Harmonikublaðið - 01.09.2010, Side 23

Harmonikublaðið - 01.09.2010, Side 23
Nikkólínu félagar spila utan við Leifsbúð og sumir dönsuðu. Er til Hólmavíkur kom fór að hellirigna ogflýtti fólksérísafnið. Staðarhald- arinn þar flutti skemmtilegan fyrir- lestur, með skemmtilegum tilburðum, um galdra, tilbera ofl. Á eftir fengu sumir sér kaffi þar, en aðrir fóru á Cafe Riis og fengu sér að borða. Nú þótti ekki annað þorandi eftir þessa galdraheimsókn en fara í kirkju, en þá brá svo við að ekki fannst leiðin að kirkjunni og var það kennt göldrum. Ekki batnaði þegar Friðrik ók framhjá leiðinni út í Sævang og ekki kom að haldi þó Þórhildur hefði farið í annan sokkinn úthverfan til varnar villum. Ekur Friðrik alveg tryllt og ber fótastokkinn og Þórhildur áttavillt þó að færi í rangan sokkinn... Sigríður Var nú ekið íSævang að Ifta á hrútaþukl og hófust umræður um hvernig hrútunum þætti að láta þukla sig. Hrútaþukl er þarfleg grein ég þannig fæ það skilið. Að laumast vilji ein og ein ær í hrútaspilið... Friðrik Á ýmsu er hægt að þreifa og þukla þarna vestur frá. En þeir sem líka kunna að kukla kannske meira fá... Davfð Hvort sem það var fyrir tilraunir til kukls eða ekki lenti Davíð í dularfullum óhöppum í samskiptum sínum við konur, bæði á laug- ardag og sunnudag og eru eftirfarandi vísur til minningar um það. Allur er hann aumur, blár og marinn ýmisleg er mannsins hrellingin. Ósköp Davíð er nú illa farinn ofan á hann steig ein kellingin... Sigrfður Óttaðist að örlög grimm á sér næðu haldi. Til öryggis því alla fimm útlimina taldi... Friðrik Þau eru komin enn af stað og yrkja af miklum krafti. Ágæt tilbreyting yrði það ef þau héldu kjafti... Davíð Óverðskuldað hlaut hann happ hann sem galdur læra vildi. Blóði drifinn Davfð slapp Drottins fyrir kraft og mildi... Fía Eftir nokkra viðdvöl og kaffihlaðborð var haldið aftur í Bjarkarlund að hitta þá sem til Eyjanna fóru og höfðu þeir líka gert góða ferð. Skáleyjasigling Út í Skáleyjar var farið með Súlunni frá Eyjasiglingu. Það var rigning, útsýni lítið en hlýtt og sléttur sjór. Gengum við hring um eyjuna með ágætri leiðsögn og skoð- uðum rústir, forna muni ogdúnhreinsunina á staðnum. Á eynni býr jóhannes Gíslason. Hann býr með sauðfé en aðal búskapurinn er Ifklega hlunnindi, veiði og dúntekja. Að loknum hringnum sáum við hvar Jóhannes kom að landi á bát sínum og tókum hann tali. Hann hafði verið að líta eftirfé, þvístórstreymtvarogeiga þá kindur til að verða innlyksa á skerjum. Það var ekki á honum þurr þráður sagði hann, en bauð okkursamtíbæinn uppá kaffi. Þargerðum við góðan stans því bóndi hafði frá mörgu að segja meðan við gæddum okkur á heimabakaðri jólaköku, murute og súrum selshreifum. Um kvöldið hittum við svo bónda aftur, því hann lét sig ekki vanta á ballið. Skáleyjabóndi veitti vel verður er því stöku. Bauð hann upp á súran sel og sæta jóla köku... Fía Þegar mannskapurinn var búin að jafna sig á ferðunum, þurrka mestu bleytuna og spita, var komið að hátíðarkvöldverði í Bjarkarlundi, sem starfsfólkið leysti vel úr hendi meðfrábærri veislu. Það vartæplega dansfærtfólksem tókstefnuna á Reykhóla um níuleytið eftir átið. Ballið var fjörugt og mikið danspláss þar sem húsið er stórt. Nikkolínufélagar komu ogtóku þáttíballinuog spiluðu ásamt okkar mönnum fyrir dansi. Morguninn eftir voru félagarnir mjög brattir og vöknuðu snemma, kannske heldur snemma fyrir suma, en tvær konur fóru ekki með því þær ætluðu til Reykjavíkur. Áfram Friðrik ekur nokkuð hratt er í morgun hófum ferð að nýju. Það ég ykkur segi alveg satt ég sakna bæði Þórhildar og Fíu... Sigríður Sendist rútan sviflétt heim svífur líkust kríu. Laus við yfirþyngd af þeim Þórhildi og Ffu... Friðrik Af stað var lagt um ellefu leytið og haldið að Hjarðarholti í Dölum, þar sem Melkorka Benediktsdóttir formaður Nikkólfnu tók á móti okkur, sýndi kirkjuna og sagði okkur sögu hennar. Síðan var haldið heim og þurftu sumir að hvílast vel þegar heim var komið, eftir stranga en skemmtilega helgi. Að ferðalokum ortu menn kveðjuvísur sam- kvæmt venju. Er ferðalag næst verður formað skal fræsa af liðinu slen. Þá verður dvalið og dormað í detox hjá Jónínu Ben... Ólína Með ágætu fólki ég uni mér út um landið að ftakka. Nú vesturferðin á enda er ykkur ég samfylgd þakka... Davfð Ferð er lokið Friðrik minn fjári oft er gaman. Óska ég þess annað sinn yrkja megum saman... Sigríður Þegar hinsti dagur dvín við dauðans öldugjálfur. Skástu eftirmælin mín mun égyrkja sjálfur..... Friðrik Sigurður Ólafsson formadur Harmoniku- félags Þingeyinga tók saman. Hagyrðingar: Davið ÍHrfsgerði, Ólína á Hraun- koti, Sigríður á Vatnsleysu, Hólmfríður (Fía) á Sandi og FriðrikSteingrímsson. 23

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.