Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 22

Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 22
Sumarferd Harmonikufélags Þingeyinga 13.-15. ágúst 2010 Föstudaginn 13. ágúst fóru 45 félagar og gestir Harmonikufélagsins árla morguns af stað í sína árlegu sumarferð. Lagt var af stað frá Húsavík kl. 8:30 og ekið um Aðal- dal, Reykjadal og Fljótsheiði og teknir far- þegar á ýmsum stöðum. Hljóðfærin voru tekin á Breiðumýri, þar sem við höfum góða geymslu. Einnigvoru farþegar teknir f Ljósa- vatnsskarði, Fnjóskadal og svo Akureyri og ekki dugði þaðalvegþvíAðalsteinn ísfjörð og Unnur kona hans komu í rútuna íVarma- hlíð frá Sauðárkrók, þar sem þau búa. Var nú fullmannað og vel mannað, því þó nokkrir hagyrðingar leynast í hópnum ásamt bílstjóranum FriðrikSteingrímssyni ogvar mikið ort alla leiðina okkur öllum til mikillar ánægju. í Varmahlíð rigndi. Þar stakk formaður upp á að stansa og fá sér að éta. Gjaldkeri sagði þá að enginn fengi að éta, þvf menn snæddu. í Varmahlíð er veðrið blautt víst má nærri geta að ýmsum þykir ósköp snautt ef ekki má þar éta... Fía ÍVarmahlíð fengu sumirsér lambasteikog fullyrti Þorgrímur að hann gæti fundið á bragðinu að bitinn hansværi afgrákollóttri gimbur. Kjöt á borð var borið fljótt sem bót í sultartíðinni, það var gimbur grá kollótt sem gekk í Blönduhlíðinni... Friðrik Skemmtileg stund við Leifsbúð. Oft verður munur á matnum og heyinu hver máltíð er einhvers dauði. Meðan þeir kjömsuðu á Grákollu greyinu ég gleypti f mig pylsu með brauði.. Davíð Þá erað nefna harmonikuspilarana ásamt undirleikurum og voru þeir oft með hljóð- færin á lofti, þar sem stoppað var. Eftir venjuleg sjoppustopp var stefnan tekinn á Búðardai, þarsem viðáttum stefnumótvið Nikkólínufélaga, sem er harmonikufélag Dalamanna. Hittum við þau í þvífallega húsi Leifsbúð sem stendurvið höfnina ogvoru þau að spila úti í afskaplega góðu veðri fyrir brúðhjón sem héldu veislu í húsinu. Þarna var spilað og sungið í töluverðan tíma og var það mjög ánægjulegt á að hlýða. Svo var tekið kaffihlé og aftur spilað um stund. Allt sem fara ætti dult er nú tandið kringum. í brúðkaupinu birtist fullt af brjáluðum Þingeyingum. Friðrik Þá var stefnan tekin í Bjarkarlund þar sem við gistum tvær nætur og áttum góðan tíma. Eftir kvöldmat fóru sumir félaganna og settu upp hljóðfærin og röðuðu upp stólum og borðum í íþróttahúsinu á Reykhólum, þar sem við héldum svo ball kvöldið eftir. Þeir flýttu sér svo mikið af stað að þeir skildu migogfleiri eftir, á meðan égathugaði með húsvörð til að opna fyrir okkur. En þeir leystu þetta samt með prýði. Síðan var spilað og spjallað um kvöldið fram á nótt. Skemmtiferðir Á laugardagsmorguninn skiptist hópurinn í tvennt og fór annar hlutinn í siglingu út í Skáleyjar en hinn f skoðunarferð til Hólma- víkur að kynna sér Galdrasafnið og hrúta- þukl í Sævangi. Átti að byrja á að fara í Galdrasafnið og sögðu sumir þar drauga á sveimi. Á leiðinni yfir Arnkötludal var þoka, svo ekkert sást, varla milli stika. Guðrún Benediktsdóttir (Gauja) talaði mikið um drauga. Gauja er nú engu lík oftað spauga. Hún er að fara á Hólmavík að hitta drauga... Friðrik Varla gátum veginn greint víst er ekki að spauga. Þetta er alveg afbragð hreint áður en hittum drauga... Sigríður 22

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.