Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Qupperneq 1
33. árg. / 10. tbl. / Vestmannaeyjum 9. mars 2006 / Verð kr. 200 / Sími 481-1300 / Fax 481-1293 / www.eyjafrettir.is
rENTRUM
s. 481-1 630
Leikfélagið og
Framhaldsskólinn:
Nunnulíf
Leikfélag Vestmannaeyja æfir nú
leikritið Nunnulíf en það verður
frumsýnt 18. mars. Laufey Brá
Jónsdóttir leikstýrir verkinu sem
einkennist af söng og gleði en
leikritið er sett upp í samvinnu
við Framhaldsskólann í Vest-
mannaeyjum.
Ásta Steinunn Ástþórsdóttir,
gjaldkeri LV, sagði leikgerðina
setta upp eftir fyrstu kvikmynd-
inni um Sister Act. „Við kjósum
að kalla leikgerðina Nunnulíf en
að þessu verki koma á milli 25 til
30 leikarar, þar af eru 14 til 15 í
nunnuhlutverkum og 7 til 8 í
karlhlutverkum.
Leikstjóri er Laufey Brá
Jónsdóttir og Helga Jónsdóttir
hefur æft „nunnukór" með leik-
urum. Þetta er í þriðja skipti sem
hún aðstoðar okkur og það skiptir
miklu máli því hún er metnaðar-
full. Hún kemur til með að styrkja
kórinn mikið því verkið byggist
mikið á söng og söngatriðum.
Þetta er mjög lífleg sýning sem
fjallar um konu sem er í hálf-
gerðri vitnavemd í klaustri og
hefur vægast sagt mikil áhrif á líf
nunnanna.“
Ásta Steinunn sagði leikara hafa
sótt leiklistarnámskeið eftir
áramótin og að Nunnulíf sé unnið
í samvinnu við FIV. „Hópurinn er
búinn að æfa í átta vikur og á
endanum smellur þetta allt saman
með hugmyndaflugi og þraut-
seigju. Meirihluti leikara er ungt
fólk en við emm alltaf að leita að
eldra fólki því við viljum hækka
meðalaldurinn í leikhúsinu. Það
er eins og eldra fólk sé feimnara
við að koma til liðs við okkur en
við viljum endilega fá fólk á
öllum aldri. Því meiri breidd því
betra, “ sagði Ásta Steinunn.
Fimm í
Ungfrú
Suðurland
Á föstudaginn verður haldin á
Selfossi keppnin um Ungfrú
Suðurland og eiga Eyjamenn
fimm fulltrúa í keppninni að
þessu sinni.
Eyjastúlkur náðu frábærum
árangri í fyrra þegar þær röðuðu
sér í þrjú efstu sætin. Nú er spum-
ing hvað verður en keppendur frá
Eyjum em: Birgitta Osk Rúnars-
dóttir, Irena Lilja Haraldsdóttir,
Kristín Alda Jónsdóttir, Sara
Sigurðardóttir og Sigrún Bjama-
dóttir.
BAKKAFJÖRULEIÐANGUR Lóðsins. EKKI var langt í fjöruna þegar komið var á þann stað sem ferjuhöfnin verður.
Eyjólfur Guðjónsson kannaði aðstæður við Bakkafjöru
Hann er ennþá efins
Eyjólfur Guðjónsson, skipstjóri á
Gullbergi VE, hefur lýst yfir sínum
efasemdum um ferjulægi í Bakka-
fjöru en hefur kynnt sér málið ítar-
lega á síðustu misserum. Hann var
einn þeirra sem fór með Lóðsinum í
síðustu viku að kanna aðstæður.
Áður hafði hann heimsótt höfuð-
stöðvar Siglingastofnunar ásamt
bæjarfulltrúum, þingmönnum og
sveitarstjórnarmönnum á Suður-
landi þar sem líkan stofnunarinnar
var kynnt sem og skýrsla um ferju-
lægi í Bakkafjöru.
