Reykjavík - 12.10.2013, Qupperneq 10
10 12. október 2013
Reykjavíkurborg ı Þjónustuver 411 1111 ı www.reykjavik.is
R
ey
kj
av
ík
u
rb
o
rg
o
kt
ó
b
er
2
01
3
Garðeigendur eru hvattir til að klippa trjágróður sem vex
út fyrir lóðarmörk, yfir gangstéttir og stíga.
Höfum í huga:
Umferðarmerki séu sýnileg,
gróður byrgi ekki götulýsingu,
gangandi og hjólandi eigi greiða leið um stíga
og þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um
má gróður yfir stígum ekki vera lægri en 2,8 metrar.
Tökum höndum saman – og hugsum út fyrir garðinn,
klippum trén svo að leiðin sé greið allt árið!
Er leiðin
greið?
R
E
Y
K
J
A
V
Í
K
U
R
B
O
R
G
Bleikur október í 14 skiptið
Það hefur ekki farið framhjá neinum að nú er bleikur október hafinn í fjórtánda skiptið með
Bleiku slaufuna fremsta í fylkingu. Bleik
stemning er um alla borg, byggingar og
mannvirki baðaðar bleikum ljósum-
saman ber myndir sem ljósmyndari
blaðsins tók víða um borgina.
Fólk skartar sínu bleikasta bleika
dressi á Bleika deginum sem haldinn
um allt land í gær. Í næstu viku verður
bleika kvöldið haldið með aðeins öðru
sniði en verið hefur undanfarin ár.
Veitingastaðir um allt land hafa gengið
til liðs við okkur(hvaðað okkur) og
munu fimmtudagskvöldið 17. október
gefa hluta af sínum ágóða til styrktar
Krabbameinsfélaginu. Þá geta lands-
menn lyft sér upp, farið út að borða
með fjölskyldu eða vinum og styrkt
um leið gott málefni.
Um síðustu helgi var fyrsta Bleika
slaufan afhent í Bleika herberginu í
Hörpu en það var Kristján Þór Júlí-
usson heilbrigðisráðherra sem af-
henti fyrstu slaufuna en frá og með
1. október verður slaufan fáanleg um
allt land. Í ár verður átakið með nýstár-
legum hætti því meðfram sölu á slauf-
unni var vakin athygli á málstaðnum
með uppboði á bleikaslaufan.is þar
sem óvæntir hlutir og viðburðir voru
boðnir upp á hverjum degi í 10 daga
frá 2. til 11. október þannig að nú fer
hver að verða síðastur að taka þátt í því.
11.okt er á föstudegi
Bleika Slaufan er tákn Krabba-
meinsfélags Íslands í baráttunni gegn
krabbameini hjá konum. Slaufan í ár
er hönnuð af þeim Ástþóri og Kjart-
ani gullsmiðum hjá Orr. Form slauf-
unnar myndar tákn óendanleikans
sem umlykur steininn í miðju. Hún
minnir okkur þannig á að óendanlegur
kærleikur okkar hvert í annars garð
er dýrmætasta umgjörðin um lífið og
mikilvægi þess að við stöndum þétt
saman þegar erfiðleikar steðja að.
SGK
Barna- og BrandaraHornið
BRANDARAR:
Læknir læknir það tekur enginn eftir mér.
Næsti gjörið þið svo vel.
Einu sinni var maður sem fór útí dýrabúð.
Áttu nokkuð fuglafræ?
Spurði hann afgreiðslumannin.
Já - hvað áttu marga fugla?
Engan en ég ætla að sá fyrir nokkrum.
Nonni: Vitleysingur var leiðsögumaðurinn sem sýndi okkur
minjasafnið.
Mamma: Nú af hverju?
Nonni: Hann sýndi okkur leirker og sagði okkur að þau
væru 3000 ára gömul hann platar mig ekki það er bara árið
2010.
Palli: Af hverju ertu að klappa?
Þetta er ömurlegt leikrit.
Jón: Ég geri það til að halda mér vakandi.
SUDOKO FYRIR KRAKKA
Fengin að láni á vefsíðunni http://www.dailysudoku.com
Barnahornið
Sudoko fyrir krakka
Fengin að láni á vefsíðunni
http://www.dailysudoku.com
Brandarar:
Læknir læknir það tekur enginn eftir mér
Næsti gjörið þið svo vel
Einu sinni var maður sem fór útí dýrabúð
Áttu nokkuð fuglafræ? Spurði hann
afgreiðslumanninn
Já - hvað áttu marga fugla?
Engan en ég ætla að sá fyrir nokkrum.
Nonni: Vitleysingur var leiðsögumaðurinn sem sýndi
okkur minjasafnið
Mamma: Nú af hverju?
Nonni: Hann sýndi okkur leirker og sagði okkur að þau væru 3000 ára gömul hann platar mig ekki það er
bara árið 2010.
Palli: Af hverju ertu að klappa? Þetta er ömurlegt leikrit.
Jón: Ég geri það til að halda mér vakandi.