Reykjavík


Reykjavík - 25.10.2014, Qupperneq 12

Reykjavík - 25.10.2014, Qupperneq 12
JEPPADEKK Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 www.arctictrucks.is Vönduð og endingargóð vetrardekk sem koma þér örugglega hvert á land sem er Flottar kökur í afmælið • Dóra og Diego • Skylanders • Bratz • Spiderman • Star Wars • Hulk • Disney prinsessur • Monster High • Tísku Barbie • Litla hafmeyjan • Strumparnir og margt fleira Skoðið úrvalið! Iðnbúð 2 Garðabæ 565 8070 okkarbakari.is facebook.com/okkarbakarí 25. Október 201412 REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Vopnaburður lögreglu hefur verið ræddur á Alþingi: „Nauðsynlegt að hinir þjóð- kjörnu fulltrúar á Alþingi komi að þeirri ákvörðun“ Það hefur vakið mikil viðbrögð úti í samfélaginu að upplýst var um að lögreglan eignaðist 150 hríðskotabyssur. Fram hefur komið að rætt sé um að slík vopn eigi að vera til taks í lögreglubílum. Allsherjarnefnd Alþingis fjallaði um málið í vikunni og hefur verið óskað eftir sérstakri umræðu um málið á Alþingi. Þessi mál hafa ekki mikið verið rædd undanfarin ár, enda þótt starfsaðstæður og launakjör lögreglu sem og framkoma hennar við almenna borgara, t.d. við einstakar handtökur og mótmæli hafi oft verið rædd í samfélaginu, í blöðum og á bloggum. Í nóvember árið 2006 fóru fram um- ræður utan dagskrár á Alþingi, þar sem vopnaburður lögreglumanna var ræddur sérstaklega. Hér verða birtar glefsur úr þeirri umræðu. Þórunn Sveinbjarnardóttir, Samfylkingu „Burt séð frá um- ræðunni um ör- yggisbúnað lög- reglumanna er ljóst að fari lögreglan að vopnbúast munu glæpamennirnir gera það líka. Það skapar hættulegra og ofbeldisfyllra samfélag í stað þess að veita borgur- unum betri vernd, og menn verða að horfast í augu við það. Menn verða líka að svara því hvaða vanda auk- inn vopnabúnaður lögreglu eigi að leysa ef af slíku yrði. Hæstvirtur for- seti. Það hefur komið fram, m.a. hjá framkvæmdastjóra Landssambands lögreglumanna, að landssambandið er ekki meðmælt því að lögreglan vopnist, til þess höfum við sérsveitina. […]Það er nauðsynlegt að hváttvirtir þingmenn ræði það hér við þessa um- ræðu og væntanlega nánar í störfum þingsins í vetur hvort einhver vilji sé fyrir því að fara inn á þessa braut hér á landi, eða ekki, og hvaða aðgerðir það kallar á eða hvort við viljum halda í gildi þess — hið menningarlega og siðferðislega gildi þess, vil ég halda fram — að hafa vopnlausa lögreglu- menn á Íslandi.“ Björn Bjarnason, Sjálfstæðisflokki, dómsmálaráðherra „Það hefur lengi verið ríkjandi stefna íslensku lögreglunnar að l ö g r e g l u m e n n séu óvopnaðir við almenn lög- gæslustörf og hefur engin breyting orðið á þeirri stefnu þrátt fyrir vaxandi fjölmiðla- umræðu um alvarleg mál þar sem lögregla hefur þurft að yfirbuga vopn- aða einstaklinga. Það er skoðun mín að ekki sé ástæða til að hverfa frá þeirri meginstefnu að hin almenna lögregla í landinu sé óvopnuð við dagleg störf. Þessi mál eru reglulega til umræðu hjá lögregluyfirvöldum enda mikilvægt að lögreglan sé sjálf lykilþátttakandi í umræðunni þar sem um starfsöryggi lögreglumanna er að ræða.