Reykjavík - 05.01.2013, Page 12
12 5. janúar 2013
FJARNÁM
Skráning á vorönn fer fram 7.-14. janúar
á slóðinni www.fa.is/fjarnam
Grámi hversdagsins
Núna þegar helstu hátíðahöld jóla og nýárs eru yfirstaðin og aðeins þrettándagleðin eftir,
kemur ákveðið spennufall og jafnvel
dapurleiki yfir fólk. Ekki síst þegar
tíðarfarið er eins og það er, rysjótt,
frost og hláka á víxl.
Það er erfitt að ganga um götur og
gangstíga og víðast hvar má sjá papp-
írshólka og rusl, leifar áramótaskot-
eldanna, og horfin eftirvæntingin og
spennan sem þeim fylgdu nýkeyptum.
Dagskíman er skammvinn, en þó
er það huggun að dag er aftur tekið
að lengja, þótt það gerist það hægt að
maður taki ekki eftir því, svona milli
daga.
En hér á síðunni má sjá svipmyndir
af Reykjavík eins og hún lítur út núna,
í þögninni eftir hátíðahöldin.