Harmonikublaðið - 01.09.2014, Side 4

Harmonikublaðið - 01.09.2014, Side 4
Dalamenn og Húnvetningar dansa saman! HUH og Nikkólína héldu sitt árlega harmonikumót í Asbyrgi á Laugarbakka í Miðfirði, helgina 13.-15. júní. Mæting var svipuð og í fyrra og veðrið lék við gesti. Greinarhöfundur sló tölu á íveru- staði og virtist sem ríflega áttatíu harmonikuunnendur hafi dvalið á undir stjórn Elínborgar Sigurgeirs- dóttur skólastjóra og Ólafs Rúnars- sonar tónlistarkennara. Það voru Ingunn Elsa Ingadóttir á blokk- flautu, Jóna Margareta Júlíusdóttir Lundberg söng, Katha Aþena Guðný Þorsteinsdóttir á píanó, Hrafnhildur Kristín Jóhannsdóttir Guðmundur Jóhannesson, Sveinn Kjartansson og Porvaldur Pálsson lékur á tónleikunum í Asbyrgi tjaldsvæðinu við Ásbyrgi þessa helgi, eru þá ótaldir þeir farfuglar sem mættu á dansleikina en lögðu ekki í hreiðurgerð. Það var dans- hljómsveit Nikkólínu sem hóf skemmtunina kl. 21:00 og hélt uppi fjörinu á föstudagskvöldinu. Hana skipuðu Halldór, Melkorka, Sigrún, Kristján Ingi, Sigvaldi, Jóhann, Ingimar og Ragnar Ingi á harmoniku, Hafliði á gítar, hinn síungi Ríkarður á trommur og Halli Reynis á bassa. Þótti vel til takast og var ágætis aðsókn að dansinum og sýndu margir þar afbragðs fóta- mennt að vanda. Laugardagurinn heilsaði svo með sól og blíðu. Tónleikar voru í félags- heimilinu að venju. Þar komu fram nemendur frá Tónlistarskóla V.- Hún. með söng og hljóðfæraleik söng og lék á píanó. I lokin spiluðu svo þrír góðir Húnvetningar, Þor- valdur Pálsson, Guðmundur Jóhannesson og Sveinn Kjartansson nokkur lög. Kynnir var dr. Ragnar Ingi Aðalsteinsson bragfræðingur og er engu logið, þó sagt sé að hann hafi farið á kostum. Undirritaður minnist þess reyndar ekki að doktor hafi áður séð um kynningar á harmonikumóti. Ragnar Ingi lýsti m.a. eigin ástandi svona: I fyrstu aðeins eimdi eftir af því sem mig dreymdi svo máðist það út í móðu og sút Ég man ekki hverju ég gleymdi! Eftir tónleikana var kaffihlaðborð þar sem borð svignuðu undan heimagerðu bakkelsi og sá ekki högg á vatni þar þrátt fyrir góða tilburði gesta. Alltaf notalegt að setjast niður og spjalla saman og njóta góðra veitinga. Um kvöldið sá hljómsveit Sveins Sigurjónssonar um ballið og lék fyrir dansi til klukkan eitt og var gerður góður rómur að frammi- stöðu hennar. Með Sveini í hljóm- sveitinni voru þeir Sigvaldi Fjeld- sted á harmoniku, Helgi E. Kristjánsson á bassa, Jón Guð- mundsson á gítar og Sveinn Ingi Sveinsson á trommur. Á miðju balli var svo dregið í happdrætti mótsins. Formenn félaganna, þær Sólveig Inga Friðriksdóttir og Melkorka Benediktsdóttir sáu um dráttinn, með smá aðstoð frá ritstjóra Harmonikublaðsins. Margt góðra vinninga var í boði og þetta hin skemmtilegasta tilbreyting. Þar má nefna glæsilega lopapeysu og fleira prjónles, fjölbreytt krydd í til- veruna frá Prima, bókmenntir, tónlist og svo myndarlegur grill- kjötkassi með öllu mögulegu með- læti, sá sem hann hreppti fór ekki svangur heim. Vindbelgirnir Diskurinn „Dustað af dansskónum“ er loksins aftur fáanlegur Ekta gömlu dansarnir beint í æð. Hann má nota við danskennslu og í stofúnni heima. Mörgum finnst hann líka frábær við heimilisverkin. Hægt er að panta diskinn hjá Hilmari í síma 896 5440 og Friðjóni í síma 696 6422. Verð króttur2500,- með sendingarkostnaði innanlands. Dr. Ragnar Ingi Aðalsteinsson les fólki pistilinn Harmonikumódð fór í alla staði vel fram, menn skemmtu sér hið besta, það var dansað, spjallað, spilað og sungið og veðrið bara í fína lagi. Svo er rétt að geta þess að það er búið að fastsetja Ásbyrgi fyrir harmonikumótið á sama tíma að ári. Já svona á þetta að vera. Friðjón HallgrímssonlSH Ljósm: Guðmundur Jóhannesson I Húnvetnskri sumarblíðu 4

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.