“ Kolbrún Halldórsdóttir, Vinstrihreyfingunni-grænu framboði „Ég er í sjálfu sér ánægð með að heyra hæstvirtan dómsmálaráðherra lýsa því hér yfir að ekki sé ætlunin að hverfa frá þeirri meginreglu að lögreglan á Íslandi sé óvopnuð við störf sín. Það skiptir okkur verulegu máli að þeirri stefnu sé framfylgt enda vitum við það af rannsóknum sem gerðar hafa verið í nágrannalöndum okkar að ef hin al- menna lögregla býst vopnum er voðinn vís. Þá kallar hún á meira ofbeldi. Það hafa finnskar rannsóknir sýnt fram á og Finnar hafa verið að gera átak hjá sér í að reyna að minnka notkun skotvopna hjá almennri lögreglu. Við erum því algerlega með það á hreinu að það þarf ekki og á ekki að að fara inn á þá braut. Hins vegar skilur maður að lög- reglan, sem í auknum mæli þarf að takast á við ribbalda og ofbeldisseggi við störf sín, þurfi á því að halda að hafa einhvern öryggisbúnað til taks hjá lögregluembættunum. Hér þarf að sjálfsögðu að fara bil beggja í þessum efnum. En það er auðvitað alveg klárt að við höfum ákveðna sérstöðu sem við þurfum að varðveita. Hin almenna lög- gæsla á Íslandi á að fara fram án þess að lögreglan þurfi að vera vopnum búin.“ Dagný Jónsdóttir, Framsóknarflokki „Varðandi vopna- burð almennra lögreglumanna þá kalla þeir sjálfir ekki eftir þeirri breytingu. Lög- reglumenn hafa ekki haft frum- kvæði að því og það er mikilvægt að staðan haldist þannig að til þess þurfi ekki að koma. Hvorki lögreglumenn né glæpamenn almennt ganga með skotvopn þó að auðvitað séu sorglegar undantekningar á því, þ.e. í hópi glæpa- manna. Það verður að haldast þannig. Að sjálfsögðu er ekkert útilokað í þessum málum og ef þetta mundi þróast til verri vegar yrði að taka á því.“ Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum „Sérsveitin er góð svo langt sem hún nær en það má spyrja sig hvort hún dugi alltaf til. Það má spyrja þeirrar spurningar hvort ástæða sé til að vopn séu til staðar á lögreglu- stöðvum víða um land sem grípa mætti til eftir ákveðnum reglum ef í harðbakkann slægi. Þarna er ég nátt- úrlega fyrst og fremst að hugsa um öryggi borgaranna og líka um öryggi lögreglumanna. Að lögreglumenn geti þá brugðist við aðstæðum sem kynnu að koma upp með mjög skömmum fyr- irvara og varið hendur sínar og um leið varið borgarana. Ég ætla ekki hér og nú að taka afstöðu til þess hvort þetta eigi að gera en ég tel að við eigum að skoða þessi mál með opnum huga. Við verðum líka jafnframt að hafa í huga að vopnaburður lögreglu mun sennilega kalla á það að glæpamenn vígvæðist einnig á móti. Þetta er því mjög erfitt og vandmeðfarið mál.“ Eiríkur Jónsson, Samfylkingu „Það sem ég vil hins vegar leggja sérstaka áherslu á er nauðsyn þess að Alþingi komi á einhvern hátt að þessum ákvörðunum af því að Ísland hefur verið, a.m.k. lengst af, friðsöm og vopnlaus þjóð og mikil þjóðarsátt hefur ríkt um það. Ef ætl- unin er að gera breytingar á þessu, sem vel að merkja liggur fyrir tillaga um, þá er nauðsynlegt að hinir þjóð- kjörnu fulltrúar á Alþingi komi að þeirri ákvörðun. Það má hreinlega ekki gerast að slík aukin vígvæðing hér á landi laumi sér inn bakdyramegin án fullnægjandi umræðu á þjóðþinginu og í andstöðu við þjóðina.“ Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki „Við fylgjum þeirri meginstefnu sem ráðherrann hefur kynnt hér að al- menna lögreglan sé ekki vopnuð. Það er sama stefna og fylgt er í Noregi og Bretlandi til að mynda. Það stendur ekki til að breyta því.“ Mynd: Wikimedia Commons.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.