Harmonikublaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 10

Harmonikublaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 10
Harmonika, bara nafnið eitt skapar léttleika í sálarlífinu. Ekki að kynja þó aðþetta hljóð- fœri sé ísérstöku uppáhaldi hjá íslenskuþjóðinni ogauðvitað víða um lönd. Það verðurþví fengur jyrir harmonikuunnendur að fá í hendur geisladiskinn sem þar Hildur Petra Frið- riksdóttir og Vigdís Jónsdóttir eru nú að vinna að og mun koma út í vor að öllu forfallalausu. „Við kynntumst þegar Guðrún Guðjónsdótdr stofnaði kvenna- sveitina Sundhetturnar," segja þær Hildur Petra Friðriksdóttir og Vigdís Jónsdóttir. Þær vinkonurnar eru með góðu tónlistarfólki að æfa fyrir upptökur á hinum væntanlega geisladiski. „Hann gæti til dæmis heitið Vin- konuvals,“ segir Vigdís og hlær. Samstarfið mótast greinilega af léttleika og vinnugleði. „Mér finnst óskaplega gaman að hafa harmonikuleikinn sem áhuga- mál og það getur verið mjög afslappandi fyrir mig að taka upp nikkuna eftir erfiðan dag í vinnunni. I gegnum þetta áhuga- mál hef ég einnig kynnst mörgu góðu og skemmtilegu fólki og í raun hefur opnast þarna fyrir mér nýr heimur," segir hún. á elliheimilið, - sá ekki að ég hefði tíma til þess fyrr. En honum fannst það talsvert seint og gaf mér nikk- una í afmælisgjöf. Þetta er án efa ein besta gjöf sem ég hef fengið," bætir Vigdís við. Hildur vinkona hennar kinkar kolli. Hún á lengri sögu með harmonikunni en Vigdís. „Eg hef spilað á harmoniku síðan ég man eftir mér. Heima í sveitinni hjá pabba og mömmu voru til tvær nikkur, önnur lítil, hin stór. Eg byrjaði að spila á þá minni, réði þó illa við hana og fékk yngri systur mína, oft ósátta, til að draga belg- inn sundur og saman, lét nikkuna liggja á bakinu, ef svo má segja um harmoniku, og spilaði svo á hana eins og píanó.“ Þar kom að Hildur fór að sitja með nikkuna og spila á bassann líka. Jónatansson byrjaður að kenna við Tónlistarskóla Akureyrar. Ég hef verið um fermingu þegar pabbi fór með mig til Karls til að láta mig spila fyrir hann. I kjölfarið lærði ég hjá honum í einn og hálfan vetur. Eg hafði lært á orgel hjá kennara við barnaskólann áður, svo ég þurfti að tileinka mér meiri þekk- ingu á bassanum. Þess má geta að ég spilaði með körlunum í Félagi harmonikuunnenda við Eyjafjörð (FHUE), og var þá eina konan í hópnum," segir Hildur. Hugfangin af harmonikunni Vigdís segist fljótlega hafa orðið nokkuð hugfangin af harmonik- unni. „Eg byrjaði líka að læra hjá Karli Jónatanssyni, í hóptímum. Þar kynntist ég tveimur stelpum spilsdrottningarnar. Við vorum svolítið brattar í því að spila fyrir aðra, þó við kynnum nánast ekkert á hljóðfærið. Eitthvað sem ég hefði aldrei gert ein. Eg man til dæmis eftir því að í fyrsta skipti sem við spiluðum í einhverri veislu, þá kunnum við það lítið, að ég var ekki einu sinni viss um hvernig ég ætti að taka sundur nótnastatíflð. Við Stína Maja og Unnur spilum ekki mikið saman núna, en ég hef líka aðeins spilað með Léttsveit Harmoniku- félags Reykjavíkur og kynnst þar góðu fólki," segir Vigdís. En hvernig skyldi nafnið Sundhett- urnar hafa komið til? „Við spiluðum einu sinni á sund- laugarbarmi með sundhettur á höfðinu,“ svara þær Hildur og Vigdís einum rómi. „Við vorum Hildur Petra og Vigdis viS upptökur á nýjum diski i stúdíói hjá Brynleifi Hallssyni á Akureyri Á leið á ballspil í Lóni Eiginmaður Vigdísar gaf henni harmonikuna í fertugsafmælisgjöf. „Eg hafði aldrei snert á slíku hljóð- færi fyrir þann tíma. Mér hefur reyndar alltaf þótt harmonikan einstaklega flott hljóðfæri og lét það einhvern tíma út úr mér svo maðurinn minn heyrði að ég ætlaði að spila á harmoniku þegar ég færi 10 „Ósjaldan kom fyrir að bassatakk- arnir duttu inn í nikkuna og ég lærði fljótt að opna hana og ná tökkunum út. Fyrir kom að Reynir Leósson, bróðir pabba kom í heim- sókn með nikkuna sína. Þá bað hann mig að spila fyrir sig. Hann hvatti pabba eindregið til að koma mér í tónlistarskóla. Þá var Karl sem ég spilaði með í nokkur ár, þeim Kristínu Maríu Ingimars- dóttur og Unni Jökulsdóttur. Við vorum allar byrjendur og kunnum afskaplega lítið á hljóðfærið til að byrja með. Við skemmtum okkur hins vegar vel saman og höfðum gaman af félagsskap hverrar ann- arrar. Við kölluðum okkur Drag- báðar með Guðrúnu Guðjóns- dóttur í Harmonikufélagi Reykja- víkur og hún dreif okkur í að spila með nokkrum öðrum konum, sem var mjög skemmtilegt. Svo var það um jólin 2011 að það vantaði harmonikuleikara til að spila á jólamarkaðinum við Elliðavatn og við Hildur ákváðum að spila þar

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.