Harmonikublaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 11

Harmonikublaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 11
saman. Þar með var teningnum kastað. Síðan höfum við spilað saman og það hefur verið mikið ævintýri fyrir mig að spila með henni Hildi. Eg hef Iært mikið af henni, hún hefur ýtt mér áfram í að gera hluti sem ég hefði annars aldrei haft hugrekki til að gera. Svo sem að spila á tón- leikum, á harmonikumótum, í ýmsum veislum og á viðburðum, á Skólavörðustígnum, í útvarpinu, á siglingu með Húna um Eyjafjörð- inn, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Vigdís. Spilað á nikku heima og erlendis Hildur er reynslumikil sem harm- onikuleikari. Hún segist þó hafa lagt nikkuna alveg á hilluna um tíma. „Um 26 ára aldur ákvað ég hins vegar að dusta rykið af hljóð- færinu og gekk til liðs við hljóm- sveit FHUE,“ segir hún. „ Þá var Atli Guðlaugsson stjórnandi hennar. Upp úr því þróaðist sam- spil okkar Egils Jónssonar frá Syðri- Varðgjá í Eyjafjarðarsveit. I kringum okkur myndaðist hljóm- sveit með Núma Adolfssyni gítar- leikara og Magnúsi Kristinssyni trommuleikara. Bassaleikarar lágu ekki á lausu þarna og fleiri en einn spilaði með okkur þar til Fróði Oddsson slóst í hópinn. Við spil- uðum saman, þessi hópur í um þrjú ár, eða þar til ég flutti til Hafnarfjarðar haustið 1995.“ Þess má geta að þá hafði Hildur farið með hópi kvenna á Nordisk Forum, þá 28 ára og spilað fyrir dansi í beinni útsendingu í finnska ríkissjónvarpinu. „Þegar ég flutti á höfuðborgar- svæðið gekk ég strax í Félag harmo- nikuunnenda í Reykjavík og spilaði með stórsveit þeirra einn vetur. Veturinn 1996 til 1997 lærði ég hjá Guðmundi Samúelssyni. Capri tríóið var á þessum tíma að spila öll sunnudagskvöld í Glæsibæ og mig minnir að ég hafi fengið að spila þar eitt sinn í pásunni. Upp frá því leysti ég harmonikuleikara Capri tríósins af þegar á þurfti að halda,“ heldur Hildur áfram frá- sögn sinni. Vegurinn hennar átti enn eftir að vaxa. ,A þessum tíma kynntist ég líka Harmonikufélagi Reykjavíkur og fór að spila á böllum þar. Um svipað leyti samþykkti ég, treglega þó, að vera varaformaður félagsins og nokkrum vikum seinna hætti formaðurinn. Þá sat ég uppi með formannshlutverkið. Ég hefði ekki lifað það ár af nema af því að Guð- rún Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður félagsins, stóð við hlið mér allan tímann eins og klettur. Við tókum meðal annars á móti harmonikuleikurum frá Rússlandi þetta ár og það var mjög mikið að gera,“ segir Hildur. Svo var það árið 2004 að hún kom fram í þætti Gísla Marteins í Sjón- varpinu. „Egill Eðvarðsson hringdi og bauð mér að koma og spila fyrir sig. Sagðist hafa frétt af mér og að Sjónvarpið yrði oft fyrir þeirri gagnrýni að bjóða ekki upp á nógu marga kvenlistamenn. Ég sló til og enn eitt ævintýrið hófst. I kjölfarið var mér boðið að koma með hljóm- sveitina mína til Grímseyjar og spila á balli þar. A þessum árum var mér líka boðið til Reykjaness til að spila á tónleikum, með það að markmiði að vera ungum konum fyrirmynd og hvatning í harmonikuleik.“ Það má með sanni segja að Hildur hafi ekki aðeins verið ungu fólki hvatning, hún hefur líka komið eldri borgurum margoft í skemmt- anastuð. „Um vorið 2005 var mér boðin sumarafleysing við félagsstarf Hrafnistu í Hafnarfirði, en þar hafði sá siður skapast að hafa harmonikuböll á hverjum föstu- degi. Þá komu heldri harmoniku- leikarar og spiluðu með. Þetta var mikil stemning og þegar mér bauðst í framhaldinu föst staða við félagsstarf Hrafnistu í Reykjavík um haustið tók ég þetta upp þar. Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur mættu þangað til að spila með mér og þessi böll héldust fram á haustið 2007. Þá hætti ég og Guðrún Guðjónsdóttir tók við kyndlinum.“ Vigdís skýtur inn í að hún hefði aldrei trúað fyrir nokkrum árum síðan að hún myndi þora að stíga á svið og spila með hljómsveit undir dansi og á tónleikum. ,Alh þetta er því talsverð upplifun fyrir mig og mér finnst núna óskaplega gaman að spila á hljóðfæri með öðru fólki. I gegnum harmonikuna hef ég síðan kynnst óskaplega mörgu góðu og skemmtilegu fólki. Harmonikumótin eru fyrirbæri sem ég vissi varla að væru til. Þar er mjög gaman að vera. Félags- skapurinn góður, allir jákvæðir og alltaf er verið að dansa, spila og syngja," segir Vigdís. Hildur hlustar og kinkar kolli sam- þykkjandi. „Ég gekk með það í maganum í ein sextán ár að fara til Castelfidardo og kaupa mér sér- smíðaða Victoria harmoniku. Allir voru löngu hættir að hlusta á mig,“ segir hún. „Hins vegar lét ég þann draum rætast og gerði það fyrir nokkrum árum síðan þegar ég fór til Itah'u sem harmonikuleikari með Bændaferðum. Það sama má segja um geisladiskinn sem við vinkonurnar erum að fara að gera. Það hefur verið draumur minn lengi að gefa út disk og nú erum við lagðar af stað í það verkefni með skemmtilegu fólki. Maður á að Iáta drauma sína rætast," segir hún brosandi. Hljómsveitin Við og við Hildur kveðst hafa spilað nánast um allt Iand við hin ýmsustu tæki- færi, á böllum, í brúðkaupum, í bílskúrum, í geymslum, á tón- leikum, upp á fjöllum, niður í fjörum og í jarðarför. Hún hefur víða farið til að spila, líka á erlendri grundu. „Ég spilaði til dæmis á jólaballi hjá Islendingafélaginu í Lúxemborg árið 2009, fór á einar tvær æfingar og það tók um tvo og Hildur Petra aS spila i sjónvarpinu árið 2004. Með Hildi á myndinni eru Kjartan Jónsson ágitar, Kristinn Valdimarsson á bassa og Guðmundur Steingrímsson á trommum. 11

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.