Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Page 6
6
Fréttir / Fimmtuda.gur 9. mars 2006
Á föstudaginn fóru full-
trúar Siglingastofnunar,
bæjarfulltrúar og hafn-
arstjórnarmenn í sigl-
ingu með Lóðsinum að
Bakkafjöru þar sem
gert er róð fyrir að
byggð verði ferjuhöfn
fyrir Vestmannaeyjar,
sé það mögulegt.
Veður var einstaklega
gott og nónast sléttur
sjór. Siglingin tók um
hálftíma en fyrst var
komið að öldudufli sem
er á 25 faðma dýpi utan
við hlið í rifi sem sand-
urinn myndar rétt utan
við ströndina. Af þess-
ari ferð er ómögulegt
að segja til um hvort
hafnargerð á þessum
stað er möguleg en
vissulega er það fýsi-
legur kostur að ekki
taki nema hálftíma að
komast upp á fasta-
landið.
GÍSLI Viggósson hjá Siglingastofnun fylgist með dýpi á dýptarmæli Lóðsins. Stefán Jónasson, bæjarfulltrúi, fylgist með.
ELLIÐI í túrnum með fjöruna í baksýn.
Elliði Vignisson bæjarfulltrúi
Metnaðarfullt verkefni
Elliði Vignisson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, var einn þeirra
sem fóru með Lóðsinum upp að
Bakkafjöru á föstudaginn en komst
ekki á kynningarfund Siglinga-
stofnunnar um kvöldið.
„Því miður komst ég ekki en ég fór
á kynninguna í höfuðstöðvum
Siglingastofnunar á laugardeginum
sem var keimlík kynningunni fyrir
bæjarfulltrúa fyrir skömmu. Það
sem stendur upp úr að mínu mati er
að okkar fremstu fræðimenn á sviði
hafnargerðar telja að þetta sé ekki
bara möguleiki, heldur mjög spenn-
andi og nærtækur.
Frátafir vegna veðurs eru innan
þeirra marka sem maður hefur verið
að horfa til og kostnaður vegna
verkefnisins vel ásættanlegur. Svo
spillir ekki fyrir hversu lítinn tíma
það tekur að ráðast t þessar miklu
samgöngubætur. Það er gott að fá
heilbrigða umræðu um þessi mál og
eðlilegt að ekki séu allir á eitt sáttir
hvað svona stórvirka aðgerð varðar.
Ég tel nú samt að við verðum að
leggja trúnað á mál þeirra manna
sem hafa hannað og smíðað hafnir á
íslandi síðustu ár og áratugi."
Elliði sagði jafnframt að það væri
mikilvægt að slá ekkert út af
borðinu í þessum efnum. Við
verðum að passa okkur í allri um-
ræðu um samgöngur, í öðru orðinu
erum við að kvarta yfir að það sé
ekki unnið nógu fáglega að útreikn-
ingum varðandi jarðgöng og þau
afgreidd út af borðinu með böl-
sýnum niðurstöðum um mikinn
kostnað og í hinu viljum við ekki
hlusta á rök lærðra manna varðandi
Bakkafjöru vegna þess að þau séu
of jákvæð og því ekki raunsæ."
Elliði sagði að þrátt fyrir að hafa
skoðað líkan Siglingastofnunar af
ferjulaginu hefði komið á óvart í
siglingunni á föstudaginn hversu
ofboðslegt mannvirki verið væri að
tala um. „Þeir sögðu að nú værum
við um það bil þar sem hafnar-
mynnið myndi byija og mér fannst
við vera svo rosalega langt úti
ennþá enda á mynnið að verða um
600 metra út í sjó. Þetta verkefni er
alveg feykilega metnaðarfullt hjá
Siglingastofnun og miklu hefur
verið til tjaldað."
