Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Síða 15
Fréttir / Fimmtudagur 9. mrs 2006
15
Þegar sköpunargáfan nýtur sín
Árshátíðirnar í Barnaskólanum haf'a í
mörg ár verið meðal bestu skemmtana
sem undirritaður sækir. Fer þar saman
kraftur og hugmyndaflug unga fólksins
sem fær að njóta sín án þess að reynt sé
að hefta það á nokkurn hátt.
Það eru áttundu, níundu og tíundu
bekkingar sem bera hitann og þungann
af skemmtuninni sem er með hefð-
bundnum minnum karla og kvenna og
nemenda sem kennararnir sjá um.
Reyndar eru kennarar að koma meira
inn í hátíðina með leikþáttum og
viðurkenningum sem þeir veita skjól-
stæðingum sínum fyrir hin ýmsu afrek.
Allt er þetta á léttu nótunum og má
segja að þarna fái kennarar tækifæri til
að svara skotum sem þeir fá á sig frá
nemendum.
Hápunkturinn er svo kabarett neni-
cnda sem samanstendur af stuttum
leikþáttum, söng, dansi og skrautlegum
búningum. Auðvitað er þetta misjafnt að
gæðum en krafturinn og glcðin bætir
það upp þannig að úr verður frábær
skérhmtun. Hvergi fannst niér þeim
takast betur upp en í draunmum um að
komast á ball í Framhaldsskólanum.
Bæði var aðdragandinn og ballið sjálft
hreint frábært.
Það er ekki auðvelt að bera saman
þessar skemmtanir á milli ára nema
hvað mér finnst mctnaðurinn vaxa með
hverju árinu. Auðvitað nota krakkarnir
lög og atriði úr sjónvarpi í þessum
kabarett sínum en það er gert á þcirra
forsendum og útfærslan er þeirra.
Eflaust hefur stemmningin verið ljúf-
sár í hugum sumra því þarna var verið
að halda síðustu árshátíð Barnaskóla
Vestmannaeyja sem á næsta skólaári
verður ásamt Hamarsskóla Grunnskóli
Vestmannaeyja. Þetta á ekki síst við
Hjálmfríði Sveinsdóttur skólastjóra sem
senn lætur af störfum. Vitur maður
sagði einhvern tímann, góðar minningar
eru það besta sem þú getur gefið börn-
um og þær verða til á árshátíðum
Barnaskólans. Það er ekki ónýtt vega-
nesti út f lífið að fá tækifæri til að skapa
og flytja eitthvað sem kemur til með að
lifa í minningunni. Um leið myndast
vinabönd sem aldrei slitna sem skiptir
ekki minna máli.
Um leið og ég þakka Hjálmfríði,
nemendum hennar og starfsfólki fyrir
frábæra skemmtun þetta
þriðjudagskvöld hlýt ég að óska þess að
árshátíðir í nýjum skóla verði haldnar af
sama metnaði, við þurfum öll á því að
halda. »
Ómar Garðarsson.
Hjalti Pálsson, ein af stjörnum kvöldsins, ÞÆR Sara Dögg og Elísabet fluttu minni drengja og gerðu það með glæsibrag.
les minni stúlkna.
ÞEIIVI varð tíðrætt um hyskið á móti,
KENNARARNIR Hulda Líney, Ágústa og Hanna áttu glæsilega innkomu.
ALLIR voru klæddir í sitt fínasta púss sem setti skemmti
legan svip á kvöldið.
FLOTTIR kroppar.
ÞAU voru mörg sem komu að árshátíðinni og öll áttu þau skilið kröftugt lófatak sem þau fengu að sýningunni lokinni.