Reykjavík


Reykjavík - 25.10.2014, Blaðsíða 14

Reykjavík - 25.10.2014, Blaðsíða 14
14 25. Október 2014REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Allir þurfa hjarta Í flestum bæjum, þorpum og hverfum í veröldinni, þar sem byggð er þétt, verða til einhvers konar samkomustaðir fyrir fólkið í nágreninu. Oftar en ekki verða slíkir staðir að hjarta hverfisins. Stundum þjóna kirkjur eða torg þessu hlutverki en víðast eru þetta barir, veitingastaðir eða kaffihús. Ísland er hins vegar að vissu leyti undantekning vegna þess hversu hér er dreifbýlt og borgarmyndun í raun komin stutt á veg. Víða um land eru þó alls kyns bryggjukaffistaðir en það sem hins vegar vantar í flesta bæi og hverfi eru lítil hverfiskaffihús sem opin eru frá morgni til kvölds og flestir úr nágrenninu koma á nokkrum sinnum í viku. Samkomustaður Jafnvel þótt fjöldi kaffihúsa hafi sprottið upp síðustu ár í miðbæ Reykja- víkur og miklu víðar, eru fæst þeirra hverfiskaffihús. Margir þeir sem matar- blaðamaður hefur rætt þessi mál við, telja að erfitt sé að reka svoleiðis staði og benda benda á mörg sorgleg dæmi máli sínu til stuðnings. En til er fólk sem hefur þó enn trú á þessari hug- mynd – fólk sem telur að samkomu- staður sé hverju samfélagi nauðsyn. Í byrjun mánaðarins var opnað nýtt kaffihús á móts við Melabúðina og Vesturbæjarlaugina í Reykjavík. Það er hugsað sem svona staður, miklu frekar samkomustaður en kaffihús, segir Mar- grét Marteinsdóttir , vertinn á Kaffihúsi vesturbæjar. Heiðarlegt kaffihús Það sem af er hefur gengið vel og þegar matarblaðamaður leit inn eitt síðdegið á dögunum var nánast fullt út úr dyrum. Setið var við öll borð og fólk skrafaði og sötraði kaffi eða maulaði eitthvað góðgæti. Margrét segir að viðtökurnar hafi farið fram úr björt- ustu vonum. Allt frá því að opnað var 6. október, hafi verið svona mikið að gera. „Maður heyrir og sér á fólki að allir eru ofboðslega þakklátir fyrir að fá nú loksins hverfiskaffihús í Vestur- bæinn,“ segir Margrét. „Það eru strax komnir fastakúnnar og ég held að það megi þakka því að við reynum að vera heiðarlegt kaffihús.“ Gott kaffi og einfaldur matur Með þessu á hún við að maturinn er einfaldur, kaffið er gott og það eru engin látalæti eða stælar. Þetta er hverfiskaffihús, á að vera það og er er það. Umhverfið er afslappað, andrúms- loftið gott, þjónustan til fyrirmyndar og matseðillinn einfaldur en fjölbreyttur, hægt er að fá alls kyns kaffi, bakkelsi og mat. Matarblaðamaður er sérstak- lega hrifinn af því að hafa vínilplötu- spilara í veitingarýminu, þar sem gestir geta valið tónlist og skipt um plötu. Á matseðlinum má meðal annars finna þrjár tegundir af hafragraut, bleikju og harðfisk með smjöri. „Við erum líka ofboðslega stolt af grænmetisborgar- anum okkar“ segir Margrét. Frábær „veggie“ borgari Matarblaðamaður ákvað að láta slag standa og prófa hann, enda ham- borgarar af öllu tagi hans ær og kýr. Grænmetisborgarinn á Kaffihúsi Vest- urbæjar er í einu orði sagt frábær! Gott og safaríkt buffið með chili og frábærri sósu virka saman sem einstaklega góð heild. Þetta er besti grænmetisborgari sem matarblaðamaður hefur smakkað – og þeir eru ekki fáir! Til að kóróna allt þetta er kaffið líka mjög gott. Grænt og gott Kaffihús Vesturbæjar er líka grænt. Notað er lífrænt eða vistvænt hráefni þar sem það er hægt, afgangar fara í safnhaug og hvergi er að sjá plast eð bréfservéttur. Inni á snyrtingunum eru handklæði og tauservéttur og glerglös gera pappann óþarfan. Þetta mættu aðrir veitingastaðir hugsa um. Mar- gréti og félögum hennar hefur tekist að blanda hinu hárréttu uppskrift, góður matur, lipur þjónusta lærðra kaffibarþjóna, vinalegt andrúmsloft og afslöppuð stemming, gera ferð á Kaffihús Vesturbæjar nánast að and- legri upplifun. Verður vonandi fyrirmynd Fleiri mættu taka sér þetta skemmtilega litla kaffihús til fyrirmyndar. Staðurinn veit sjálfur hvað hann er . . . hann er vissulega heiðarlegur. Það allra besta er þó að svo virðist sem tekist hafi að sanna að hverfiskaffihús geti gengið. Varla er það svo að Vesturbærinn, eins góður og hann er, sé svo einstakur að ekki sé hægt að gera svipaða hluti í öðrum hverfum. Matarblaðamaður hvetur fólk í öðrum hverfum til að feta í fótspor Vesturbæinga og opna heiðarleg hverfiskaffihús ... og gera þau að miðstöð og hjarta hverfisins. Mikið yrði höfuðborgarsvæðið nú skemmti- legt ef það gengi eftir. Einkarekið Apótek Lágt lyfjaverð - góð þjónusta www.eignaumsjon.is S. 585 4800, Suðurlandbraut 30. Aðalfundur framundan? Heildarlausn í rekstri húsfélaga. Heildarlausn í rekstri húsfélaga. „Maður heyrir og sér á fólki að allir eru ofboðslega þakklátir fyrir að fá nú loksins hverfiskaffihús,“ segir Margrét Marteinsdóttir. matarsÍða svavars Svavar Halldórsson svavar@islenskurmatur.is

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.