Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Side 4
4
Frcttir / Fimmtudagur 9. mars 2006
EYIAMAÐUR VIKUNNAR
Væri til í kaffi og kleinur með Jesú
Árshátíðir gmnnskólanna fóm fram
í síðustu viku og að vanda voru
skemmtiatriðin gríðarlega vel
heppnuð. Einn drengur var meira
áberandi en aðrir í Bamaskólanum
og má segja að hann hafi verið allt í
öllu þar og sló rækilega í gegn. Það
var Hjalti Pálsson og er hann
Eyjamaður vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Hjalti „Enok“ Pálsson.
Fæðingardagur: 3. febrúar á því
herrans ári 1990.
Fæðingarstaður: 3. hæð í Sjúkra-
húsi Vestmannaeyja (fæðingardeild).
Fjöiskylda: Mútta, Pabbi og tvö
systkini.
Draumabfllinn: Eitthver kaggi sem
virkar sem veiðistöng á tjeddl-
ingamar.
Uppáhaldsmatur: Eitthvað með
góðu bragði t.d. hamborgarahryggur
Versti matur: Klárlega allt sem
pabba finnst gott.
Uppáhaldsvefsíða: Ætli það sé ekki
fotbolti.net og b2.is.
Hjalti Pálsson
er Eyjamaður vikunnar.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Gleðisveit Guttorms og Arctic
Monkeys.
Aðaláhugamál: Bútasaumur,
Knapadráttur og Traktorar.
Hvaða mann/konu myndir þú
helst vilja hitta úr mannkyns-
sögunni: Jim Carrey og það væri
ekki amalegt að komast í kaffi og
kleinur með Jesú.
Fallcgasti staður sem þú hefur
komið á: Herbergið mitt (minnir
mann óneitanlega mikið á tjemóbyl
á góðum sumardegi).
Ertu hjátrúarfullur? Thjaaa...
svona stundum.
Uppáhaldsíþróttamaður eða
íþróttafélag: ÍBV, Man Utd. Og
Axel Jóhann í fótbolta, það er fátt
skemmtilegra en að horfa á hann.
Stundar þú einhverja íþrótt:
Handbolta.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Horfi
voða lítið á sjónvarp en ætli það séu
ekki bara fréttir og íþróttir.
Hvernig fannst þér árshátíðin
heppnast? Bara unaðslega.
Hvað tók undirbúningurinn
langan tíma? Um það bil viku.
Hvað stóð upp úr? Leikritið sem
var mjög gott þetta árið.
Eitthvað að lokum: Gauti....það er
líf eftir meistaradeildina.
N 1
x?- n/v
t p y " y
MATGÆÐINGUR VIKUNNAR
Kjúklingaréttur
og frönsk súkkulaðikaka
Irís, kœrar þakkir fyrir úskorunina.
Eg œtla að bjáða upp á mjög
einjaldan, fljótlegan og góðan
kjúklingarétt. Þar sem þessi réttur
er svo léttur í maga er nauðsynlegt
að liajá eftirrétt og fylgir því með
uppskrift af franskri súkkulaði-
köku.
Auðveldur og
fljótlegur
kjúklingaréttur
Kjúklingabringur
Rucola salat
Tómatar
Rauðlaukur
Mangó ávöxtur
Instant núðlur
Möndluflögur (má sleppa)
Sesamfræ
Olívuolía
Soyasósa
Basalmic edik
Sykur
Sweet hot chillicósa
Byrjið á að setja rucola grænmeti í
botnáformi. Skerið niður tómata
og rauðlauk og setjið ytlr. Því næst
er mango ávöxtur skorinn í bita og
settur yfír. Látið bíða.
Kryddlögur:
1/2 bolli olía
1/4 bolli basalmic edik
2 msk. sykur
2 msk. soyasósa
Þetta er soðið í potti í 1 mínútu og
hrært vel í á meðan, síðan kælt.
Setjið olíu á pönnu og hitið. Því
næst eru settar instant núðlur (t.d.úr
súpupakka) án krydds á pönnuna
og steiktar létt. Næst em settar
möndlufíögur og þær steiktar með.
Að síðustu er bætt út í sesamfræi og
það látið vera stutta stund. Þetta er
kælt og kryddlögurinn settur út í
þetta þegar það hefur kólnað. Hellt
yfir grænmetið.
Kjúklingabringur skomar í strimla
og léttsteiktar á pönnu. Sweet hot
chillisósu er hellt yfir.
Kjúklingurinn er færður af
pönnunni og dreift yfir grænmetið.
Rétturinn er kaldur að hluta, aðeins
kjúklingastrimlamir ofan á eru
heitir. Borið fram með hrísgrjónum,
brauði og vel kældu hvítvíni að
eigin smekk.
