Harmonikublaðið - 01.05.2010, Page 13
þar að þakka sem ekki verðurtíundað hér
að þessu sinni.
Úrsskurður dómnefndar, Harmonikumeist-
arinn 2010
Vinningshafi 12 ára og yngri varð Hjörtur
Jarl Benediktsson. Sigurvegari íflokk 13-16
ára varð Ásta Soffía Þorgeirsdóttir. í efsta
flokki 17 ára og eldri vann Helga Kristbjörg
Guðmundsdóttir. Verðlaun voru viðurkenn-
ingarskjal og áritaður skjöldur S.Í.H.U. Jafn-
framt skiptu þessi þrjú með sér 99.000 kr.
peningaverðlaunum.
Aliir þátttakendur keppninnar fengu afhent
viðurkenningarskjal. Verðlaunin afhenti
formaður landssambandsins Jónas Þór
Jóhannsson, hann þakkaði giæsilega stund,
þátttakendur hafi sýnt snilld og kennarar
unnið kraftaverk með kennslu sinni. Hann
þakkaði síðan undirbúningsnefndinni og
Idómnefnd sátu Bragi Hlíðberg, German Khlopin, Einar Guðmundsson og SigurðurAlfonsson.
Ásta Soffía Þorgeirsdóttir, sigurvegari íflokki 13 - 16 ára, ásamtjón-
asi Þór Jóhannssyni formanni SÍHU.
dómnefnd fyrirvel unnin störf.
Friðjón Hatlgrímsson fram-
kvæmdastjóri og kynnir kvað
sér hljóðs í lokin og sagði mik-
inn sigur unninn með þessari
keppni.
Styrktaraðilar keppninnar
voru eftirtaldir:
Aðalsteinn ísfjörð, Gunnar
Kvaran, hljómsveitin Vindbelg-
irnir, Jónas Þórjóhannsson og
Félag harmonikuunnenda í
Reykjavík.
Að lokum þetta. Þeirri spurn-
ingu skaut upp íhuga minn hvort gera eigi
þá kröfu í keppni sem þessari að þátttak-
endur hafi þá kunnáttu að geta sleppt nót-
unum? Á keppnisstað í Tónlistarskóla
Garðabæjarvarenginn hljóðnemi notaður,
hvorki fyrirkynni né keppendurogkom það
vel út, hljómburður var góður. Ekki var að
sjá nokkurn aðila frá sjónvarpsstöð þarna,
veit ekki um blaðamenn?
Ljósmyndari fyrir keppnina var Sigurður
Harðarson.
Hilmar Hjartarson
s.
Þórir Jóhannsson
Kveðja frá Harmonikuunnendum í Húnavatnssýslum H.U.H.
Nú erá húnvetnskum heiðum
harmur í fuglanna klið
fölvi á blómskrýddum breiðum
og blásvart um himinsins svið
sorgmæddur söngurinn fjalla
sólarlaus veröldin hvar
hvergi á höfði að halla
hugstæða gleðin sem var.
Nikkan í þokunni þegir
þó er hún vonglöð að sjá
er glaðbeitt með svipbrigðum segir:
„Sannleikann hlustið þið á:
Minningartónarnir tifa
og takturinn auðgar hvern fund;
þannig mun Þórir Jóh. lifa,
þeim sem að kynntust um stund.“
Einar Kolbeinsson