Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Page 13

Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Page 13
Fréttir / Fimmtudasur 9. mars 2006 13 Fiskistofa í Eyjum: Hlynur for- stöðumaður Hlynur Sigmarsson í Sparisjóðnum hefur verið ráðinn forstöðumaður Fiskistofu í Eyjum. Hlynur hefur sagt upp starfi sínu í Sparisjóði Vestmannaeyja og mun hefja störf í nýju útibúi Fiskistofu á næstu vikum. Hlynur sagði í sam- tali við Fréttir að honum hafi fundist vera kominn tími á að spreyta sig á nýjum verkefnum. „Maður er að vera gamall og ég var hvattur af félaga mínum að skoða auglýsinguna og mér fannst þetta starf passa vel við mig. Eg fann fyrir þörf til að takast á við ný verkefni og vissi að ef ég ætlaði að prófa eitthvað nýtt þá var það nú eða aldrei. Eg er búinn vera í átta ár í Sparisjóðnum og þetta er búinn að vera góður tími þannig að héðan fer ég sáttur." Nú ertu búinn að starfa lengi fyrir IBV, hefur þessi breyting einhver áhrif á þau störf? „Eg ætla ekki að hætta því alveg strax. Hugsanlega þegar fjárhags- staðan er komin í lag þá fer maður kannski að hugsa um að hætta. Við skuldum svolítið núna en ég sé fram á að við verðum komin réttu megin við núllið í síðasta lagi eftir ár. Eg ætla mér að klára það mál og svo fer ég kannski að draga mig í hlé.“ Grímur Gíslason um ákvörðun bæjarstjórnar um byggingu knattspyrnuhúss: Að pissa í skóinn sinn? -Ekki liggur fyrir hvar á að skera niður áður en ákvörðun er tekin um byggingu hússins og ekki hugsað til framtíðar með byggingunni Samþykkt bæjarstjómar um byggingu knattspyrnuhúss vakti í meira lagi sagt blendnar til- finningar hjá mér. Ekki það að ég sé á móti byggingu knatt- spyrnuhúss en aðferðafræðin við ákvarðanatökuna líkar mér ekki. Finnst mér vera byrjað á öfugum enda og upplagið sé að finna leið til að losna undan þrýstingi mjög ákveðins þrýstihóps í aðdraganda kosninga. Eg hef einhvern veginn á tilfinn- ingunni, vegna þess hvernig samþykktin er úr garði gerð, að bæjarstjórn sé að leita leiða til að kaupa sér frið. Ætlunin sé að láta það verða hlutskipti ÍBV að kikna undan ábyrgðinni sem sett verður á félagið með ákvörðun um bygging- una eða þá að upp rísi mótmæla- alda annars staðar vegna niður- skurðar sem koma á til í mála- flokknum íþrótta- og æskulýðsmál. Það sé meginástæðan fyrir því að byrjað er á öfugum enda á málinu. Þá er ég langt í frá að vera hrifinn af þeirri bráðabirgðalausn sem felst í byggingu þess tjaldhúss sem stefnan hefur verið sett á og einnig ilnnst mér forkastanlegt af bæjar- stjórn að ætla sér að semja beint við einn aðila um fjármögnun og byggingu hússins í stað þess að leita til fleiri aðila og ná hugsan- lega fram hagstæðari samningum. Fyrst á að ákvarða niðurskurð og síðan taka afstöðu til bygginar hússins? Ef ég hef skilið samþykkt bæjar- stjómar rétt þá felur hún í sér að verði farið í byggingu knattspyrnu- hússins þá eigi að skera niður árleg fjárframlög til íþrótta- og æsku- lýðsmála um sömu upphæð og áætlaður kostnaður bæjarins af rekstri hússins verður. Einhvers staðar vemr að klípa verulega til að ná þeim milljónum sem til þarf og líklegt er að það Um leið og samþykkt var að ganga til samninga um byggingu hússins var bæjarstjóra falið að koma með tillögur um niðurskurð í málaflokknum til jafns við kostnaðarauka bæjarins