Harmonikublaðið - 01.05.2010, Qupperneq 7

Harmonikublaðið - 01.05.2010, Qupperneq 7
Gudmundur E. Jóhannsson - Minningarorð Fallinn er frá einn af stofnendum Félags harmonikuunnenda f Reykjavík, Guðmundur E. Jóhannsson. Félagið átti því láni að fagna frá upphafi, að meðal stofnfélaga var fólk eins og Guð- mundur. Hann gerði mun meiri kröfur til sjálfs sfn en félagsins. Hann var boðinn og búinn að leggja því lið, hvort heldurvar að hafa lyklavöld að æfingahúsnæði, sem þurfti að opna þegar hljómsveitin þurfti að æfa, eða sitja í miðasölunni á skemmtunum félagsins. Ef Guðmundur tók eitthvað að sér var óhætt að stóla á hann. Hann sá fljótlega um aðgöngumiðasölu á skemmt- unum félagsins og þar var ekkert hér um bil í uppgjörinu. Ef eitthvað vantaði upp á var skýringin sú að illa stóð á hjá ein- hverjum stuðningsmanni félagsins. Hann borgar það næst sagði Guðmundur. Og þannig gekk það til. Guðmundur gat verið neikvæðnin holdi klædd. Sérstaklega þegar bryddað var upp á nýjungum í starfinu. Þá sagði okkar maður: „Nei, það gengur aldrei“ogfann þessu allttil foráttu En með góðlátlegu spjalli, tókst honum fljótlega að sjá bjartari hliðar og varð þá einlægur stuðningsmaður. Hann tók engu sem gefnu, en hafði þó ætíð fyrirvara. Vinur hans til áratuga er Þórir Magnússon trommuleikari, sem nú saknarvinar ístað. Þeirvoru hinn óvenjulegi dúett FHUR. Guð- mundur sá um aksturinn, en Þórir um trommuleikinn. Á sumrum þegar útilegur félagsmanna hófust mættu þeir með tjald, en seinni árin með tjaldvagn. Þar leið tím- inn í stóiskri ró við hljóm tvöfaldrar harm- oniku Guðmundar, en undir burstaði Þórir trommuna. Ljúfar veigarvoru f armlengd og var þá glatt á hjalla. Guðmundur hafði ágætis tóneyra eins og svo margir í hans frændgarði. Hann var einn hina síðustu geirfugla til leika á tvöfalda harmoniku. Á 25 ára afmæli félagsins var Guðmundur sæmdur silfurmerki félagsins, viðurkenn- ingu sem hann hafði svo sannarlega unnið fyrir og bar með stolti. Hann var einlægur í sinni barnatrú og leitaði hiklaust styrks þar þegar á móti blés og Guðmundurátti ekki alltaf meðbyrað fagna í lífinu, en hann átti góða að, sem voru honum innan handarþegarþannigstóðá. Elísabet Meyvantsdóttir, góður félagi í FHUR, var ætíð tilbúin að leggja honum lið f Iffsbaráttunni, sem oft var Guðmundi óvægin. Enginn stóð þó beturvið bakið á honum en Þórir Magnússon, sem af óend- anlegri fórnfýsi aðstoðaði vin sinn sfðustu árin, þegar mest á reyndi. Sfðustu árin urðu Guðmundi mótdræg. Hann fékk slag fyrir fimm árum og var bundinn við hjólastól eftir það. Þrátt fyrir það létGuðmundursigekki vanta á skemmtanir félagsins. Síðast í janúar mætti hann á dansleik félagsins í Breiðfirðingabúð. Félagið sér á bak einum sinna tryggustu félaga, en minningin um hann lifir. Blessuð sé minningGuðmundar E. Jóhanns- sonar. F.h. Félags harmonikuunnenda ÍReykjavík, Fridjón Hallgrímsson Vatnslitir 21x30 sm Sigurður Indriðason Gary Blair Get málað fyrir þig VATNSLITA- og/eða OLÍUMYNDIR Einnig Teikningar alls konar Eða þarftu ef til vill að láta ðficaultlta á bækur til gjafa, kort, heiðurs- eða viðurkenningarskjöl osfrv, osfrv? Ólafur Th Ólafsson Lambhaga 26 800 Selfoss Símar 482 1659 / 864 4756 Netfang: oligyda@simnet.is Vatnslitir 21x30 sm Jawa 250 cc Vatnslitir 21x30 sm Eyðibær á Skaga Olía 60x70 sm Eyðibær í Skaftártungum.O Vatnslitir 21x30 sm Theodór Kristjánsson Olía 60x70 sm Vikingur frá Voðmúlastöðum 7

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.