Harmonikublaðið - 01.05.2014, Qupperneq 6
Jólaball Harmonikufélags Þingeyinga
Þann 11. janúar síðastliðinn hélt Harmoniku-
félag Þingeyinga sitt árlega jólaball að Breiðu-
mýri, eða fjáröflunarsamkomuna, eins og hún
er stundum kölluð. Veður var jólalegt og mæt-
ing góð.
Dagsskráin var óvenju fjölbreytt að þessu sinni.
Hún hófst á því að Þórhildur Sigurðardóttir
formaður setti samkomuna, bauð alla gesti
velkomna og óskaði þeim gleðilegs árs. Síðan
lék Stefán Þórisson nokkur lög. Þá var komið
að Jóhannesi Haraldssyni að flytja gamanmál
og síðan las Sigurður Leósson frumsamda
skemmtisögu. Svo var dansað til ellefu. Þá hófst
hið fræga bögglauppboð Stefáns Þórissonar og
var líflega boðið eins og alltaf.
Bögglauppboðið. Stefán Þórisson, Arni Njálsson, Jón
Jóhannsson ogAsrún Alfreðsdóttir
Á dansleiknum léku eftirfarandi hljómsveitir:
Stefán Þórisson byrjaði og með honum léku
Hjörtur Hólm á trommur og Grímur Vil-
hjálmsson á bassa. Þá spilaði Sigurður Frið-
riksson og voru sömu undirleikarar með
honum, en Pálmi Björnsson gítarleikari bættist
við. Þá var komið að Sigurði Leóssyni og léku
þeir sömu með honum. Eftir bögglauppboð
kom svo liðsauki frá Akureyri og voru það þeir
Einar Guðmundsson á harmoniku, Finnur
Finnsson á bassa og Árni Friðriksson á
trommur, ásamt Pálma gítarleikara og Sigurði
Leóssyni. Að lokum spilaði Strákabandið.
Ballið var fjörugt í betra lagi og stóð til kl 2, en
þá sleit Þórhildur samkomunni og óskaði
félögum og gestum góðrar heimferðar í
snjónum.
Hólmfríbur Bjartmarsdóttir
og Sigurður Ólafison
Myndir: Sigurður Ólafison
Finnur, Sigurður, Árni og Einar og Pálmi
Þórhildur formaður
Jóhannes Haraldsson
Strákabandið