Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 10
10 Frcttif / Fimmtudasur 9. mars 2006 Hjalti Jónsson og Linda Björk Olafsdóttir hafa búið í Danmörku og stunda nám þar. Hann lauk nýlega MSc prófi í sálarfræði og Linda leggur stund á BA nám í næringar- og heilsufræði - í viðtali við Guðbjörgu Sigurgeirsdóttur segir Hjalti frá námi sínu þar sem hann hefur frábærum árangri, talar um lífið í Danaveldi og horfir heim til Eyja Hjalti Jónsson og Linda Björk Olafsdóttir hafa búið í Danmörku undan- farin ór, nónar tiltekið í þorpi sem heitir Hjortshoj og er staðsett rétt fyrir norðan Arósa. Hjalti lauk nýlega MSc prófi í sólarfræði og Linda legg- ur stund ó BA nóm í næringar- og heilsufræði en er nú í fæðingarorlofi þar sem yngri sonur þeirra fæddist 23. júlí sl. og hefur honum verið gefið nafnið Olafur Dan. Só eldri Jón Jökull verður 5 ára í apríl. Það hefur því verið nóg að gera hjó fjölskyldunni í Hjortshoj. Hjalti starfar nú sem klínískur sólfræðingur við sjúkrahús en þess mó geta að hann lauk MSc prófi með fróbærum órangri og fékk hæstu mögulegu einkunn fyrir lokaritgerðina. Hæsta einkunn er einungis gefin fyrir ritgerðir sem taldar eru uppfylla allar þær kröfur sem gerðar eru og gott betur en það. Það er því spennandi að spyrja Hjalta út í nómið, framtíðina, veruna í Dan- mörku og í hvaða Ijósi hann sér Eyjarnar núna. FJÖLSKYLDAN, Linda Björk með Ólaf Dan, Jón Jökull og Hjalti. Heimaklettur fer ekkert -Það er það eina sem ég get verið viss um, allt annað veltur á íbúunum og samstöðu þeirra á milli Lífíð 1 Danmörku Hver var ástœðan fyrir því að þið ýluttuð út ? -Haustið 2003 stefndi ég á fram- haldsnám í sálfræði og Lindu lang- aði í nám tengt heilsu- og nær- ingarfræði. Aður en við kynntumst höfðum við bæði búið erlendis í skemmri tfma og langaði okkur að prufa það aftur saman. Þegar við komumst að því að þær náms- greinar sem við leituðum að voru báðar kenndar við Arósaháskóla var ekkert annað í stöðunni en að drífa sig út til Danmerkur. Hvernig líkar ykkur úti? -Okkur hefur líkað mjög vel hér úti allt frá fyrsta degi enda þrífast börnin vel og við ánægð í námi og starfi. Er lífið á einhvern hátt frábrugðið því sem gerist hér heima og hvernig ef svo er? -Fyrir okkur er lífið hér úti frá- brugðið lífinu heima að því leyti að allt þar til nýlega, vorum við bæði námsmenn hér úti en á Islandi vorum við annaðhvort bæði í vinnu eða aðeins ég í námi. Sem náms- menn með sveigjanlegan vinnutíma fannst okkur óneitanlega skapast meira svigrúm fyrir fjölskyldulífið. Nú er ég reyndar tiltölulega nýbyrj- aður að vinna í fullu starfi og verður gaman að sjá hvort það kemur til með að breyta lffsmynstri okkar mikið. Að vísu er aðeins 37 tíma vinnuvika og sveigjanlegur vinnutími svo hingað til hefur það verið mjög fjölskylduvænn vinnu- tími. Eins og sjá má þá er fjöl- skyldulífið í hávegum haft hjá okkur, enda er hugarfarið gagnvart fjölskyldulífi eitt af því sem okkur líkar hvað best við hér úti og hversu mikilvægt það er að at- vinnan bitni ekki á mikilvægasta þætti lífsins sem fjölskyldulífið er. Eru Danir líkir eða ólíkir Islendingum ? -Breytileiki manna er svo mikill að mér þykir alltaf mjög varasamt að setja heila þjóð undir sama hatt og alhæfa út frá því. Ef ég er tilneydd- ur til að nefna eitthvað ákveðið þá er það mín tilfinning, ef við lítum á hlutina í víðara samhengi, þá verð- um