Harmonikublaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 13

Harmonikublaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 13
. pússa< Þá er vetrarstarf FHUR komið í sinn venjubundna farveg, með þeim viðburðum sem því tilheyra. Við hófitm það með dansleik þann 11. október og var hann að vanda haldinn í Breiðfirðingabúð. Var fram í fyrsta skipti með harmoniku Haukur Ingibergsson, sem marga fjöruna hefur sopið í bransanum. Var ekki að heyra að þar væri um frumraun á harmoniku að ræða. Margrét Arnardóttir var næst með Gamla jtevið heldur velli aðsókn ásættanleg, en alltaf finnst okkur vera pláss fyrir fleiri. Þeir sem þarna þöndu dragspilin voru Ingvar Hólmgeirsson, Þor- leifur Finnsson, Páll S. Elíasson og Sveinn Sigurjónsson. Meðspilarar voru Sveinn Ingi Sigurjónsson og Þórir Magnússon trommuleikarar, Hreinn Vilhjálmsson sá um bass- ann ásamt Jónasi Pétri Bjarnasyni. Kjartan Jónsson og Jón Guð- mundsson léku á gítara. Söngvarar með Ingvari voru þau Kristrún Sigurðardóttir og Þorvaldur Skafta- son, sem einnig iék á gítar. Var gerður góður rómur að frammi- stöðu tónlistarfólksins. Þann 26. október var svo skemmti- fundur í Iðnó. Þar steig fyrstur á svið Eðvarð Arnason, löggan létt að vanda. I hans fótspor kom svo Álfhciður Gtó stóð svo sannarlega undir vtmtingum sína einstaklega fáguðu tónlist. Ætíð með öðrum brag en hinir. Álfheiður Gló Einarsdóttir tók við af Margréti og var fáguriin ekki minni hjá þessum félaga í Harmo- nikukvintett Reykjavíkur. Tvær frábærar tónlistarkonur. Þá var komið að formanni FHUR, sem tæplega var farinn að kólna eftir dansleikinn hálfum mánuði áður. Skemmtifundinum lauk með því að Pétur Bjarnason fyrverandi fræðslustjóri á Vestfjörðum og rit- stjóri Harmonikublaðsins léku nokkur lög saman á tvöfaldar harmonikur af ósviknum grall- araskap. Virtist þetta falla gestum vel í geð af ókunnum ástæðum. Aðsókn á fundinn var í slakara lagi, en að öðru leyti fór allt saman vel fram. Næsti dansleikur haustsins var síðan haldinn þann 22. nóvember. Að þessu sinni komu allir harmo- nikuleikararnir að austan, að einum undanteknum. Þetta voru þeir Garðar Olgeirsson í Hellis- halda aðeins dansleik núna og gera í staðinn tilraun með að halda árshátíð á þorra. Sameinað þorra- blóti. Verður forvitnilegt að vita hvernig það tekst til. Það má geta þess að hljómsveit Margrét Amardóttir alveg sniðin í Iinó holtum, Grétar Geirsson á Áshóli, Þórður Þorsteinsson (Doddi raf- virki) á Selfossi og Þorsteinn Rúnar Þorsteinsson úr Breiðholdnu. Um aðra taktgjöf sáu þeir Hreinn Vil- hjálmsson á bassa, Helgi E. Krist- jánsson á gítar og Guðmundur Steingrímsson á trommur. Aðsókn var að þessu sinni í meðal- lagi og stemningin mjög góð og tónlistarmönnunum hælt fyrir þeirra frammistöðu.TiI gamans má geta þess að meðal- aldur þeirra er 72 ára og þrír mánuðir. Að öllu venjulegu hefði átt að vera árshátíð um þetta leyti, en eftir reynsluna af síðustu árshátíð, var ákveðið félagsins hefur að vanda æft nú á haustmánuðum og sem fyrr er það Reynir Sigurðsson sem þar heldur á tónsprotanum. Að endingu viljum við fyrir hönd FHUR óska öllum vinum og velunnurum félagsins, sem og öllum sem þetta lesa gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, með þökk fyrir allt hið liðna. FH / Páll S. Eliasson form FHUR Myndir: SigurSur Harðarson 13 Heiðursfélagar SÍHU eru: Aðalsteinn Isfjörð, Baldur Geir- mundsson, Bragi Hlíðberg, Karl Jónatansson og Reynir Jónasson.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.