Harmonikublaðið - 01.05.2010, Qupperneq 6

Harmonikublaðið - 01.05.2010, Qupperneq 6
 Að standa eða sitja? jörgen Sundeqvist veltir fyrir sér mikilvægum atriðum da: T4T íit'W í síðasta tölublaði velti hann Jörgen Sun- deqvist því fyrir sér hvort að harmoniku- leikarar ættu alltaf að vera síbrosandi á meðan þeir spiluðu á sviði. í þessari grein er hins vegar spurningin hvort að harm- onikuleikarar eiga að sitja eða standa þegar þeir spila. Það eru þó nokkrir sem halda því fram að ef maður geti ekki staðið á sviði og spilað þá hafi maður einfaldlega ekkert á sviðið að gera. Með öðrum orðum, þeir sem geta eitthvað standa en minni spámenn sitja. Þetta er samt nokkuð fast að orði kveðið. Sjálfsagt er fallegt að horfa á flutning þar sem tónlistarmaðurinn stendur og leikur af innlifun en við verðum samt að vera raunsæ. Hvort staðið er eða setið veltur að mestu á því hvaða tónlist er verið að leika og hvernig. Einnig spilar inní þetta hvers konar stórleik er um að ræða og ekki síst hversu þung harmonikan er. Nú kunna einhverjir að spyrja hvort að það eigi ekki bara alltaf að standa og skipta út þyngra hljóðfæri fyrir léttara. Það er nú hreinasta þvæla. Ákveðin tónlist krefst ákveðinna hljóðfæra, svo einfalt er það. Það er til dæmis ekki hægt að spila flókið konsert- stykki á tveggja kóra Bengts Junior harm- oniku bara af því maður ætlar að standa. Það gengur aldrei. Þegar á hólminn er komið fjallar þetta um tónlistina sem flutt er, hvorki meira né minna. Hún ein gildir og við skulum ekki gera lítið úr henni á kostnað leikrænna tilburða. Þá erum við fyrst alveg úti að aka. Það má samt ekki misskilja mig þannig að ég sé á móti leikrænum tilburðum í harm- onikuleik á sviði. Sé staðið á meðan maður spilar án þess að tónlistin gjaldi þess á nokkurn hátt þá er það svo sem í besta lagi. En ef maður er að spila verk sem útheimtir sérlega gott vald á hljóðfærinu, góða tjáningu og ein- beitingu er líklega vænlegra að sitja. Til dæmis þegar maður stendur og dregur belginn þá skerðist jafnvægið í hlutfalli við útþensluna og samtímis minnkar valdið sem maður hefur á hljóðfærinu, sér í lagi þegar spiluð eru hrifnæm lög eða laga- bútar. í þessu tilviki geta allir gert sér grein fyrir útkomunni, þetta gengur alls ekki upp. Hugsið ykkur alla þá harmonikuleikara sem hafa staðið og leikið danstónlist ár eftir ár. í samanburði við nútíma harmonikur eru hljóðfæri þeirra vissulega minni, léttari og þar af leiðandi meðfærilegri en margir hafa samt glfmt við afleiðingarnar sem eru oft- ast vandamál í baki og/eða hnakka. Ef til væri hópur tónlistarmanna sem ætti skilyrðislausan rétt á að sitja við listiðkun sína, þá væru það harmonikuleikarar. Við eins og aðrir viljum koma ívegfyrir heilsu- fjandsamlegt starfsumhverfi. Það má margt laga og bæta t.d. með því að aðlaga ólar hljóðfærisins, sitja rétt og nota rétt grip. Jafnframt sjá til þess að lengra sé í hægri ólinni en þeirri vinstri, þannig að nótnaborðið sé beint undir hök- unni. Þó ber að hafa f huga að stilla ólarnar þannig að hljóðfærið haldist sem næst líkamanum, og verði jafnvel eins og hluti af honum. Hljóðfærið má ekki hanga og danglast niður að hnjám. Sitið bein íbaki, vel fram á stólbrúnina samt þannig að þægilegt sé. Rétt grip er mjög mikilvægt og gætið þess sérstaklega að hægri höndin sé á réttum stað. Setjið oinbogann aðeins út og þá skal höndin vera bein á nótnaborð- inu. Gætið sérstaklega að þvf að bassaólin sé vel strekkt svo að vinstri hendin sé ekki laus þegar belgurinn er þaninn út og inn. Ef þið hugið að öllum þessum mildvægu atriðum er ég sannfærður um að spila- mennskan ykkar verður mun skemmtilegri og töluvert þægilegri. Birtmeð góðfúslegu leyfi Jörgen Sundeqvist ’/i cn vwmyimm ymKtamrf Harmonikuviðgerðir Tek að mér viðgerðir á harmonikum Gunnar Kvaran sími: 824-7610 6

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.