Reykjavík


Reykjavík - 25.10.2014, Side 8

Reykjavík - 25.10.2014, Side 8
8 25. Október 2014REYKJAVÍK VIKUBLA Ð hverfin Í borginni LaugardaLur Formaður Hverfisráðs Laugardals telur að íbúar mættu kjósa ráðið beint: Hverfisráðin mega vera sjálfstæðari Heiðar Ingi Svansson, formaður Hverfisráðs Laugardals telur að hverfisráð eigi að hafa meira stefnumótunarhlutverk en nú er og að íbúar megi koma með beinni hætti að skipan ráðanna, en að þau séu valin af borgarstjórn. „Ég tel að það þurfi að endurskoða og endurmeta hlutverk og tilgang hverfisráða almennt. Og ég tel að við í Hverfisráði Laugardals eigum að eiga samtal við önnur Hverfisráð í Borginni um það og nýta okkar reynslu til að koma að þeirri stefnumótunarvinnu,“ segir Heiðar Ingi spurður um helstu verkefni ráðsins. Hverfið er heldur stórt, enda þótt það sé kennt við Laugardalinn einan og fyrir aðra borgarbúa vekur nafnið helst hugrenningartengsl við dalinn sjálfan, þekkt íþróttamannvirki og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Hins vegar nær hverfið yfir töluvert mikla byggð og má nefna Tún og Teiga, Læki og Lauganes, Sund, Heima og Voga auk Skeifunnar. Heiðar Ingi Svansson sat í hverfis- ráðinu á síðasta kjörtímabili einnig, en hann er fulltrúi Bjartar framtíðar. Um helstu verkefni ráðsins í hverf- inu segir hann að þau tengist vænan- lega sjálfum Laugardalnum, skipulagi hans og framtíðarsýn. „Ekki bara varð- andi byggð meðfram Suðurlandsbraut heldur líka varðandi framtíðarnýtingu á dalnum sjálfum m.a. hversu mikill hluti af dalnum eigi að vera lokaður inní Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og hversu mikið eigi að vera opinn svæði osfrv.“ Mikilvægt að nýta hverfisskipulagið „Það er verið að vinna Hverfisskipulag fyrir Laugadalinn en á síðasta kjör- tímabili voru drög að því kynnt fyrir okkur. Það er mjög mikilvægt að nýta það tækifæri sem að það skipulags- stig gefur til að koma ábendingum og athugasemdum varðandi þetta á fram- færi. Einnig var verið að kynna fyrir okkur stöðu mála varðandi skipulag á nýju hverfi í kringum Elliðavog sem nefnist Vogabyggð. Það verður mjög spennandi fyrir okkur að koma að málum varðandi þá uppbyggingu.“ Töluverð áhrif hverfisráða „Þrátt fyrir að Hverfisráð hafi sam- kvæmt núverandi fyrirkomulagi, lítil formleg völd þá getum við haft tölu- verð áhrif. Þannig tel ég að það sé mjög mikilvægt að Hverfisráðið sé með í ákvarðantatöku og stefnumótun varðandi margskonar mál en ekki síst er mikilvægt að sinna því hlutverki að miðla upplýsingum til íbúanna. Að vera einskonar tengiliður á milli stjórn- sýslu Borgarinnar og íbúanna í hverf- inu. Hverfisráðið á að vekja athygli íbú- anna á ýmsum hverfistengdum málum sem eru til meðferðar hjá borginni og leggja sitt af mörkum til að upplýsa íbúanna, fræða og leita álits þeirra. Varðandi Laugardalinn sjálfan virð- ist það t.d. vera ansi rík krafa íbúanna að meira heldur en minna svæði af honum eigi að vera opið grænt svæði með ýmiskonar afþreyingu fyrir fjöl- skyldufólk. Þannig tel ég að okkur beri að setja spurningarmerki við allar hugmyndir sem að ganga gegn þeirri megin stefnu.“ Aukið íbúalýðræði „Þarna verðum við að taka mið af því hvað gert var á síðasta kjörtímabili því að það er of stutt liðið á núverandi kjörtímabil til að hægt sé að tilgreina einhver verkefni þar,“ segir Heiðar Ingi, spurður um verkefni sem hverfaráðið hefur tekið þátt í. „En utan við það að miðla upplýsingum til íbúanna og veita umsagnir um fjölmörg hverfatengd mál þá finnst mér ekkert eitt verkefni standa upp úr. Heldur er þetta fjöldi minni verkefna sem skipta kannski mun meira máli fyrir fólkið í hverfinu heldur en eru ekki stór í samhengi við Borgina í heild. Þetta þurfa heldur ekki að vera verkefni sem að Hverfisráðið sjálft átti hugmyndina að heldur miklu frekara hefur það verið mikilvægara að greiða götu íbúanna um ýmis mál sem að þeir vilja koma í framkvæmd. Þess vegna tel ég að verkefnið Betra Hverfi þar sem að íbúunum sjálfum var gefin kostur á því forgangsraða ýmis verk- efnum sé mikilvægasta skref í áttina að auknu íbúalýðræði sem tekið hefur verið í mörg ár. Þar gegnir Hverfisráðið lykilhlutverki og getur m.a. sjálft bætt við verkefnum sem íbúarnir hafa ekki komið fram með sjálfir.