Reykjavík


Reykjavík - 27.04.2013, Qupperneq 14

Reykjavík - 27.04.2013, Qupperneq 14
14 27. apríl 2013 Velferð óháð efnahag Samfylkingin er velferðarflokkur. Við viljum tryggja jöfnuð og velferð óháð efnahag. Á erfiðum tímum þar sem ríkið hefur þurft að skera niður vegna hrunsins höfum við lagt áherslu á að vernda kjör þeirra sem hafa lægstar tekjur. Við höfum tryggt að skattbyrði lágtekjufólks er nú lægri en hún var fyrir hrun. Þannig stjórna jafnaðarmenn. Heilbrigðisþjónusta óháð efnahag er eitt stærsta velferðarmálið. Samfylkingin mun nýta það svigrúm sem er að skap- ast í ríkisrekstrinum til uppbyggingar í heilbrigðismálum. Við höfum náð fram mikilvægum umbótum til jöfnuðar í heilbrigðiskerfinu. Tannlækningar barna Nýr samningur um tannlækningar barna hefur verið undirritaður, sá fyrsti í 21 ár. Framvegis munu öll börn hafa sinn eigin heimilistannlækni sem boðar börn í reglulegt eftirlit og sér um forvarnir og aðrar nauðsynlegar tannlækningar þeirra. Foreldrar greiða einungis komu- gjald sem ákveðið verður með reglugerð. Betri almannatryggingar Fyrsta velferðarmál Samfylkingarinnar eftir kosningarnar verður að leggja fram frumvarp um nýtt almannatrygginga- kerfi. Með nýju kerfi munu greiðslur til ellilífeyrisþega hækka að meðaltali um 25% og skerðingar verða dregnar til baka. Kerfið verður einfaldara og skiljanlegra. Sambærilegar breytingar fyrir örorku- lífeyrisþega eru forgangsmál á næsta kjörtímabili. Afnemum tekjutengingar barnabóta Samfylkingin ætlar að afnema tekju- tengingar barnabóta í skrefum enda eiga öll börn sama rétt til Tekjutenging barnabóta verði afnumin í áföngum enda eiga barnabætur að vera almenn skattaleg aðferð til að jafna skattbyrði barnafólks og þeirra sem ekki hafa fyrir börnum að sjá. Þannig koma þær öllum barnafjölskyldum til góða eins og tíðkast í nágrannalöndunum. Nýr Landspítali Samfylkingin mun leggja ofuráherslu á byggingu nýs Landspítala til að tryggja öryggi sjúklinga, boðlegt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk og til að auka rekstrar- hagræði. Með nýju sjúkrahúsi munu um þrír milljarðar sparast árlega í rekstri en starfsemi sjúkrahússins er í sautján byggingum í dag. Leigjendur fái sama stuðning og eigendur Húsnæðismál eru velferðarmál. Við erum með fullmótaðar tillögur um að stuðningur ríkisins við einstak- linga sé sá sami óháð því hvort fólk býr í leiguhúsnæði eða eigin hús- næði. Frá hruni hefur kostnaður vegna húsaleigu hækkað meira en húsnæðiskostnaður þeirra sem búa í eigin íbúð. Ríkissjórn jafnaðar- manna hefur hækkað húsaleigubætur verulega og þær verða hækkaðar að nýju um mitt ár. Við ætlum að halda áfram á þessari braut og jafna stuðn- ingin að fullu. 2000 nýjar leiguíbúðir Verulegur skortur er á leiguhúsnæði. Þessu verðum við að breyta. Leigj- endur þurfa að geta gengið að sínu húsnæði öruggu til lengri tíma í stað árlegra flutninga sem oftar en ekki eru hlutskipti leigjenda í dag. Sam- fylkingin vill taka á með myndar- legum hætti í þessum málum. Við viljum að leiguíbúðum verði fjölgað um 2000 á næsta kjörtímabili í samstarfi við sveitarfélög og húsnæð- isfélög á borð við Búseta. Þetta myndi leysa brýna þörf fyrir nýtt húsnæði og skapa grundvöll fyrir stórbættan leigumarkað. Ég treysti á að jafnaðarmenn og fé- lagshyggjufólk styðji Samfylkinguna í alþingiskosningunum