vegna knattspyrnuhússins. Auðvitað er þarna byrjað á öfugum enda. Rétt hefði verið að fyrir lægju tillögur um niðurskurð áður en af- staða var tekin til bygg- ingar hússins, þannig að bæjarstjórn gæti tekið afstöðu til málsins í heild sinni og fyrir lægi sam- komulag við ÍBV um niðurskurð á framlögum til félagsins. muni þá bitna á annari íþróttastarf- semi og íþróttamannvirkjum. IBV verður væntanlega stillt upp við vegg þar sem þeir verða að samþykkja ákvörðun um skerð- ingar á fjárframlögum til félagsins, komi til byggingar knattspyrnu- hússins. Dæmigerð niðurstaða stjórnmála- manna sem vilja losna við að taka af skarið og taka erfiða ákvörðun undir pressu frá þrýstihóp. Um leið og samþykkt var að ganga til samninga um byggingu hússins var bæjarstjóra falið að koma með tillögur um niðurskurð í málaflokknum til jafns við kostn- aðarauka bæjarins vegna knatt- spyrnuhússins. Auðvitað er þarna byrjað á öfugum enda. Rétt hefði verið að fyrir lægju tillögur um niðurskurð áður en afstaða var tekin til byggingar hússins, þannig að bæjarstjórn gæti tekið afstöðu til málsins í heild sinni og fyrir lægi samkomulag við IBV um niður- skurð á framlögum til félagsins. Eg velti upp þeim spurningum, hvar á að skera niður? A að skera niður í framlögum til íþrótta- hússins? Á að skera niður fjármagn til framkvæmda við sundlaug? Á að skera niður framlög til golf- klúbbsins? Á að skera niður fram- lög til skátastarfsemi eða annarra æskulýðsmála? Allir falla þessir liðir undir málaflokkinn íþrótta- og æskulýðsmál og því eiga þessar spurningar rétt á sér í ljósi afgreiðslu bæjarstjórnar á málinu. Ef byggja á knattspyrnuhús, á að gera það af myndarskap og dug Það er mín skoðun að ef ráðast á í byggingu knattspyrnuhúss þá á að gera það af myndarskap og dug. Byggja til framtíðar með trú á blómlegt líf og uppbyggingu byggðar í Vestmannaeyjum til langrar framtíðar. Bráðabirgðalausnir hafa aldrei gefist vel og verða yfirleitt kostn- aðarsamari þegar upp er staðið. Eg minni enn á byggingar Þórsheimilis, Týsheimilis og íþróttasalarins við Tysheimilið sem byggt var á sínum tíma í ákveðnu fljótræði án þess að horft væri til framtíðar. Eg er viss um að í dag geta fiestir verið sammála um að þeim fjármunum sem settir voru í þessar bygingar hefði mátt verja betur fyrir íþróttahreyfinguna. Ljóst er að koma mun að því að keppnistímabil í úrvalsdeild knattspyrnu verður lengt og ekki er ólfklegt að þá verði krafa um að löglegir keppnisvellir í knatt- spyrnuhöllum verði nauðsynlegir þeim liðum sem spila í úrvalsdeild. Ljóst er að það tjaldhús sem stefnt er á nú mun ekki uppfylla þær kröfur enda stærð þess ekki nema u.þ.b. hálfur knattspyrnuvöllur og hvað mun gerast þá. Auðvitað verður settur þrýstingur á að byggja þurfi annað hús í fullri stærð og þá munu menn klóra sér í höfðinu yfir því af hverju þeir voru að eyða fjármunum í tjaldhúsið. Hefur alltaf verið skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn Ef á annað borð er vilji og geta til að fara út í fjárfestingu í knatt- spyrnuhúsi þá eiga menn að skoða hvort ekki er möguleiki á að gera það af alvöru og byggja knatt- spyrnuhöll sem nýtast mun til langrar framtíðar. Knattspymuhöll í fullri stærð myndi opna ýmsa möguleika til að laða að íþrótta- félög til æfinga og keppni og þar sem IBV hefur gríðarlega