Harmonikublaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 21

Harmonikublaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 21
Sumarhátíd Harmonikufélags H.F.H. Stórsveit Færeyinga Sumarhátíd Harmonikufélags Héraðsbúa var haldin í Brúarási um verslunarmannahelgina. Dansleikur á föstudagskvöld, skemmti- dagskrá á laugardag og dansleikur um kvöldið. Stæði fyrir húsbíla og tjaldvagna var í Svartaskógi og strætóferðir á milli. Tuttugumanna hópur frá Harmonikufélagi Færeyja var í heimsókn hjá Félagi harmonikuunnenda á Norðfirði og komu þeir í Brúarás ogspiluðu í skemmtidagskrá á laugardaginn ogá dansleiknum um kvöldið ogvargerðurgóður rómur að þeirra framlagi og þökkum viðíH.F.H. þeim kærlegafyrir. Einnigkom fram söngtríóið „Beintfrá býli“ogsöngnokkurgömuloggóð danslögvið góðar undirtektir. Þetta var frumraun þeirra á sviði. Söngkonur tríósins eru Drífa og Sigurrós Sigurðardætur og Sigurveig Stefánsdóttir, undirleikarar eru Sigurður Gylfi á harmoniku, Pálmi Stefánsson á gítar og Steinar Atli Hlynsson á bassa, öll úr sömu fjölskyldu. Vonandi fáum við að heyra íþeim oftar. Þar komu einnig fram Aðalsteinn ísfjörð og Einar Guðmundsson sem við þekkjum vel og klikka aldrei Þar kom einnig fram Guttormur Sigfússon með tækifærisvísur eftir ýmsa höfunda. Arndís Þorvaldsdóttir ogÁslaug Sigurgestsdóttir fluttu vísur eftir Pál Ólafsson bæði lesnar og kveðnar. Sumarhátfð H.F.H. var vel sótt og aðstandendur ánægðir með hvað vel tókst til. Framkoma gesta vartil fyrirmyndar eins og æfinlega. F.h. H.F.H. Jón Sigfússon Blómarósir flytja kvæði Daladætur Þrír Færeyingar að spila Einar og Alli (ekki færeyskir) að spila 21

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.