórn sambandsins. Síðasta ár var skemmtilegt hvað varðar blaðaúgáfuna og það var gaman að heyra frá þeim sem hafa tjáð sig um efni og útlit blaðsins, hvað þeir hafa verið jákvæðiroghvattokkurtildáða.Töluverð vinna hefur verið lögð í að yfirfara áskrift- arlista og taka út þá aðila sem fyrir ein- hverjar sakir hafa enn verið á skrá, þrátt fyrir að svo eigi ekki að vera. Innheimta áskriftargjalda er með besta móti og er það von okkarerað blaðinu stöndum að þannig verði það áfram. Einnig hefur stjórnin verið ötul við að gera allt til að lokka nýja áskrifendur að btaðinu og er það von okkar að aðildarfélögin og harmonikuunnendur almennt verði okkur hjálplegir við að afla nýrra áskrif- enda. Árið 2009 var lítilsháttar tekjuaf- gangur af útgáfu blaðsins og er það vel. Um efni þeirra blaða sem komu út á síð- asta ári má eflaust deila, en það er skoðun mfn að þærgreinarsem blaðinu bárust til birtingar hafi verið mjög góðar. Þeir sem hafa ritað þær hafi lagt sig fram um aðvandaveltilverksins.Við sem að útgáfunni stöndum viljum senda þessu ágæta fólki okkar bestu þakkir fyrir skjót viðbrögð, þegar tii þeirra var leitað um að skrifa í blaðið og er það von okkar að allir þeir sem eiga eitthvert efni til birt- ingar í næstu blöðum liggi ekki á því heldur sendi það til blaðsins. Eins vill undirritaður ítreka það við velunnara blaðsins að hafa augun opin fyrir fyrir- tækjum og einstaklingum sem sæju sér hag í því að auglýsa í Harmoniku- blaðinu. Nú er það öllum Ijóst er lesa þetta blað að búið er að ákveða dagsetningar þeirra sumarhátíða sem nokkur af aðildar- félögum S.Í.H.U. standa fyrir og verður eflaust fjölmennt á þessar hátíðar eins og undanfarin ár og tel ég því tímabært fyrir lesendur blaðsins að fara að undir- búa sig fyrir átök sumarsins. Að lokum vill ritstjórn þakka öllu þvígóða fólki sem hvatt hefur okkur til dáða, sent skemmtilegt og umfram altt fróðlegt efni til birtingar í Harmonikubiaðinu og þeim er hafa auglýst í blaðinu okkar. Gleðilegtsumar, Gunnar Kvaran 3

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.