Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 13

Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 13
Fréttir af Harmonikufélagi Reykjavíkur Brædurnir Þorsteirw og Ouðni Þorsteinssynir H.R. hefur haldið Dag harmonik- unnar alveg síðan félagið var stofnað 1986. Undir stjórn Karls Jónatanssonar var Dagur harmonikunnar einu sinni í mánuði þangað til hin síð- ari ár, en þá hefur smá saman verið dregið úr þessum upp- ákomum og er hann nú haldinn tvisvar á ári. En hvað kemurtil að úr þessu hefurverið dregið, jú bæði er það að félagið hefur farið út á aðrar brautir og nefni ég hér dansleiki einu sinni f mánuði á sunnud. kl. 15-17 í Sjóminjasafn- inu sem eru að verða sífellt vin- sælli ogýmislegtfleirasern íboði er. Eftir að S.Í.H.U. fór af stað með Harm- onikudaginn höfum við í H.R. tengt þessa tvo daga saman en erum að skoða hvernig best væri að aftengja þá. 8. maí var haldin mikil harmonikuveisla í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar spiluðu tvær sveitir félagsins Léttsveit og Hljómur, þrjú ungmenni spiluðu einleik þau Helga Rún Jóhannsdóttir, Gunnhildur Vilhjálmsdóttir og Hjörtur Jarl Benediktsson en Hjörtur er nýkjörinn íslandsmeistari íharmonikuleik í sínum aldursflokki. Síðan spiluðu bræð- urnir Guðni á harmoniku og Steini á sög nokkurlögvið mikla hrifningu viðstaddra, síðan var samspil beggja sveit- anna. Stjórnandi Léttsveitar er Einar Friðgeir Björnsson. Stjórnandi Hljóms er Sigurður Alfonsson. Húsfyllir var í Ráðhúsinu og skemmti fólk sér greinilega mjög vel. Um síðustu áramót gengu til liðs við H.R. félagar úr Harmoniku- félaginu Hljómi og væntum við okkurgóðsaf þeim félagsskap þar sem inn kemur að stórum hluta mun yngra fólk. Má segja að með- alaldurfélagsmanna hafi lækkað sem um munar. Vonast ég til að þarna komi inn kraftmikið fólkog það verði ágætis blanda við okkur hin sem fyrir erum og búum yfir ómetanlegri reynslu, til gamans má geta þess að flest þetta fólk, eldra og yngra, er fyrrum nemendur Karls Jónatanssonar. GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR Form. Harmonikufélags Reykjavíkur Tónleikar Hávard Svendsrud í Árnesi Félag harmonikuunnenda f Reykjavíkhefur nú, ísíðustu þrjú affjórum skiptum, gert sér dagamun á hátíðinni Nú erlag í Árnesi um verslunarmannahelgina. í árvarsérstakur gestur hátfðarinnar norski harmonikuleikarinn Hávard Svendsrud. Hávard hefur á sfðustu árum getið sér gott orð fyrir vandaða túlkun á hinum ýmsu tegundum tónlistar og þátttakendur í Árnesi fengu gott sýnishorn af því. Hann hóf tónleikana á tveimur lögum eftir Pietro Frosini, Jolly Cabalero og Fancy twister. Þau virkuðu sem ágætis upphitun. Svo tóku við franski Domi valsinn, ftalskur konsert polki, saminn fyrir pfanó af Sergei Rachmaninov í útsetn- ingu Yashkevich, glæsilegt verk og jafnvel einn af hápunktum tónleikanna. Þá var komið að ítölskum tangó eftir einn frægasta harmonikuleikara ítala, Wolmer Beltrami og þvífylgdi prelódía úr Holberg svítunni eftir Edvard Grieg. Þegar þarna var komið höfðu áheyrendur skynjað, að þarna fórengin venjulegur harmonikuleikari. Frábærtúlkandi, með framúrskarandi tækni. Næst var komið að vinsælasta valsi Norðmanna, Fagre Stryn, eftir Per Bolstad og í kjölfarið Vals Var- ieté eftir Egil Hauge. Tvö frábær stykki. Þar næst fór Hávard í smiðju Thoralf Tollefsen. Renndi í gegn um Accordeon Impromptu ogTömmerhuggar dansinn. Nú tóku við franski Le Petite valsinn í útsetningu Hávards og síðan gamli slagarinn Esterellita eftir Emanuel Ponche, f glæsilegri útsetningu Charles Magnante. Pietro’s return, eftir Pietro Deiro var þar næst leikinn af mikilli sannfæringu. Þá tókvið bráðskemmtilegur ítalskur marsúrki I due Cardelline eftir Nino Moretto og sfðan sérlega fallegur norskur vals eftir Egil Hauge, Eins og smjör ísólskini, þar sem hver hljómaröðin af annari bráðnaði saman við þá næstu. Nú var komið að lokaverki tónleikanna, La Campanella eftir Paganini. Útsetningin er geysilega krefjandi og þar reynir á alla kosti hljóðfæra- leikarans til hins ýtrasta. Ekki brást Hávard f þessu frekar en öðru. Áheyrendur sátu agndofa. Þeir höfðu orðið vitni að hreinum galdri. Hávard skilaði þessu með miklum glæsibrag og hlaut langt og mikið klapp fyrir. Svo langt að ekki varð undan því skot- ist að leika aukalag. Fyrir valinu varð norskur vals eftir Harald Henchien og eftir uppklapp skaut Júpiterinn gneistum í Spitfire eftirToralfTollefsen.Tónleikunum var lokið. Það má segja að ÍHávard Svendsrud sameinist allt það besta. Frábærtækni, ósvikin spilagleði, frábær túlkun, en síðast en ekki síst, úthugsað lagaval, þar sem leitað var fanga um vfða veröld. Hávard gerði meira en að leika á tónleikunum. Þegar kom að dansleikjunum um kvöldið var hann kominn á svið, fullur af spila- gleði, ásamt þeim Helga E. Kristjánssyni, Hreini Vilhjálmssyni og Þóri Magnússyni. Ekki var að heyra að þessir fjórir væru að leika saman í fyrsta skipti. Allur var leikur þeirra fágaður og takturinn geirnegldur undir öruggri stjórn Norðmannsins. Friðjón Hallgrímsson 13

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.