Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Side 18

Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Side 18
18 FfCttÍr / Fimmtudagur 9. mars 2006 LANDAEIRK.TA Fimmtudagur 9. mars KI. 10:00 Mömmumorgunn í Fræðslustofu. Prestar. Kl. 20:00 Kór Landakirkju, æfing. Kórstjóri. Sunnudagur 12. mars Kl. 11:00 Sunnudagaskóli í Landakirkju. Gulur dagur í sunnudagaskólanum, litur sólar, ljóss og lífs. Biblíusaga, brúðu- leikrit og barnasálmar. Barna- fræðarar og prestar kirkjunnar. Kl. 11:00 Kirkjuprakkarar hefja stund sína í sunnudagaskólanum en ganga svo til dagskrár í Fræðslustofu. Ingveldur og Vala. Kl. 12:30 TTT f Fræðslustofu. Fer ekki að styttast í mót? Vala og Ingveldur. Kl. 14:00 Messa í Landakirkju. Fermingarbörn lesa ritningar- lestra. Frásagan af kanversku konunni í Mattheusarguðspjalli er guðspjall dagsins. Kór Landa- kirkju syngur undir stjórn Guðmundar H Guðjónssonar. Gengið verður að borði Drottins. Prestur sr. Þorvaldur Víðisson. Mánudagur 13. mars Kl. 19:00 Tólf spora vinna. Umsjónarfólk. Kl. 20:00 Tensing í KFUM&K heimilinu. Hulda og Hjördís. Þriðjudagur 14. mars Kl. 15:30 Fermingarfræðsla. Heimsókn frá Tollgæslunni. Allir mæti á þessum tíma. Fræðslu- stund í kirkjunni. Miðvikudagur 15. mars Kl. 15:10 Litlir lærisveinar, kóræfmg. Kórstjórar. Kl. 16:00 Stúlknakór Landa- kirkju, kóræfing. Kórstjórar. Kl. 20:00 Tólf spor, andlegt ferða- lag. Lokaðir hópar. Umsjónarfólk. Viötalstímar presta kirkjunnar eru þriöjudaga til föstudaga kl. 11-12 og á öðrum tímum eftir samkomulagi. Sími prests á vakt er 488-1508. Hyítasunnu- KERKJAN Fimmtudagur 9. mars Kl. 19:00 ALFA námskeiðið. Föstudagur 10. mars Kl. 20:00 Unglingakvöld Alls konar leikir og spil og auðvitað skemmtilegir krakkar. Allir ung- lingar velkomnir. Laugardagur 11. mars Kl. 20:30 Bæna- og lofgjörðar- stund. Sunnudagur 12. mars Kl. 14:00 SAMKOMA Lofgjörð og fyrirbænir. Samskot tekin til Lindarinnar í tilefni afmælis þeirra. Starf fyrir yngstu börnin meðan á samkomu stendur. Kaffi og spjall eftir samkomu. Allir hjartanlega velkomnir. Bœnastundir á morgnana kl. 7:00 Aðventkirkjan Föstudagur Kl. 20:00 Söngstund og bænasam- koma. Laugardagur Kl. 10:30 Biblíurannsókn. BlBLÍAJSrTALAB Sími 481-1585 Handknattleikur kvenna: ÍBV 22 - Valur 18 Eyjakonur eiga ágæta möguleika á íslandsmeistaratitlinum -eftir IBV heldur í vonina um titil með góðum sigri á Val í DHL-deild kvenna á laugardaginn. Valur var fyrir leikinn í efsta sæti deildarinnar og IB V í því þriðja en með sigrinum færðust Eyjastúlkur upp í annað sætið á meðan Valur féll í þriðja. Lokatölur urðu 22:18 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12:6. ÍBV er nú aðeins einu stigi á eftir nýkrýnd- um bikarmeisturum Hauka, sem eru í efsta sæti og stefnir allt í æsi- spennandi lokabaráttu í íslandsmót- inu. Úrslit í íslandsmótinu ráðast að þessu sinni í hefðbundinni deildar- keppni, engin úrslitakeppni er, þannig að það lið sem nær flestum stigum að loknum þeim fjórum umferðum sem eftir eru, verður Islandsmeistari. Hér má sjá þá leiki sem efstu fjögur liðin eiga eftir en öll eiga þau möguleika á Islands- meistaratitli: Haukar: Stjarnan Haukar Haukar Víkingur Valur Haukar Haukar KA/Þór Valur: Fram Valur Valur Haukar Stjarnan Valur ÍBV: KA/Þór ÍBV ÍBV FH ÍBV Grótta HK ÍBV Stjarnan: Stjarnan Haukar sigurinn á Valskonum á laugardaginn Grótta Stjaman Víkingur Stjarnan Stjaman Valur Staðan í deildinni er þannig að Haukar og Valur eru í efsta sæti með 24 stig en Valur hefur leikið einum leik meira. IBV er í þriðja sæti einu stigi þar á eftir og hefur leikið 14 leiki eins og Haukar og í fjórða sæti er Stjarnan, tveimur stigum á eftir toppliðunum eftir fjórtán leiki. Toppliðin, þrjú, að ÍBV