Frönsk súkkulaðikaka
Botn:
2 dl sykur
200 gr smjör
200 gr suðusúkkulaði
1 dl hveiti
4 stk. egg
Þeytið eggin og sykurinn vel
saman. Bræðið smjörið og
súkkulaðið saman við
vægan hita í potti. Blandið hveiti
saman við eggin og sykurinn.
Bætið bráðnu
súkkulaðinu og smjörinu að lokum
varlega út í deigið. Bakið í vel
Rut Haraldsdóttir
er matgæðingur vikunnar
smurðu
tertuformi (ath. ekki lausbotna) við
170 gráður í 30 mínútur.
Súkkulaðibráð (má sleppa og strá
þá flórsykri yfír kökuna)
150 gr suðusúkkulaði
70 gr smjör
2 msk. síróp
Látið allt saman í pott og bræðið
saman við vægan hita. Kælið
bráðina svolítið og berið hana síðan
á kökuna. Kakan á að vera blaut í
miðjunni. Gott að bera hana fram
með rjóma eða ís og jafnvel
betjum.
Ég ætla að halda áskoruninni innan saumaklúbbsins og varpa henni alla leið norður til Akureyrar
til hennar Heggu Þórhalls sauniaklúhbsvinkonu. Ég veit af eigin raun að hún verður ekki í
nokkrum vandræðum með þetta.
Gamla myndin
Ekki eru til neinar upp-
lýsingar um myndina hér
til hliðar á Ljós-
myndasafni bæjarins en
þeim sem hafa upplýs-
ingar er bent á netfangið:
ljosmyndasafn@vest-
mannaeyjar.is. Eins er
hægt að hringja inn
upplýsingar í síma 481-
1184.
Atthagaspil tileinkað
sögu Vestmannaeyja
Astrid Öm Aðalsteinsson hefur verið
í Eyjum undanfama daga að kynna
fyrirhugaða útgáfu sína á átthagaspili
með spurningum frá Vestmanna-
eyjum. Segir hún að viðbrögð
fyrirtækja séu oftast góð og vonast
hún til að ná nógu mörgum með sér í
verkefnið til þess að það geti farið af
stað á fullum krafti.
Átthagaspilið hefur áður komið út
l'yrir Vopnaíjörð og Hérað og ætlunin
að þriðja spumingaboxið verði tengt
Vestmannaeyjum. Fleiri staðir eru í
vinnslu, til dæmis Hafnarfjörður.
Astrid segir spilið unnið nær alfarið af
Vestmannaeyingum og hefur hún
fengið þá Daníel Steingrímsson og
Sigurgeir Jónsson með sér í lið.
Hún þarf fyrirtækin í bænum með sér
í verkefnið og í staðinn em spil tengd
fyrirtækjunum ásamt lógói og jafnvel
ljósmyndum. Spilið er byggt upp á
spumingum úr sögu sveitafélagsins og
lil að mynda verða spurningar hér
tengdar Tyrkjaráninu og Heima-
eyjargosinu. Hún segir það draum
sinn að fá enn fleiri aðila inn í spilið
með sér en til þess þurfi hún að virkja
heimamenn á hverjum stað. „Ég er
sjálf lesblind. Ég sé allt í myndum og
fæ þannig hugmyndir. Þessi hugmynd
kviknaði þannig og ég fór af stað á
Vopnafirði og síðan hefur þetta
stækkað hægt og rólega. Nú vilja
Vopnfirðingar til dæmis fara að fá
nýjar spumingar þar sem þessar em
orðnar nokkurra ára gamlar," sagði
Astrid og bætti við að hugmyndin
væri jafnvel þar að tengja þetta
skólastarfinu en það væri ekki enn
komið í framkvæmd. Hún segir spilið
ASTRID með spilið góða sem allir
Eyjamenn ættu að hafa gaman af.
seljast vel á Vopnafirði og á Héraði og
eigi von á því að Eyjamenn taki því
einnig vel. „Ég hef fengið heimamenn
til að skrifa allan textann og vonandi
verður í framtíðinni hægt að uppfæra
spurningamar reglulega. Þetta er dýrt
í framleiðslu, leikspjaldið sjálft er
fjöldaframleitt enda sama spjald fyrir
alla spumingaflokka en spumingar
fyrir hvert hérað eða hvem stað em
prentaðar í minna upplagi."
a döfinni
í vikunni
föstudagur
Hljómsveitin Vítamín á Lundanum.
föstudagur
Úrslit í Tvistmótinu í billjard í Kiwanis.
laugardagur
Hljómsveitin Vítamín á Lundanum.