Reykjavík - 12.10.2013, Qupperneq 3
Síðumúla 13 | Sími 569 7000 | miklaborg.isSíðumúla 21| Sími 588 9090 | eignamidlun.is
Þægindi og öryggi eru lykilorðin í hönnun íbúðanna
á Hrólfsskálamel. Þú finnur það allt frá því að þú
leggur bílnum í rúmgott bílastæði í björtum og
hlýjum bílakjallara og þar til þú sest með
kabollann á rúmgóðum svölum.
Íbúðunum verður best lýst sem einbýli í ölbýli.
Fáar, vel skipulagaðar íbúðir í hverjum stigagangi
og fáir um hverja lyftu. Að innan skarta íbúðirnar
mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum. Útsýnið er
einstakt, yfir Reykjanesið um suðurgluggana og
Faxaflóann með allgörðum sínum til norðurs.
Öll þjónusta og verslun er í göngufæri og eitt
fegursta útivistarsvæði landsins innan seilingar.
Grótta er einstakur staður og ómetanlegt að í
jaðri borgarinnar sé hægt að njóta slíkrar
náttúrufegurðar og kyrrðar. Gönguferðir, hlaup
eða hjólatúrar með viðkomu við Gróttu og jafnvel
sjósundi eru nærandi fyrir líkama og sál.
Í gönguarlægð frá Hrólfsskálamel er Sundlaug
Seltjarnarness og líkamsræktarstöð World Class.
Þar er hægt að taka vel á því eða láta þreytuna
líða úr sér í góðum félagsskap.
Í næsta nágrenni eru matvöruverslanir, vínbúð,
bókasafn, heilsugæsla og grunn- og leikskólar.
Miðbær Reykjavíkur er aðeins í nokkurra
mínútna akstursarlægð.
Yst á Seltjarnarnesi er einn fegursti golfvöllur
landsins þótt víðar væri leitað. Aðstaða og
umhverfi er til fyrirmyndar og ekki skemmir fyrir
að golfvöllurinn er fimm mínútna bíltúr frá
Hrólfskálamel. Svona á lífið að vera.
Svona á lífið að vera