undan- skildu, eiga öll eftir innbyrðisviður- eignir og eiga Haukar eftir að leika bæði gegn Val og Stjömunni á úti- velli. Til að Valur og Stjaman haldi í vonina um Islandsmeistaratitil verða þau að vinna Hauka í þessum leikjum. Á meðan þarf ÍBV einung- is að klára sína leiki sem em allir gegn liðum sem ÍBV ætti að vinna en erfiðasti leikurinn verður án efa síðasti leikurinn gegn HK á útivelli. Að öllu jöfnu ætti ÍBV að vinna þessa fjóra leiki og þegar þessar forsendur eru hafðar í huga á ÍBV ágætis möguleika á íslandsmeist- aratitlinum. Það er hins vegar borð- liggjandi að Eyjastúlkur þurfa að vinna þessa fjóra leiki sem eftir eru. Haukum dugir hins vegar að vinna sína leiki til að tryggja sér Islandsmeistaratitilinn. Mörk ÍBV: Pavla Plaminkova 13/5, Simona Vintila 4, Ingibjörg Jóns- dóttir 2, Renata Horvath 1, Ragna Karen Sigurðardóttir 1, Ester Oskarsdóttir 1. Varin skot: Florentina Grecu 20/1. Viðurnefnin hans Sigurgeirs á Kaffi Kró: Frábær skemmtun og upprifjun -á þessum sérstæða hluta af sögu Eyjanna Á fimmtudag í síðustu viku var uppákoma í Kaffi Kró, í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá upphafi vélvæðingar bátaflotans í Eyjum. Efni kvöldsins tengdist raunar ekki beint þeirri vélvæðingu nema í tímasetningu. Sigurgeir Jónsson í Gvendarhúsi hefur á undanfömum árum verið að safna saman viður- nefnum sem Eyjamönnum hafa verið gefin gegnum tíðina og þarna flutti hann erindi um tilurð viðurnefna almennt og fjallaði síðan um 70 þeirra ásamt því að rifja upp söguna sem liggur að baki þeirra. Sigurgeir sagði að á þremur árum væri hann búinn að safna saman rétt tæplega 400 viðurnefnum sem er talsverður fjöldi í ekki stærra bæjar- félagi. Elstu viðumefnin em frá landnámi en þessi siður, að gefa viðurnefni, er ævagamall og þekktur áður en land- nám hófst. Sigurgeir segir að á þeim tíma hafi viðurnefni ekki endi- lega þurft að vera í niðrandi merkingu en nú til dags séu flest viðurnefni af þeim toga. Áður fyrr voru viðumefni gefin til aðgrein- ingar frá öðrum, til að forðast rugling, en nú sé tilefnið oftast annað. I safni Sigurgeirs eru einungis hrein og klár viðurnefni, t.d. em gælunöfn ekki þar, ekki heldur ef menn eru kenndir við heimili sitt eða báta, né heldur þegar menn eru kenndir við mæður sínar eða föður- nafnið stytt. Þá em þar ekki heldur SIGURGEIR hefur lagt mikla vinnu í leit sinni að viðurnefnum og uppruna þeirra. viðurnefni sem gefm hafa verið í þröngum kunningjahópi og em því lítt þekkt. Sigurgeir segist leggja áherslu á að koma með söguna bak við viður- nefnið, aftur á móti sé sjaldnast greint frá fullu nafni viðkomandi, sé enda stundum viðkvæmt mál. Sem dæmi um vel þekkt viðurnefni í Eyjum má nefna „Siggi Vídó“. Margir halda að það viðurnefni sé tilkomið vegna knattspymu en Siggi var um árabil markvörður hjá Þór. Rétta skýringin er hins vegar sú að Siggi var ættaður frá Víðivöllum og var af félögum sínum kallaður Siggi Víðó, sem síðan breyttist í Vídó. Þama er dæmi um viðumefni sem ekki er niðrandi merkingar eins og sést á því að afkomendur Sigga nota þetta viðurnefni sem eins konar ættarnafn. I lok þessa fyrirlestrar varpaði Sigurgeir fram nokkrum viður- nefnum sem hann sagðist ekki hafa neina skýringu á. Gestir á Kaffi Kró, sem vom um þrjátíu talsins, kunnu skýringu á nokkmm þeirra, auk þess að koma með nokkur til viðbótar, þannig að enn bættist í safnið þetta kvöld. Þetta var hin ánægjulegasta kvöld- stund og greinilegt að gestir nutu þess vel að rifja upp minningar frá gamalli tíð sem tengjast þessum hluta af menningarsögu Eyja, þó svo að þetta sé vandmeðfarið og stundum viðkvæmt efni eins og Sigurgeir benti réttilega á.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.