Harmonikublaðið - 01.05.2014, Qupperneq 17

Harmonikublaðið - 01.05.2014, Qupperneq 17
Hartmann G. Guðmannsson Lagahöfundur blaðsins að þessu sinni er Hart- mann G. Guðmannsson. Hann er fæddur að bænum Tungufelli í Svarfaðardal 26. maí 1935. Strax á barnsaldri fór Hartmann að reyna við harmonikuna og var firrðu fljótur að átta sig á hvernig takkarnir virkuðu. Fjórtán ára lék hann á sínum fyrsta dansleik. Hann hélt sig við hnappanikkuna í fyrstu, en í byrjun sjö- unda áratugarins skipti hann yfir á píanónikku. Hin síðari ár hefur hann hins vegar alveg haldið sig við hnappanikkuna. Hartmann hóf ungur að banga saman lögum og árið 1999 gaf hann út geisladisk með 13 lögum sínum, en Fjallavalsinn er trúlega hans kunnasta lag. Það kom út á plötu FHUR „Meira fjör“ árið 1984, í flutningi þeirraAgústs Péturssonar og Eyþórs Guðmundssonar. Hart- mann flutti til Reykjavíkur árið 1952 og gekk í Félag harmonikuunnenda í Reykjavík, fljót- lega eftir stofnun þess á áttunda áratugnum og þar hefur hann verið dyggur félagsmaður síðan. Eiginkona Hartmanns er Kristín Eyþórs- dóttir og eiga þau fimm börn. Grettir Björnsson MINNINGARTÓNLEIKAR um Gretti Björnsson harmonikuleikara á Hvammstanga, 24. ágúst 2014. Grettir Björnsson harmonikuleikari fæddist á Bjargi í Miðfirði 2. maí 1931. Hann lést þann 20. október 2005. Foreldrar hans voru Margrét Jónína Karlsdóttir f. 1893, d. 1991 og Björn Jónsson bóndi á Torfastöðum í Miðfirði, f. 1905, d. 1982. Fósturfaðir Grettis var Arinbjörn Árnason f. 1904, d. 1999. Grettir kvæntist 1. janúar 1952 ErnuS. Geirs- dóttur, f. 10. maí 1934 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Geir Jón Helgason lögregluþjónn f. 1908, d. 1984 og Regína Sigríður Guðmunds- dóttir f. 1909, d. 1987. Börn þeirra eru Geir Jón, Margrét, Regína og Grettir. Grettir ólst upp hjá móður sinni á Bjargi fyrstu tvö ár ævi sinnar, en á Bjargi var þó hans annað heimili fram á unglingsár. Arið 1933 giftist Margrét móðir hans Arinbirni Arnasyni frá Neðri-Fitjum. Fluttu þau fljótlega til Hafnar- fjarðar og síðar til Reykjavíkur. Grettir iauk þar gagnfræðaskólanámi, en að auki stundaði hann klarinettunám íTónlistarskólanum í Reykjavík og harmonikunám í einkatímum. Hann flutt- ist með konu sinni og tengdafólki til Vancouver í Kanada árið 1952. Eftir níu ára búsetu þar vestra fluttist hann heim til Islands ásamt konu sinni og börnum. Grettir vann alla sína starfsævi sem harmonikuleikari, við hljómsveitarstörf og harmonikukennslu. Einnig spilaði hann inn á allmargar hljómplötur og samdi harmonikulög og vann til margra verðlauna hér heima og vestan hafs. Hann var í mörgum kunnustu hljómsveitum landsins. Grettir var meðal annars kjörinn heiðursfélagi Félags harmonikuunnenda í Reykjavík. Grettir var húsamálari að mennt og vann við þá iðn- grein alla tíð ásamt spilamennskunni. Samferðafólk Grettis minnist hans sem góðs félaga, sem var bæði skapmikill og ljúfúr. Hann var mikill tónlistarmaður og ólst upp við tón- listarlíf á Bjargi, þar sem söngur og önnur tónlist var í hávegum höfð. Foreldrar hans voru bæði mikið tónlistarfólk. Látin hálfsystkini eru: Anna Axelsdótdr f. 24. ágúst 1918, d. 13. júlí 2010. Karl Jóhannes Axelsson f. 7. ágúst 1920, d. 5. maí 1943. Páll Axelsson f. 29. júní 1922, d. 15. júlí 1988. Sigurgeir Axelsson f. 27. maí 1926, d. 18. júní 2001. Eftirlifandi hálfbræður Grettis eru: Jón Björnsson, Marinó Björnsson, Sigurður Yngvi Björnsson, Árni Björnsson ogÁrni Arin- bjarnarson. Sú hugmynd kviknaði hjá mér, í samráði við aðra, að halda harmonikutónleika á komandi sumri til minningar um þennan kunna harmon- ikuleikara og systkini hans sem öll léku á hljóð- færi og bræðurnir allir á harmoniku. Tónleikarnir verða í Félagsheimilinu á Hvamms- tanga 24. ágúst 2014 og hefjast klukkan 15:00. Dagurinn er afmælisdagur systur hans og móður minnar, Önnu Axelsdóttur á Bjargi en hún lék á píanó. Þau Grettir og Anna voru mjög náin systkini og börn Grettis þar í heimili langtímum saman. Hér með er leitað eftir að þeir sem áhuga hafa á að taka þátt með því að spila á tónleikunum gefi sig fram og saman gerum við þennan atburð sem minnistæðastan og heiðrum þannig minn- ingu Grettis Björnssonar og systkina. Aðgangur verður ókeypis og hljóðfæraleikur sjálfboðavinna. Hafa skal samband við mig, á netfangi: borg@simnet.is, eða í síma 451-2660 og 864 2137. Fyrir hönd dhugahópsins: Elinhorg Sigurgeirsdóttir skólastjóri Tónlistarskóla. Húnaþings vestra. 17

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.