Reykjavík


Reykjavík - 05.01.2013, Blaðsíða 14

Reykjavík - 05.01.2013, Blaðsíða 14
14 5. janúar 2013 Hús þetta ber nafnið Loft-skeytastöðin og tók Reykja-vík radíó til starfa í húsinu 17. júní árið 1918 í samvinnu við Marconi-félagið. Stöðvarstjóri var Frið- björn Aðalsteinsson. Einar Erlendsson húsameistari teiknaði húsið og hafði yfirumsjón með byggingu þess. Húsið var fyrst kennt við Suðurgötu eða Mel- ana en árið 2010 fékk húsið götunúmer og er nú Brynjólfsgata 5. Var stöðin upphaflega hugsuð sem varasamband til útlanda en fljótlega varð aðalhlutverk hennar þjónusta við skip og báta og var það mikil bylting fyrir öryggi sjómanna. Árið 1920 fékk fyrsta íslenska fiskiskipið loftskeyta- tæki og tveimur árum síðar var fyrsti loftskeytamaðurinn ráðinn á íslenskt skip. Eftir því sem lofskeytatækjum fjölgaði í íslenskum skipum varð fljót- lega vöntun á mönnum sem gátu sinnt þessum störfum og var því efnt til nám- skeiðs í loftskeytafræðum. Reykjavík radío fór undir eftirlit hernámsliðsins á hernámsárunum. Reykjavík radíó var starfrækt í hús- inu allt til ársins 1963 en þá gaf Póstur og sími Háskóla Íslands húsið og fluttist öll starfsemi Reykjavík radíó í Gufunes. Er sú starfsemi í Skógarhlíð 14 í dag. Árið 1996 samdi Póstur og sími við Háskóla Íslands um kaup á húsnæð- inu og árið 1998 var Fjarskiptasafn Landsíma Íslands opnað í húsinu. Stjórn Símans færði ríkissjóði húsið og safnið til eignar árið 2005 og var Þjóðminjasafninu falin umsýsla og um- ráð með bæði safni og húsi. Undanfarin ár hefur Loftskeytastöðin einnig hýst safnkost Náttúrminjasafns Íslands. Heimildir: Vefsvæði Símans og greinasafn Morgunblaðsins GLI Segl tákn og MeRki Táknin og hin hulda merking finnast alls staðar í kringum okkur. Segl skipa hafa margs konar merkingu. Þau tákna vindinn og loftið sem og andardrátt sálarinnar. Þá eiga þanin segla að tákna þungun, en einnig óstöðugleika með tilvísun í hin öru skipti vindáttanna. Í hugum kristinna geta seglin einnig táknað komu hins heilaga anda. Heimildir: Signs & symbols. H Ú S G Ö G N Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík Sími: 557 9510 | Vefsíða: www.patti.is Verslun okkar er opin: Virka daga kl. 9-18 Laugardaga kl.11-16 Útsala Útsala Útsala Útsala 30% 60%20% 30% 70% 10% 30% 70%50%40% Verðdæmi: Borðstofustólar 4.900 Tungusófar 75.400 Kommóður 15.000 Höfðagaflar 5.000 Náttborð 5.000 Heilsukoddar Sófasett Púðar Hornsófar Sjónvarpsskápar Borðstofuhúsgögn Rúm Fjarstýringavasar Hægindastólar ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA Þjóðmenningarhúsið kl. 16:00 / laugardagur Operuaríur á nýju ári –Hrafnhildur Árnadóttir, sópran og Matt- hildur Anna Gísladóttir, píanisti Harpa tónlistarhús kl. 17:00 / laugardagur Tónleikar Caput 25/26 í Kaldalóni –verk eftir yngstu kynslóð íslenskra tónskálda Faktorý kl. 22:00 / laugardagur Tónleikar–Of Monsters and Men og Lay Low Þjóðminjasafn Íslands kl. 14:30 / sunnudagur Duo Stemma spila á stokka og steina í tilefni sýningarloka á sýningunni Teikning – þvert á tíma og tækni. Gufunesbærinn kl. 17:00 / sunnudagur Árlega þrettándagleði Grafarvogsbúa KR-heimilið kl. 18:00 / sunnudagur Þrettándahátíð Faktorý kl. 21:30 / sunnudagur Sunnu-djazzinn ReykjavíkuRgetRaunin – svaR Helgin í Reykjavík 5. – 6. janúar 2013 ReykvíkinguR Völva, völva herm þú mér, hvað verður í matinn hér? Reykvíkingur hefur gaman af skringilegheitum þjóðar sinnar og mörgu af því furðulega sem hún tekur upp á. Eitt sem þykir ómissandi um ára- mót, er einhvers konar spá um hvað gerast muni á nýju ári. Í áratugi hefur hin svokallaða völva Vikunnar verið næstum eins og raunveruleg mann- eskja. Svo raunveruleg að Reykvík- ingur var nánast viss um að hún sæti einhvers staðar í hofi, líkt og véfréttin í Delfí og sæi inn í framtíðina. Mörg blöð róa nú á svipuð mið, stórblaðið Reykjavík þeirra á meðal, og birta spá- dóma um hvað nýtt ár beri í skauti sér. Reykvíkingur er sjálfur svo jarðbund- inn og einfaldur að hann á fullt í fangi með að átta sig á hvað er að gerast í núinu, hvað gerist í framtíðinni er al- gjörlega fyrir utan og ofan hans getu og skilning. Þess vegna dáist hann að hinni bók- staflegu framsýni sem birtist í þessum spám. Og hann verður reyndar að hrósa sérstaklega völvuspá Lífsins, sem mun vera einhvers konar fylgitungl Fréttablaðsins. Þar er fullyrt að völvan sé með áratuga reynslu í framsýni, þannig að eitthvað hlýtur að vera að marka hana. Þar er að finna auðvitað, líkt og venja er í þessum efnum, spár um pólitíkina og náttúruhamfarir. En það sem meira er um vert, hún flytur okkur alveg bráðnauðsynlegar og vægast sagt óvæntar og næstum ótrúlegar upplýsingar um fræga fólkið, svo mikilvægar að blaðið er nánast allt lagt undir spádóminn mikla. Eitt af því var að sjónvarpskokkurinn Friðrika Hjördís Geirsdóttir komi með eitthvað nýtt og spennandi matarkyns á árinu. Þetta fannst Reykvíkingu undur og stórmerki. Einhverjir efasemdamenn myndu reyna að halda því fram að þar sem hún hefur lifibrauð sitt af því að kynna gómsætar uppskriftir margs konar sé þetta eitthvað sem búast hefði mátt við og jafnvel reynt að halda því fram að það væri merki um meiri spá- dómsgáfu ef hún kæmi ekki með neina nýja og spennandi uppskrift. En Reyk- víkingur er ekki einn af þeim. Hann er gallharður á því að þarna sé á ferðinni meiri og skýrari sýn inn í framtíðina en áður hefur þekkst. Það eina sem hann hefði viljað fá að vita meira um var hvaða spennandi uppskrift þetta er. Völvan hlýtur að vita það.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.