Harmonikublaðið - 01.05.2010, Síða 18
Við ferjustaðinn
Síðastliðið haust hringdi í mig sá mæti
maðurog harmonikuunnandi Haraldur Þór-
arinsson, öllu þekktari sem Mannsi í Kvist-
ási íKelduhverfi. Erindið varað kanna hvort
ég kannaðist við lagið Ölandsvalsinn. Ekki
get ég sagt að neinar bjöllur hafi hringt í
mfnum slitna kolli, en kvaðst mundi athuga
málið. Ástæðan fyrir þessu var, að hópur
áhugafólks um kveðskap dr. Sigurðar Þór-
arinssonar er að safna saman öllum kveð-
skap þessa merka jarðfræðings og skálds.
Síðar er jafnvel hugmynd að gefa það út á
hljómdiski, en við stærstan hluta Ijóða hans
eða texta eins og sumir munu kalla það,
hafa verið samin lögvið upphaflega erlend
Ijóð, að mestum hluta sænsk. Eftir stutta
athugun í nótnasafni mínu, sem telur
nokkur hundruð lög fannst ekkert, sem hét
Ölandsvalsinn. Við athugun á diska- og
plötusafninu varð sama niðurstaða. Nú voru
góð ráð dýr. Ekki hafði ég Ijóð Sigurðar við
höndina, ef lagið ræki á fjörur mfnar, en
varð hugsað til margra vina og kunningja í
Svíþjóð, sem gætu hlaupið undir bagga.
Fyrst var reynt við Lars Ek og Börje Farm.
Þeir höfðu hugmyndir um hvað kæmi til
greina, en bentu báðir á Nils Flacke. Eða
eins og Börje orðaði það: „Ef Nils veit þetta
ekki, geturðu trúlega hætt að leita“. Ég
sendi því tölvupóst á Nils. Þremur dögum
seinna, þann 14. september, barst svarið
frá Nils. Ölandsvalsinn væri eftirYngve
Stoor, saminn 1945 og Ole Johnny hafði
leikið hann inn á plötu stuttu seinna. Nils
kvaðst mundi senda nótur um hæl. Harla
gott.
Einn af þeim sem er þátttakandi í áður-
nefndri söfnun, er Páll Einarsson, jarðeðl-
isfræðingur og bassa- og setlóleikari. Þeir
Sigurður höfðu verið samstarfsmenn á
árunum 1975 til 1981 og Páli rann blóðið
til skyldunnar, enda mikill áhugamaður um
tónlist. Éghringdi þvííPálogsagði honum
tíðindin. Hann brást harla glaðurvið. Hann
sagði í leiðinni frá því að eitt Ijóða Sigurðar
hefði þessa handskrifuðu nóteringu,
„Ölandsvalsinn 1951“. Nú væru trúlega öll
lögin komin í leitirnar. Sfðan áframsendi
ég tölvupóstinn frá Nils. Stuttu síðartjáði
Páll mér að Ijóðið passaði engan veginn
við lagið. Hann væri búinn að reyna allt,
það gengi ekki upp. Við værum komnir í
öngstræti. En þegar neyðin er stærst er oft
hjálpin næst.
Samstarfsmaður Páls við Jarðvísinda-
stofnun Háskólans, Halldór Ólafsson, var
stuttu síðar staddur í vinnuferð austur við
Heklu. Hann kom við hjá vinafólki í Hólum
á Rangárvöllum, réttvið Hekluræturog þar
barst þetta meðal annars í tal, enda Sig-
urður heimagangur þar á árum áður. Þá
kom í Ijós að Ijóð Sigurðar hafði verið
sungið um árabil í Hólum, við lag sem gekk
undir nafninu Ölandsvalsinn. Heimilisfólkið
hafði hálfpartinn verið beðið fyrir Ijóðið
fyrir ártugum sfðan og þess vegna ekki
flíkað því, enda grandvart og heiðarlegt
fólk. Nú kviknaði vonarneisti. Næst var
komið að Páli að skunda austur og hripa
niðurlaglínuna. Þaðtókstvon bráðar. Páll
sendi mér nóturnar, sem ég áframsendi til
Nils. Þetta var í byrjun jólaföstu. Skyldi hann
kannast við þessa línu? Ekki stóð á svari.
Aðeins hálftíma síðar barst það. „Við ferju-
staðinn" var nafnið.
Viku sfðar bárust nóturnar í pósti. Lagið
hafði geymst svo vel í Hólum, að ekki skeik-
aði nema tveimur nótum. Nú leið ein vika
og þá barst með póstinum geisladiskur.
Nils hafði ekki gert það endasleppt. Á
disknum var „Við ferjustaðinn" í flutningi
Ove Köhlervið undirleikhljómsveitarundir
stjórn Anders Larssons. Anders Larsson
muna margir hér á tandi frá því hann kom
hér árið 1991, þá átján ára, ásamt þáverandi
unnustu sinni Anniku Anderson. Höfundur
Ijóðsins Karl Axel Karlfeldt, fæddist í Döl-
unum 1864. Karl Axel var virtur sænskur
rithöfundur, sem meðal annars vann sér
það til frægðar að vinna Nóbelsverðlaun í
bókmenntum 1918, en afþakkaði heiðurinn.
Honum voru síðan veitt þau 1931, stuttu
eftir lát hans. Lagið samdi sænski lútuleik-
arinn ogtrúbadorinn Sven Scholandersem
uppi var á árunum 1860 til 1934. Ljóðið „Við
ferjustaðinn", er hins vegar ort um ferju-
staðinn á Ölandi. Þar lá hundurinn grafinn.
Það sem er svo hlálegast í þessu er að
undirritaður er ekki læs á nótur. Það að fá
hann til að finna lag er því svipað og að
biðja blindan mann að leita nálar f hey-
stakki og hafa lopavettlinga á höndunum
við það.
Fridjón Hallgrímsson
(Alltafmeð á nótunum)
Verkstæði til alhliða viðgerða
á harmonikum að
Sóleyjarima 15, Reykjavík.
Hafið samband við Guðna
í síma 567 0046.
Harmonikuþj ónusta
Guðna
Útileguhelgi HUV
í Fannarhlíð
verður haldin dagana
9., 10. og 11. júlí 2010
Nú er hátíðin komin á réttu helgina.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Spilað, spjallað og dansað föstud. og laugard.
Upplýsingar: Jón Heiðar í síma 431-2038
Valdimar í síma 431-2396
Þórður í síma 431-1547
Harmonikukveðjur
Harmonikuunnendur Vesturlands
18
18