„Eg er ennþá efins. Það á eftir að
gera heilmiklar rannsóknir áður en
menn geta sagt eitthvað ákveðið. Eg
efast í sjálfu sér ekki um að þetta sé
hægt en tel að þetta sé spurning um
frátafir og kostnað. Þeir lögðu af
stað með kostnað upp á 3,8 til 4,2
milljarða. Eins gefa þeir sér for-
sendur um stærð, breidd og djúp-
ristu skips en djúpristan er það sem
takmarkar þetta."
Aðspurður um ferðina með
Lóðsinum sagði Eyjólfur að þetta
hafi verið skemmtisigling í góðu
veðri. „Eg hefði persónulega viljað
fara í verra veðri og sjá aðstæður þá.
Eg er sannfærður um að þá hefðum
við ekki farið svona innarlega eins
og við gerðurn."
Eyjólfur sagði að það hafi komið
sér á óvart að mælingar sýndu að
aðeins var 4,2 metra dýpi niður á
sandrifið. „Það er alveg Ijóst að ef
þessar mælingar verða viðvarandi
þá geta menn einfaldlega gleymt
þessu. Þá eru allar hinar rann-
sóknirnar til einskis."
Dýptarmælingar hafa ekki farið
fram eins oft og samningar
Siglingastofnunnar við Vestmanna-
eyjahöfn kveða á um og ljóst að þær
tafir munu seinka verkefninu um-
talsvert. í gögnum Siglingastofn-
unar er gert ráð fyrir sex til sjö
metra dýpi niður á rifið.
Hann gerir einnig athugasemdir við
mælingar Sigurbjörns Guðmunds-
sonar skipstjóra úr Grindavík.
„Hann var alltaf þama í blíðu og
eina athugasemdin sem hann gerir
er að það hafi verið þungur sjór að
sunnan á svæðinu. Það em að mínu
viti engin vísindi. Þarna em oft
suðvestan sex til sjö vindstig og
meira þannig að það kemur engum
á óvart. Þá er spurning hvort menn
sitja í sínum flugvélastólum í þrjá
tíma til Þorlákshafnar eða snúi við
aftur til Eyja og komist ekki leiðar
sinnar.“
Eyjólfur er ósáttur við umræðuna
um samgöngumál Eyjamanna og
telur hana mjög dapra. „Maður
heyrir það að áætlanir og rann-
sóknir vegna Bakkafjöru hafí
kostað 80 milljónir og ef það er rétt
að það sé búið að eyða tuttugu
milljónum í rannsóknir á göngum
til þess að blása þau út af borðinu þá
finnst mér það einfaldlega ekki rétt.
Það var lagt af stað með þrjá
valkosti, göng, ferjulægi og nýjan
Herjólf."
Honum finnst ekki eðlilegt að það
komi fyrst skýrsla upp á jarðgöng
sem kosta 38 milljarða og síðan er
sú tala einfaldlega tvöfölduð í
annarri skýrslu. „Menn voru volgir
eftir fyrri skýrsluna um að þetta
væri þjóðhagslega hagkvæmt, sam-
kvæmt útreikningum og þegar það
liggur fyrir er pöntuð ný skýrsla,
talan tvöfölduð og það talið duga til
að þagga niður í Eyjamönnum.
Menn hljóta að minnsta kosti að
þurfa að klára rannsóknir áður en
menn flauta hlutina af.“
Skemmtun sem
aldrei klikkar
Þær gerast ekki betri skemmt-
anirnar í Eyjum en árshátíðir
grunnskólanna.
| BLS. 14 og 15
Frábær
| BLS. IQog 11
námsárangur
Hjalti Jónsson hefur náð góðum
árangri í sálfræðinámi í Dan-
mörku.
TM-Öryggi
fyrir fjölskylduna
www.tmhf.is
Sameinaðu allar tryggingar á
einfaldan og hagkvæman hátt.
'TM
ÖRYGGI
Bílaverkstæðið Bragginn s.f. Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð Sími 481 3235 g sprautun 25
Réttingar o Sími 481 15.
Aætlun Landsflugs
gildir til 15. mai
frá RVK frá VEY
mán-fös 07:30 08:05
mán/mið-sun 12:00 12:45
mán-sun 16:45 17:30
Kynntu þér nettilboðin á
www.flugfelag.is
f Landsflug
® 481 3300 / 570 3030