Harmonikublaðið - 01.05.2010, Qupperneq 12

Harmonikublaðið - 01.05.2010, Qupperneq 12
Harmonikumeistarinn 2010 Stórmerkur dagur rann upp bjartur og fagur. Eldgos ogdrunur í Eyjafjallajökli voru víðs fjarri höfuðborgarsvæðinu, en spenna tók að magnast er stór stund nálgaðist kl. 14 suður í Garðabæ, þann 17. apríl síðastlið- inn. Ugglaust hefur örlað á óróa meðal væntanlegra keppenda rétt fyrir alvöruna þó svo hann hafi ekki komið fram á mælum. Samband íslenskra harmonikuunnenda með formanninn Jónas Þór Jóhannsson í fararbroddi kom sennilega flestum á óvart með því að standa fyrir keppni í harmoniku- leik. Með þeirri ákvörðun var brotið blað í sögu S.Í.H.U. enda ekki fordæmi fyrir slíku í sögu þess. Efeinhver efast um gagnsemi keppna innan harmonikugeiransersá hinn sami staddur á villigötum að mínu mati. Það er mikill áfangi þess er kennir á harmoniku að koma nemanda í slíka keppni, f því liggur óum- deilanlega mikill sigur. Nú voru liðin 11 ár frá því að F.H.U.R. hélt hæfileikakeppni í harmonikuleik og bar þann dag líka uppá 17. apríl en árið var 1999. SalurTónlistarskólans í Garðabæ var þétt skipaður áhorfendum, senan var skemmti- lega skreytt með harmonikum, flygill skól- ans fyrir miðju og merki landssambandsins. Áhorfendabekkirnir eru í halla eins og f kvikmyndahúsi, allir sjá því óþvingað yfir senuna. íslenskt vor var í nánd og farfugl- arnir farnir að streyma til landsins, og rétt áður en ég gekk í salinn heyrði ég heiðlóu syngja sitt dirrindí og stelkinn kvaka með sfnum hvellu hljóðum. Ekki amalegt áheyrnar fyrir keppnina. Landssambandið valdi Friðjón Hallgrfms- son framkvæmdastjóra fyrirsína hönd, og kynni. Aðrir með honum í undirbúnings- nefnd voru þeir Gunnar Kvaran og Val- mundurlngi Pálsson. Dómararfkeppninni voru þeir Bragi Hlfðberg, Einar Guðmunds- son, German Khlopin og Sigurður Alfons- son, allt valinkunnirtónlistarmenn. Keppt var f þremur aldursflokkum, 12 ára ogyngri, 13 -16 ára og 17 ára og eldri. Alls 13 kepp- endurvoru skráðirtil leiks víðsvegar að af landinu. Leika varð 1 skyldulag í hverjum flokki og svo annað verk að eigin vali. Flokkur 12 ára og yngri, keppendur voru eftirtaldir: Ingimar Jónsson 12 ára - Aukalag Oh, Sus- anna, kennari Reynir Jónasson Guðbjörg Viðja Antonsdóttir 11 ára - Auka- lagThe Big Parade, kennari Grétar Geirs- son Hjörtur Jarl Benediktsson 10 ára - Aukalag William Tell, kennariVadim Fjodorov Bergmann Óli Aðalsteinsson 12 ára - Auka- 12 lagWiggen polka, kennari Vadim Fjodorov Erla Ellertsdóttir 12 ára - Aukalag Svölu- polki, kennari Garðar Olgeirsson Bergþóra Björk Jónsdóttir 12 ára - Aukalag Rosa pá bal, kennari Gunnar Kvaran Matthías Valdimarsson 12 ára - Aukalag Ganglát frán Áppelbo, kennari Gunnar Kvaran Runólfur Bjarki Arnarsson 12 ára - Aukalag Pink panther, kennari Vadim Fjodorov Keppendur í yngsta flokknum voru nú kynntir á svið, þeirra skyldulag var My Bonnie, skoskt þjóðlag. Það var mjög gaman að heyra krakkana leika ýmsar kúnstir f þessu lagi, ekki síst útfærslur f bassanum, sem gerðu þetta sakleysislega lag svo áhugavert. Ungmennin voru flest pollróleg og sýnitega komin gegnum upp- lýsinga- og þekkingarheim góðra kennara. Allt gekk fumlaust fyrir sig meðal hinna 8 keppenda í þessum flokki. Öll lögin í sjálf- vali krakkanna voru létt og skemmtileg. Keppendur 13-16 ára voru þessir: Ásta Soffía Þorgeirsdóttir 15 ára - Aukalag Zardas, kennari Árni Sigurbjarnarson FlemmingViðar Valmundsson 15 ára - Auka- lag Love smiles, kennari GuðmundurSamú- elsson Nú var komið að miðhópnum að standa frammi fyrir alvörunni, en hann skipuðu einungis 2 þátttakendur. Nú kvað við annan tón, kunnáttan lyftist á hærri stall. Skyldu- lag var Fragrant flowers eftir Pietro Frosini. Maður fylltist stolti yfir getu ungmennanna oghugurinn hvarflaði tilfortfðar, efmaður sjálfur hefði nú fengið slíkan möguleika f námi á yngri árum? En hvað með það, mestu máli skiptir að möguleiki þeirra sem fara út á tónlistarbrautina f dag er kominn í það form að lenda f höndum sómasam- legra kennara, enda er árangurinn eftir því. Aukalögin voru í anda léttleikans og unun áheyrnar. Hvað er skemmtilegra en létt og upplífgandi harmonikutónlist. Síðastir á senu voru í flokk 17 ára og eldri: Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir 23 ára - AukalagRassypucha, kennariVadim Fjodo- rov Guðný Valborg Guðmundsdóttir 20 ára - Aukalag Jolly Cabalero, kennari Ingvi Vaclaw Alfreðsson JónasÁsgeirÁsgeirsson 17 ára - Aukalag Figaro úr Rak- aranum í Sevilla, kennari Guðmundur Samúelsson Enn steig tónlistarkunn- áttan til hærri stiga, skyldu- lag þessara keppenda var Babuschka eftir Alexander Siloti. Innri tilfinningar brutust fram, augun stóðu á stilkum og gæsahúð gerði vart við sig, öryggið ogtúlkunin íþessum erfiðu verkum var hreint aðdáun- arverð, ásamt belghristing og annarri fagmennsku. Fingrafimi í hljómborði og bassa hrein snilld og eitthvað að gerast sem er virkilega að skila sér út úr kennsl- unni sem er jú þegar hér er komið sögu orðin býsna löng. Við erum hér komin íferl- inu að ný kynslóð hefurtekið harmonikuna í sínar hendur, að mínu mati, mörgum er Bergþóra Björk jónsdóttir og Matthías Valdimarsson, keppendur fyngsta flokknum.

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.