reynslu í mótshaldi stórra móta má eflaust nýta slíkt hús stærstan part ársins til einhvers konar mótshalda auk ýmissa annarra möguleika sem slikt hús myndi opna í Eyjum. Það hefur löngum verið betra ráð að fara í ullarsokka í frostinu en að pissa í skóinn sinn, jafnvel þó að það sé kostnaðarsamara og meiri fyrirhöfn að fara í sokkana. Ég óttast að bærinn muni pissa í skóinn nteð byggingu tjaldhússins. Bygging þess verði skammgóður vermir og betra sé því að skella sér í ullarsokkana strax og byggja alvöru knattspyrnuhöll ellegar harka af sér kuldann og vera kalt á tánum örlítið lengur. Otrúlegt að semja beint við Fasteign í stað þess að bjóða út Ákvörðun bæjarstjómar að ætla sér að semja beint við Fasteign, komi til byggingar hússins er ótrúleg. Mörg önnur félög standa í bygg- ingum og rekstrarleigum á ýmiss konar mannvirkjum og tækjum, t.a.m. knattspyrnuhúsum og því væri eðlilegt að leita til fieiri en eins aðila til að ná fram sem hagstæðustum samningum fyrir bæjarfélagið. Ákvörðun um að semja beint við einn aðila getur ekki verið vænlegasta leiðin f þeim efnum. Vert og skynsamlegt að taka málið upp að nýju Ákvörðun bæjarstjórnar er óskyn- samleg og illa ígmnduð á allan hátt og því vert og skynsamlegt að taka málið upp og vinna að því á eðli- legan og skynsamlegan hátt. Hugsa stórt og hugsa til framtíðar en ekki hugsa um að kaupa sér stundarfrið í aðdraganda bæjarstjórnarkosn- inga. Slík vinnubrögð hafa aldrei gefist vel og mörg spor hræða í þeim efnum. Það vita Vest- mannaeyingar mæta vel. Grímur Gíslason ísfélagið: Loðnuvertíð formlega lokið Loðnuvertíð er nú formlega lokið og tókst liðsheild ísfélagsins mjög vel upp við nýtingu á afiaheimil- dum og hráefni. Síðustu loðnulandanir voru úr Antares VE og frystiskipinu Guðmundi VE. Nánari samantekt á aflabrögðum vertíðarinnar verður birt bráðlega. Heimaey VElandaði í gær um 130 körum eftir tæplega 5 daga útiveru og var haldið aftur til veiða um miðnætti í gær. Verið er að landa úr Snorra Sturlusyni VE 28. Aflaverðmætið í veiðiferðinni var um 75 milljónir króna. Áætlað er að Snorri haldi aftur til veiða næstkomandi föstu- dag. Nú þegar loðnuvertíð er lokið fækkar verkefnum uppsjávarskipa félagsins. Guðmundur VE hélt af stað til Póllands þar sem hann verður lengdur um 12,5 metra, auk fleiri endurbóta. Guðmundur er væntanlegur til Eyja aftur fyrir sjó- mannadag. Sigurður VE reyndist dýrmætur á yfirstandandi vertíð en hann er kominn aftur í stæðið sitt inni í Friðarhöfn. Álsey VE var gerð klár fyrir kolmunnaveiðar í síðustu viku og hélt til kolmunnaveiða fyrir ves- tan Irland s.l. sunnudag. Affréttavef ísfélagsins. GUÐMUNDUR VE er á leið til Póllands í lengingu. Spurt er: Hvers vegna býrðu í Eyjum? Óskar Þór Kristjánsson Ég veit ekki, það er bara svo gott að vera hérna. Engin traffík og ekkert stress eins og f Reykjavík. Hér er falleg náttúra og gott mannlíf. yilhjalmur Stefansson Ég get ekki hugsað mér að búa annars staðar og vil hvergi annars staðar vera. Ef ég fer til Reykjavfkur þá vil ég helst fara heim daginn eftir. Steinunn Einarsdóttir Bara af því mér líkar það svo vel. Mér finnst Eyjar hafa allt til að bera. Þó ég sé fædd og uppalin í Reykjavík þá gæti ég ekki hugsað mér að búa þar. Það segi ég af hjartans einlægni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.