Reykjavík


Reykjavík - 05.01.2013, Blaðsíða 12

Reykjavík - 05.01.2013, Blaðsíða 12
12 5. janúar 2013 FJARNÁM Skráning á vorönn fer fram 7.-14. janúar á slóðinni www.fa.is/fjarnam Grámi hversdagsins Núna þegar helstu hátíðahöld jóla og nýárs eru yfirstaðin og aðeins þrettándagleðin eftir, kemur ákveðið spennufall og jafnvel dapurleiki yfir fólk. Ekki síst þegar tíðarfarið er eins og það er, rysjótt, frost og hláka á víxl. Það er erfitt að ganga um götur og gangstíga og víðast hvar má sjá papp- írshólka og rusl, leifar áramótaskot- eldanna, og horfin eftirvæntingin og spennan sem þeim fylgdu nýkeyptum. Dagskíman er skammvinn, en þó er það huggun að dag er aftur tekið að lengja, þótt það gerist það hægt að maður taki ekki eftir því, svona milli daga. En hér á síðunni má sjá svipmyndir af Reykjavík eins og hún lítur út núna, í þögninni eftir hátíðahöldin.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.