Reykjavík - 05.01.2013, Blaðsíða 1
DANS FYRIR ALLA!
Skráning hafin í síma 586 2600 eða á
dansskoli@dansskolireykjavikur.is
Barnadansar frá 2 ára
Samkvæmisdansar
Brúðarvals
Sérhópar
Zumba
Ragnar Linda Javier
NÝTT!
Zumba
með Javier!
GlerPró ehf. Kaplahrauni 8 220 Hafnarfjörður
Framrúðu ísetningar
Framrúðu viðgerðir
Bílljósaviðgerðir
Smáviðgerðir
848 7007 453 7075 776 8600
Framrúðu og bílljósaviðgerðir
Allar viðgerðir á framrúðum eru bíleiganda að kostnaðarlausu.
Vinnum fyrir öll tryggingafélög.
5. janúar 2013
1. tölublað 4. árgangur v i k u b l a ð
ÚTSALA
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
25-60% afsláttur
11-16
Opið laugardag
af öllum vörum
Reyna að ná samkomulagi um sjúkra
flutninga fyrir miðjan mánuðinn
Viðræðum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og velferðarráðuneytisins vegna greiðslna
fyrir sjúkraflutninga miðar áfram, en þó ber nokkuð í milli ennþá.
Um það bil tíu fundir hafa verið haldnir í yfirstandandi samn-ingalotu milli samninganefndar
stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
og velferðarráðuneytisins um hvað skuli
greiða fyrir sjúkraflutninga. Samningar þar
um hafa verið lausir lengi og hafa sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu lagt út fyrir
kostnaðinum á meðan ekki hefur samist.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri á Sel-
tjarnarnesi sagði í viðtali í Reykjavík-viku-
blaði í nóvember að ráðuneytið yrði að taka
ákvörðun um hvort það ætlaði að ganga til
samninga, skattgreiðendur geti ekki lengur
niðurgreitt þessa þjónustu. Þá sagði Jón
Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri að það
yrði stórslys ef sjúkraflutningarnir yrðu
teknir frá slökkviliðinu, sem hefur sinnt
þeim í meira en öld.
KPMG var fengið sem óháður aðili til
að gera úttekt á því hvernig sjúkraflutn-
ingum yrði best fyrir komið. Niðurstaðan
var í stuttu máli sú að hagkvæmara væri
að reka þá með slökkviliðinu, heldur en að
skilja þetta tvennt að. Lagt var til að gerður
yrði langtímasamningur og að í honum
yrði reynt að brúa bilið á milli hugmynda
sveitarfélaganna og ríkisins á tilteknum
árafjölda.
Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
skipaði samninganefnd til að ræða við ríkið
og er Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ
formaður hennar.
Hann segir að um tíu fundir hafi verið
haldnir frá því að samninganefndin var sett
á laggirnar og að það hafi miðað áfram, en
þó nokkkuð beri enn í milli.
„Aðilar eru nokkuð sammála um hvað
sjúkraflutningarnir kosta einir og sér en ekki
sammála um hvernig samlegðinni á að reka
þá með slökkviliðinu verði skipt. Nú ber u.þ.b.
120 milljónir á milli í framtíðarsamningi og
170 milljónir vegna uppgjörs fyrir árið 2012.“
Þá segir Gunnar það vera mat samnings-
aðila að faglega sé það skynsamlegt að reka
saman sjúkraflutninga og slökkvilið. Og að
skýrsla KPMG hafi verið höfð til hliðsjónar
í samningaviðræðunum.
Varðandi það hvenær hann eigi von á því
að niðurstaða fáist segir hann: „Samkvæmt
síðustu samþykkt stjórnar slökkviliðsins
höfum við tíma til 15. janúar til að klára
málið,“ segir Gunnar Einarsson formaður
samninganefndar stjórnar Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins.