Harmonikublaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 8
Harmonikufélag Héraðsbúa 30 ára
Harmonikufélag Héraðsbúa,
HFH, er rétt búið að slíta barns-
skónum og komið í tölu fullorð-
inna. Stofnfundur var haldinn 30.
mars 1984 og mættu 14 áhuga-
menn um harmonikuleik. Fram-
haldsstofnfundur var svo hald-
innl8. maí. Félagið er því þrjátíu
ára í ár. Aðalhvatamaður að stofnun
þess var Jón Sigfússon, núverandi
formaður félagsins. I fyrstu stjórn
voru kjörnir; formaður Hreggviður
Jónson, ritari Jón Sigfússon, gjald-
keri Hreinn Halldórsson og vara-
menn Guttormur Sigfússon og
Bragi Gunnlaugsson. A þessum
fyrsta fundi var ákveðið að allir
æfðu fimm lög til að spila saman.
Á framhaldsstofnfundinum voru
samþykkt eftirfarandi lög fyrir
félagið:
1. Félagið heitir Félag harmon-
ikuunnenda á Fljótsdalshéraði
2. Tilgangur félagsins er að efla
viðgang harmonikutónlistar og
þjálfa félagsmenn í harmoniku-
leik
3. Tilgangi sínum, samkvæmt 2.
grein, hyggst félagið ná með því
að:
A. Standa fyrir reglulegum sam-
æfingum félagsmanna
B. Fá kennara til að veita tilsögn
svo sem unnt er
C. Efla tengsl við önnur hliðstæð
félög á landinu
Eftir þessum lögum hefur félagið
reynt að starfa sem kostur er á
hverjum tíma.
Þar sem sumum þótti nafn hins
nýstofnaða félags langt og ekki
nógu þjált og skammstöfun þess
FUF ekki sem best þá var nafninu
fljótlega breytt í Harmonikufélag
Héraðsbúa með skammstöfunina
HFH.
Hér verða tíundaðir nokkrir
þættir í starfi félagsins.
Fastir liðir í gegnum árin hafa verið
svokallaðir „ágúst dansleikir" í lok
ágúst. I nokkur skipti var félögum
í HFH og aðkomugestum boðið
upp á veisluborð fyrir dansleik.
Þessir dansleikir voru oft fjöl-
mennir og margir sem léku fyrir
dansi. Fyrir utan heimamenn þá
heiðruðu okkur oft Þingeyingar og
Eyfirðingar, sem var mjög ánægju-
legt.
Lagakeppnir fóru af stað 1992 og
var haldið úti í 10 ár við miklar
vinsældir. Þá gaf félagið út nokkra
geisladiska og hljóðsnældur með
lögum úr lagakeppnum. Flest
þeirra voru eftir félagsmenn. Það
er á engan hallað þó eitt nafn sé
nefnt varðandi tónlistarflutning í
lagakeppnunum en það var Jónas
Þór Jóhannsson sem sá um þann
þátt með hljómsveit sinni auk
söngvara og hljóðfæraleikara sem
bættust við á hverjum tíma. Þar
má nefna finnska harmonikuleik-
arann Tatu Kantomaa sem var
nánast orðinn heimamaður eftir að
hafa komið sem eitt aðalnúmerið
á landsmót Sambands íslenskra
harmonikuunnenda á Egilsstöðum
1993 sem haldið var af HFH.
Lagakeppnir félagsins fóru fram á
árshátíð þess í apríl og hófust á
borðhaldi, oft með um og yfir 200
manns og síðan bættist hátt í annað
eins á dansleikinn.
Félagið stóð í nokkur skipti fyrir
áramótadansleikjum. Þá var félagið
einnig með skemmtanir um versl-
unarmannahelgar, fyrst í Svarta-
skógi, síðan í Brúarási og síðast í
Fellabæ, alls 13 sinnum.
Læt þetta nægja um fortíðina og
kem í nútíðina í fáeinum orðum.
Síðastliðið haust hófúst samæfingar
HFH fyrir landsmót SÍHU á
Laugum í Reykjadal. Valin voru
fjögur lög eftir félagsmenn. Útsetn-
ingar og stjórn var í höndum
Torvald Gjerde.
Harmonikudagurinn var laugar-
daginn 3. maí. Samkvæmt venju
þá spiluðu Jón Sigfússon, Páll
Sigfússon, Guttormur Sigfússon
og Sveinn Vilhjálmsson, félagar í
HFH, þennan dag í nokkrum
fyrirtækum bæjarins og má þar
nefna Húsasmiðjuna, Nettó og
Bónus.
Um kvöldið var svo 30 ára afmæl-
ishátíð HFH haldin í Kaffi Egils-
staðir.
Dagskrá kvöldsins var þannig:
Meðan gestir voru að koma sér fyrir
spilaði Hreinn Halldórsson nokkur
vel valin lög, að eigin mati.
Jón Sigfússon, formaður HFH,
stiklaði á stóru í sögu félagsins.
Gunnar Kvaran, formaður SIHU,
flutti ávarp.
Veislustjórinn, Jónas Þór Jóhanns-
son, tók við og borðhald hófst.
Eins og flestir vita þá er Jónas vel
orðhagur maður og kann sitt hvað
fyrir sér m.a. í gamanmálum sem
hann flutti milli atriða.
Þá var komið að öðrum skemmti-
atriðum. Fyrstur steig á stokk
Guttormur Sigfússon og þar næst
Torvald Gjerde og léku þeir eitt Iag
hvor. Þá lék harmonikusveit HFH,
undir stjórn Torvald Gjerde, lög
sem farið var svo með á landsmót
SlHU að Laugum. Þar næst stigu
á svið söngdívurnar á Hofi en þær
eru Drífa Sigurðardóttir, Sigurrós
Sigurðardóttir og Sigurveig
Stefánsdóttir með undirleik Stein-
ars Atla Hlynssonar og Pálma
Stefánssonar. Nú var komið að
heiðursgestinum, Flemming Viðari
Valmundssyni. Hann sýndi það og
sannaði að harmonikan er hljóð-
færi allrar tónlistar, ekki aðeins
gömlu dansanna. Harmonikan er
hljóðfæri sem getur hrifið alla
aldurshópa sé kunnátta, næmni og
ekki síst innlifun og skemmtileg
framkoma til staðar. Allt þetta
prýðir Flemming Viðar og má
mikils af honum vænta ef fram
heldur sem horfir. Hann, sem og
annað ungt fólk með slíkan
metnað, er mikil hvatning til
annarra ungmenna, reyndar á
öllum aldri, til að njóta töfra
harmonikunnar. Kærar þakkir,
Flemming Viðar!
Síðasta atriðið á dagskránni var
afhending viðurkenninga fyrir vel
unnin störf í gegnum tíðina fyrir
HFH. Þær hlutu: Dvalinn Hrafn-
kelsson, Halldís Hrafnkelsdóttir,
Hreinn Halldórsson, Jónas Þór
Jóhannsson, Jón Sigfússon, Krist-
ján Gissurarson, Kristmann Jóns-
Stórsveit HFH frá v. Torvald, Drifa, Jón, Guttormur, SigurSur, Bjarki og Sveinn, í
hópinn vantar Önnu