í dag. Þannig tryggjum við að atkvæði okkar hafi áhrif og stuðli að velferð og jöfnuði í samfélaginu. Belladonna á Facebook Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Mikið úrval af léttum yfirhöfnum Stærðir 38-58 Höfundur er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hvað veistu um borgina þína? Einkarekið Apótek Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Mikilvægar aðgerðir án tafar í þágu fólksins Ég bið fólk að íhuga og spyrja sjálft sig, hvort eitthvað af eftir-farandi kæmi því til góða: 1. Afnám almennrar verðtryggingar og leiðrétting allra vísitölu- tengdra húsnæðis og námslána frá 01.11.2007 eða um allt að 45%+, stimpil og uppgreislugjöld vegna aðgerðanna afnumin og nauðungaruppboðum hjá sýslu- mönnum frestað um tvö ár. Þeir sem að gerðu upp lán sín eftir þennan dag fá hina ólöglegu of- greiðslu endurgreidda. Kostar lítið sem ekkert með aðferð magn- bundinnar íhlutunar Seðlabank- ans og kemst á strax. Ekkert lendir á ríkissjóði. 2. Ný íslensk mynt, stöðugleiki og fastgengisstefna með tengingu við Bandaríkjadal, lægri vextir, lægri verðbólga. Lykillinn að því að geta tekið með festu á snjóhengjum og hrægömmum. Engir samn- ingar út frá veikum eða tilbúnum forsendum. Við munum ráða. för. Kostar lítið. Mikill ávinningur. Kemst á strax. 3. 20% flatir skattar, náð í skrefum á 4 árum frá 01.12.2013. Lág- markslaun lögboðin í fyrsta sinn á Íslandi og verði kr. 240.000 á mánuði til þess að byrja með og skattleysismörk hækkuð í kr 200.000 á mánuði frá 17.06.2013. 4. Tryggingargjald verði lækkað í 3% strax. Afnám tolla og vörugjalda á fatnaði, skóm, lyfjum, stoðtækjum, tölvum og fjárfestingarvörum, ný störf, uppbygging og verslunin inn í landið. Lækkun á bensíni og dísel um 30% strax. 5. Aldraðir og fatlaðir njóti hinna nýju lágmarkslauna. Skerðingar frá 2009 endurgreiddar að fullu. Auðlegðarskatturinn afnuminn. Tekjutengingar og skerðingar tryggingabóta afnumdar með öllu. Lífeyrissjóðum gert skylt að verja 1% af iðgjöldum hvers árs í ný dvalar og hjúkrunarheimili og lagfæra eldri. Lífeyrisréttindi erf- ist. Sjóðsfélagar lífeyrissjóðanna kjósi sér stjórnir þeirra. 6. Kvótakerfið afnumið í núverandi mynd 01.01.2014 og leyfin færð aftur til fólksins. Nýtt kerfi með frjálsum botnfiskveiðum og 1/3 uppsjávarveiðileyfa færð til minni báta og skipa svo þeir komist t.d. á síld og makríl. Framsalog veð- setningar afnumdar. Afgjöld hóg- vær og hvetjandi. Atvinna, líf og uppbygging í sjávarplássunum. Hugrekki og eindrægni Allt þetta og margt fleira, hefur XG- Hægri grænir, flokkur fólksins á stefnuskrá sinni sjá www.xg.is. Þetta er ekki skrumkenndur loforðalisti, heldur öfgalaus, raunsæ og úthugsuð aðgerðaáætlun, sem að flokkurinn ætlar að framkvæma verði hann kos- inn til þess. Engar nefndir, athuganir eða vangaveltur. Það er búið að skil- greina verkefnin. Ef að þú vilt að eitt- hvað af ofangreindu verði framkvæmt fljótt og örugglega, þá verður að gefa Hægri grænum afl til þess. Settu því X við G. Annars verður allt næsta eins og verið hefur. Vilt þú það? Höfundur er Kjartan Örn Kjartansson, varaformaður XG-Hægri grænna, flokks fólksins og í 1. sæti listans í Reykjavík norður Svar:þeir voru teknir úr skólavörðuholti. þar var grjótið klofið og steinarnir hoggnir til.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.