við á Islandi fyrir meiri áhrif- um frá Bandaríkjunum en frændur okkar Danir. Hvort það sé jákvæð eða neikvæð þróun ætla ég ekki að leggja mat mitt á hér en með þess- um amerísku áhrifum tel ég fylgja meðal annars meira lífsgæðakapp- hlaup, meiri samkeppni og djarfari viðskiptahætti. Gagnvart þessunt þáttum eru Danir mun afslappaðri en Islendingar. Tala dönsku við Dani Var ekkert mál að komast inn í dönskuna? -Tungumálanám getur að mínu mati verið ævilangt ferli, það er bara spurning hversu hátt þú setur markið og á þetta bæði við um móðurmálið sem og önnur tungumál sem lærast á lífsleiðinni. Allt frá fyrsta degi vorum við Linda staðráðin í að ná góðum tökum á málinu bæði til að komast betur inn í þjóðfélagið sem og til að auka möguleikann á að fá at- vinnu að námi loknu. 1 stað þess að fara í tungumálaskóla ákvað ég frá upphafi að einbeita mér að því að komast í eins mikið samband við innfædda og mögulegt var. Eg setti mér einfaldlega það markmið að tala dönsku við Dani í minnst klukkutíma á hverjum degi, helst meira. Ég byrjaði því í sjálfboða- vinnu á kaffihúsi fyrir fólk með geðræn vandamál, tók að mér að heimsækja eldra fólk á elliheimili bæjarins, tók fram fótboltaskóna á ný og spilaði með fótboltaliði bæjarins. Allt þetta hjálpaði til við að ná tökum á tungumálinu. Á meðan við Linda höfðum mikið fyrir að ná tökum á málinu hafði eldri strákurinn okkar, sem þá var tveggja og hálfs árs gamall, ekkert fyrir þessu og var hann fljótlega farinn að leiðrétta foreldra sína og gerir enn. Námið og vinnan Þú varst að Ijúka prófi í sálfrœði, MSc gráðu, og fékkst hœstu mögulegu einkunn fyrir lokarit- gerðina þína. I livaða skóla varstu og hvernig líkaði þér? -Ég hóf mastersnám við sál- fræðideild Árósaháskóla haustið 2003 og lauk því í janúar síðast- liðnunt. Helsti kosturinn við námið hér úti finnst mér vera hversu praktískt námið hefur verið ásamt því að hér er meira frjálsræði í náminu en ég vandist í Háskóla Islands. Það lýsir sér best í þvf að hér er mikið lagt upp úr sjálf- stæðum vinnubrögðum og náms- manninum sjálfum að miklu leyti treyst fyrir sínu námi. Vissulega getur það verið ókostur fyrir suma þar sem aðhaldið er minna, en þegar fólk er komið á þetta námsstig þykir mér eðlilegt að sýna námsmanninum þetta traust. Voru fleiri Islendingar í skólanum og eru ekki margir Islendingar í nágrenni við ykkur? -Samkvæmt óstaðfestum heimild- um hef ég heyrt að það séu um 800 Islendingar á Árósasvæðinu enda er ekki ósjaldan sem maður mætir Islendingi í miðbæ Árósa. I mínu námi vorum við 14 sem byrjuðum á sama tíma og vissulega var tölu- verður samgangur innan þessa hóps og er enn, þó stærsti hlutinn sé fluttur aftur heim til íslands. í þess- um hópi vorum við öll mjög meðvituð um að einangra okkur ekki frá hinum nemendum árgangsins og reyndum því að dreifa okkur á meðal þeirra Dana og Norðmanna sem þarna voru. Ári eftir að við fluttum hingað vorum við svo heppin að Sighvatur bróðir flutti hingað til náms ásamt fjölskyldu sinni. Á þeint tíma flutti líka vinur minn, Birgir Stefánsson hingað út en hann er núna fluttur aftur heim. Árið þar á eftir fjölgaði enn meira í íslenska vinahópnum hér úti en þá flutti annar vinur minn, Sæþór Orri Guðjónsson og vinkona Éindu, Thelma Gunnarsdóttir, ásamt fjölskyldum sínum hingað út. Þar að auki flutti

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.