Reykjavík - 27.04.2013, Qupperneq 10
10 27. apríl 2013
Fullt nafn:
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
Aldur:
39 ára (hef verið það í mjög mörg ár)
Foreldrar:
Björgvin Magnússon fyrrverandi
skólastjóri og Margrét Kristinsdóttir
sjúkraliði og nuddari
Hvert liggja ættir þínar?
Aðallega er ég Reykvíkingur aftur í
ættir
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór?
Leikari, alveg frá því að ég var 7 ára
gömul
Börn og barnabörn:
Mín börn:
Eva, Margrét, Björgvin og Róbert.
Eva á síðan Fannar, Söru, Bjarna og
Viktor Áka. Margrét á Karen, Rakel
og Björgvin Geir. Björgvin á Eddu
Lovísu og Dóru.
Ef þú byggir ekki í Reykjavík, hvar
þá?
Sólheimum. Þar þrái ég að eignast hús.
Í hvað hverfi býrðu?
101 Reykjavík
Hefurðu búið erlendis?
Oft og víða
Stærsti sigurinn:
Sigrarnir eru óendanlega margir
Mesta axarskaftið:
Ótrúlegt en man ekki eftir einu
einasta
Vandræðalegasta augnablikið:
Ég á ótrúlega mörg vandræðaleg
augnablik–allt frá því að gleyma að
taka rúllur úr hárinu á mér yfir í að
kveikja í manni á fyrsta stefnumóti!
Helsta áhugamál:
Leiklist
Ertu tilfinninganæm?
Mjöööööööög
Ertu rómantísk?
Mjöööööööög
Hvað leið er best til að dekra við
makann sinn?
Það fer alveg eftir því hver makinn
er. Ekki satt?
Hvað er það í huga kvenna sem gera
karlmenn aðlaðandi?
Ég veit ekki um smekk annara
kvenna en ég heillast af augum og
höndum og fallegu brosi
Hvað í fari karlmanna gerir konur
fullkomlega afhuga þeim?
Í mínu tilfelli er það húmorsleysi
karla.
Hver er þinn helsti kostur?
Að mér finnst lífið skemmtilegt
En galli?
Stjórnsemi
Stoppar þú í sokka?
Nei
Kanntu á saumvél?
Einu sinni saumaði ég tvö vöggusett
á einum degi. Síðan ekki snert á
saumavél
Skemmtilegasta hlutverk sem þú
hefur leikið:
Enginn leikari held ég getur gert
uppá milli leikhlutverka
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir?
Að hlæja með vinum mínum
Ertu flughrædd?
Nei, á maður að vera það?
Ertu með bíladellu og hvernig bíl
áttu?
Mig langar alltaf í flottan kagga
Er Bibba til í raunveruleikanum?
Já, hún býr í Flórída
Ferðastu mikið?
Vinnu minnar vegna hef ég þvælst
mikið innan lands og utan
Fallegasti staðurinn á Íslandi?
Þeir eru óteljandi
Fallegasti staðurinn í útlöndum?
Ég hef heillast af óendanlega
mörgum stöðum um allan heim
Eftirminnilegur staður?
Sveitirnar í kring um Cambridge í
Englandi heilluðu mig
Ertu hjátrúarfull?
Nei
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Já
Hefurðu farið til spámiðils eða
trúir þú á slíkt?
Ég er alveg viss um að sumir búa yfir
dulrænum hæfileikum.
Hver eldar oftast á heimilinu?
Ég næri fjölskylduna
Uppáhaldsmatur?
Lambahryggur A la Edda Björgvins-
dóttir
Uppáhaldsdrykkur?
Ananassafi – alveg ómótstæðilegur
Áttu þér uppáhalds tónlistarmann
eða tónlist?
Öll sixties tónlist finnst mér æði
Besta bókin?
Þær er margar en Auður mín Jóns
hrærir í hjarta mínu einmitt núna
Uppáhalds leikari?
Ég hef alltaf elskað Anthony Hopkins
óstjórnlega.
Besta útvarpsstöðin?
Gufan
Hvernig er best að undirbúa sig
fyrir að horfa/hlusta á kosningaúr-
slitin?
Undirbúa sig með því að horfa á
Stellu í framboði, til að hámarka
spennuna.
Hvað gerir þú þegar þú ert örg eða
ekki í góðu skapi?
Stilli Elvis í botn!
Evrópusambandið, já eða nei?
Já
Ertu ánægð með meirihlutann í
Reykjavík?
Ef þú meinar þá sem stjórna Reykja-
vík þá er svarið já. Ótrúlega flott fólk
Ertu pólitísk?
Jahá
Fyrirmyndar stjórnmálamaður?
Katrín Jakobs er einhver flottasti
stjórnmálamaður sem við eigum,
Ögmundur er mjög flottur líka. Svo
vil ég fá Þórhildi Þorleifs á þing.
Býrðu yfir skondinni sögu til að
segja okkur?
Var einmitt að rifja upp ferðalag sem
ég fór til Vestfjarða um páskana–ég
var 17 klukkutíma á leiðinni því
ég keyrði svo hægt og var tvisvar
stoppuð af lögreglunni, þeir héldu að
ég væri sofandi!
ER BÍLSÆTIÐ RIFIÐ ?
Viðgerðir á öllum gerðum af bíla-,
mótorhjóla og snjósleðasætum.
Húsbílaklæðningar og öll almenn
bólstrun. Við erum þekktir fyrir
fljóta og góða þjónustu.
Hamraborg 5 kóp, Hamrabrekkumegin S. 544 5750 www.hsbolstrun.is
Formbólstrun
Eignaumsjón er óháður fagaðili þegar kemur að rekstri húsfélaga og rekstrarfélaga – og því frábær lausn fyrir eigendur atvinnuhúsnæðis. Í okkar umsjá
ertu í góðum höndum - við sjáum um fjármálin, fundina, undirbúning framkvæmda og viðhalds og annarra þátta sem þarf að leysa.
Er húsfélagið í lausu lofti ?
»
Vantar óháðan aðila til að annast málefni húsfélagsins eða rekstrarfélagsins ?
Eignaumsjón hf . – Suður landsbraut 30 – Sími 585 4800 – afgreids la@eignaumsjon. is – www.eignaumsjon. is
YFIRHEYRSL
A Edda Björgvinsdóttir leikari í yfirheyrslu:
Hef alltaf elskað Anthony Hopkins óstjórnlega
Skipholti 70 • Sími 553 0003
Nýr Fiskur daglega!