Elliði 'sagði að umræðan um
samgöngumál mætti ekki bara
snúast um á hvaða máta er best fyrir
okkur að komast með fjölskylduna
til Reykjavíkur í frí, þótt auðvitað
skipti það miklu. „Þetta snýst ekki
síður um möguleika Vestmannaeyja
í heild sinni. Okkar stóra vandamál
er einhæft atvinnulíf og þröngir
möguleikar til vaxtar. Það getur
reynst okkur gríðarlega mikilvægt
að komast í tengsl við vaxtarsvæði
hér hinum megin við hafið.“
Hann sagðist vera bjartsýnn á
framhaldið varðandi framtíðar-
skipan samgöngumála við Eyjar
eins og framtíð Vestmannaeyja í
heild sinni.
„Ég held mig við samþykktir
bæjarstjórnar í þeim efnum. Fyrst
eru það jarðgöng, svo Bakkafjara og
loks nýr Herjólfur. Þetta held ég að
sé rétt forgangsröðun. Ég tel að við
eigum að halda öllum dyrum
opnum því eitt truflar ekki annað,
enn sem komið er alla vega. Krafan
er að innan skamms verði tekin
ákvörðun um framtíðarsamgöngur
við Vestmannaeyjar og þá verða
allar forsendur að liggja fyrir.“
Stefán Jónasson bæjarfulltrúi:
Ferjulægi er
okkar sóknarfæri
Stefán Jónasson bæjarfulltrúi lýsti
yfir ákveðnum efasemdum um
Bakkafjöru á fundi bæjarstjórnar
fyrir skömmu og sagðist hafa þær
upplýsingar, sem hann byggði mat
sitt á, frá sjómönnum.
Hann sagði að eftir kynningar
Siglingastofnunar á málinu hafi
viðhorf hans breyst til muna gagn-
vart ferjuhöfn í Bakkafjöru. „Ég
hef aldrei verið á sjó og hef því
þurft að stóla á aðra sem hafa meiri
þekkingu á þeim efnum sem um
ræðir. Aftur á móti hafa Gísli
Viggósson og hans menn náð að
sannfæra mig um að þetta sé
möguleiki og Gísli hefur til að
mynda útskýrt mjög nákvæmlega
hvernig þeir hyggjast byggja upp
varnargarðana," sagði Stefán.
Frekari rannsókna er þörf, bætti
hann við og vonaðist að ráðist yrði
í þær fljótlega. Aðspurður um
fundinn á föstudaginn sagði Stefán
að hann haft verið fróðlegur. „Þær
spurningar sem komu fram sneru
allar að þeim atriðum sem efa-
semdir hafa verið um og það var
mjög gott að þær komu fram. Mér
fannst Gísli svara þeim mjög vel og
líklega hefur hann náð að sannfæra
marga sem voru beggja blands fyrir
fundinn."
Stefán spyr sig að því hvers vegna
ekki eigi að trúa þeim sem vinna
við það daginn út og daginn inn að
hanna mannvirki á við það sem nú
um ræðir. „Síðan verðum við að
spyrja okkur að því hvers vegna
við eigum ekki að taka mark á
skipstjóranum frá Grindavík."
Aðspurður hvort eitthvað hafi
komið honum á óvart í ferðinni
með Lóðsinum yfir álinn sagði
hann svo ekki vera. „Helst kannski
hvað þetta var stutt ferð. Maður var
varla búinn að taka augun af
Eyjununt þegar maður var kominn
yfir en það verður lfka að taka það
fram að það var algjör blíða á
leiðinni. Þetta var bara skemmti-
legur útsýnistúr."
Stefán sagði jafnframt að það yrði
að treysta á fræðimenn í þessu.
„Þetta er hægt, það er ekki spum-
ÖLDUMÆLIRINN vaggaði ró-
lega á nánast sléttum sjónum.
ing og ég er bjartsýnn á þetta,
miðað við hvemig lagt er upp með
þetta í dag. Það sem skiptir mestu
máli er að það sem við þurfum í
dag er breytingar á samgöngumáta.
Við vitum alveg að nýr Herjólfur í
Þorlákshöfn verður engin sam-
göngubylting fyrir okkur, við
vitum hvað við höfum þar og
varðandi jarðgöng þá er það nú
bara svo að ef sá sem ætlar sér að
borga brúsann, það er ríkissjóður,
er ekki tilbúinn í það, þá verðum
við að stoppa. Sóknarfæri okkar í
dag er ferjulægi í Bakkafjöru.“