“ Dæmi um verkefni Heiðar Ingi bætir því við að ráðið hafi einnig mikilvægu hlutverki að gegna við að kynna mál og upplýsa íbúa „um verkefnin og kosninguna m.a. hafa verið haldnir íbúafundir t.d. sérstakir hugmyndafundir þar sem leitað hefur verið að nýjum verkefnum. Sem dæmi um allan fjöldan af minni verkefnum sem að komið hafa út úr þessu eru t.d. göngustígur um Laugarnestanga, stjörnuskoðunarskilti, heilsustígar og frisbígolfvöllur í Laugardalnum, margskonar bætt úrræði varðandi umferðaröryggismál t.d. bætt lýsing við gangbrautir, lækkun hámarks- hraða osfrv. Einng hefur Hverfisráðið í gegnum forvarnarsjóð úthlutað styrkjum í margskonar verkefni sem snerta bætta lýðheilsu og forvarnir gagnvart börnum og unglingum t.d. varðandi munntóbaksnotkun í íshokkí, sjálflýsandi hjólreiðavesti fyrir nem- endur í 1. bekk og ýmiskonar fræðslu á vegum foreldrafélaga í skólum hverf- isins.“ Mikilvægt fyrir fólk Heiðar Ingi nefnir eitt dæmi sérstak- lega sem hann sé ánægður með að hrint hafi verið í framkvæmd. „Persónulega er ég stoltastur af einu verkefni en það er að hafa komið því í gegn að laga gangstétt nálægt Hrafnistu þar sem gamalt fólk hafði verið að detta og slasa sig vegna ósléttar gangstéttar þar sem að hellur stóðu uppúr. Sérstaklega var þetta afar varhugavert varðandi fólk með göngugrindur. Þetta mál reyndist vera töluvert flókið m.a. vegna hita- veitulagna sem að Orkuveitan ber ábyrgð á voru þarna undir. Búið var að kvarta um þetta í mörg ár en aðkoma Hverfisráðsins gerði útslagið með að þetta var loksins framkvæmd. Lítið mál í stóru samhengi en gríðarlega mikil- vægt fyrir ákveðinn hóp.“ Unnið að sátt Heiðar Ingi segir að skiptar skoð- anir séu meðal hverfisráðsfulltrúa um ýmis mál. „En almennt vinnum við eftir þeirra meginreglu að ná sátt um afstöðu í sem flestum málum og eyðum þ. a. l oft drjúgum tíma til að tala okkur niður á sameiginlega niðurstöðu og hlusta á ólík sjónarmið hvors annars.“ Meira mannlíf - Hvaða verkefni í hverfinu viltu sjá framkvæmt næst, og hvers vegna? „Ég myndi vilja sá niðurstöðu í viðræður sem hafa átt sér stað á milli á milli Reita og Borgarinnar varð- andi uppbyggingu á mannlífstorgi á horni Hrísateigs og Laugalækjar. Þarna hefur myndast mjög mikil- vægur verslunarkjarni fyrir hverfið með Frú Laugu, Pylsumeistaranum og Ísbúðinni í fararbroddi. Þar sem að lóðin er einkalóð getur Borgin ekki komið beint að þessari upp- byggingu nema með samkomulagi við fasteignaeiganda og rekstraraðila. Þarna hefur Hverfisráðið gegnt lyk- ilhlutverki og verkefnið er mikil- vægt vegna þess að þetta hafa verið ítrekaðar óskir íbúanna sem komið hafa fram m.a. í Betri Hverfi og á íbúafundum.“ Íbúar hafi meira um málin að segja Heiðar Ingi segir enga spurningu um það í sínum huga að íbúar eigi að hafa meira um hverfið sitt að segja: „Ég tel að það sé afar mikilvægt að halda áfram og þróa íbúalýðræði enn frekar út frá Betri Hverfi verkefninu og nýta sér reynsluna af því til að útvíkka það og stækka. - Hvernig viltu koma því til leiðar? „M.a. með því að efla Hverfisráð enn frekar, gera þau sjálfstæðari og að þau hafi meira vægi varðandi stefnumótun um málefni hverfisins. Þau þurfa að koma fyrr að málum og eiga meiri þátt í að móta stefnuna heldur en að vera umsagnaraðilar um mál sem þegar er búið að ákveða eða setja í farveg. Um leið þarf að tengja Hverfisráðin betur íbúum hverfsins og veita þeim beinaa aðild að þeim t.d. með því að ákveðnir fulltrúar eða jafnvel formaður verði kosnir af íbúunum með beinni kosningu frekar en að þeir séu tilnefndur af Borgarstjórn.“ Íbúasamtök Laugardalsins hafa verið ákaflega virk í sínu starfi og undanfarin ár staðið fyrir gríðarlega vel sóttum útimarkaði. Þessi mynd er af markaðnum í fyrra. „Ég tel að það sé afar mikilvægt að halda áfram og þróa íbúðalýðræði,“ segir Heiðar Ingi Svansson, formaður Hverfisráðs Laugardals.

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.