Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 15.02.2007, Side 6

Fréttir - Eyjafréttir - 15.02.2007, Side 6
6 FfCttÍr / Fimmtudagur 15. febrúar 2007 Lögreglan: Ætluðu að handrukka áfengi Nokkur erill var hjá lögreglu í vik- unni sem leið og þurfti lögreglan að aðstoða nokkra heim eftir að við- komandi höfðu komið við á öldur- húsum bæjarins um helgina. Tveir fengu að gista fangageymslu lögreglu aðfaranótt sl. sunnudags en þeir höfðu verið handteknir eftir að hafa ruðst inn á heimili í þeim tilgangi að ganga í skrokk á hús- ráðendum. Þeim tókst hins vegar ekki ætl- unarverk sitt og gáfu þeir lögreglu þá skýringu á hegðun sinni að hús- ráðendur skulduðu þeim áfengis- flösku og ætluðu þeir að innheimta þá skuld. Náttúruspjöll Lögreglumenn í eftirliti tóku í vikunni eftir hjólförum í hlíðum Eldfells. Hafði sá sem þarna var að verki farið nokkrar ferðir upp hlíðar Eldfells en ekki er vitað um hvar þama var á ferð. Hvetur lögreglan þá sem einhverjar upplýsingar hafa um hver þama var á ferð að hafa samband því þarna er um náttúm- spjöll að ræða. Tjón vegna reyks Síðdegis á sunnudag var lögreglu tilkynnt um reyk í íbúð í Folda- hrauni og var slökkviliðið kallað út. I Ijós kom að plastbakki á eldavél hafði bráðnað, en talið var að kviknað hafi óvart á eldavélahellu með þessum afleiðingum. Nokkurt tjón varð vegna reyks í íbúðinni en engan sakaði. Afkoma Vinnslustöðvarinnar hf. 2006: Tekjur jukust um 1400 milljónir -Hagnaður 335 milljónir á móti 442 milljónum árið á undan LOÐNAN er komin. Rekstrarhorfur á yfirstandandi rekstrarári eru góðar og að óbreyttu er iíklegt að tekjur og afkoma verði með svipuðum hætti og á síðasta ári ef gengissveiflur krónunnar eru undanskildar. Hagnaður af rekstri Vinnslustöðvar- innar á síðasta ári var 335 milljónir króna og dróst saman um 107 milljónir króna frá fyrra ári þegar hann var 442 milljónir króna. Heildartekjur félagsins voru 5.802 milljónir króna og jukust um 1.396 milljónir króna frá fyrra ári. Tekjur fiskvinnslu jukust um 47,1% en tekjur útgerðar jukust um 25,5%. Rekstrargjöld jukust um 13,7%. Framlegð félagsins, hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, nam 1.776 milljónum króna eða 30,6% af tekjum og jókst um 910 milljónir króna frá fyrra ári en þá var fram- legðarhlutfall 19,7%. Veltufé frá rekstri nam 1.548 milljónum króna á árinu og var 26,7% af rekstrartekjum. Veltufé frá rekstri jókst um 89% frá fyrra ári. Afskriftir lækkuðu um 16 millj- ónir króna frá fyrra ári og námu 344 milljónum króna. Niðurstaða fjármagnsliða var nei- kvæð um 889 milljónir króna. Gengistap nam 796 milljónum króna en á síðasta rekstrarári var 280 milljón króna gengishagnaður. Tekjur Hugins ehf., hlutdeildar- félags Vinnslustöðvarinnar, voru 640 milljónir króna og framlegð þess á tímabilinu var 98 milljónir króna. Tap félagsins eftir skatta nam 233 milljónum króna, þar af nam gengistap félagsins 203 millj- ónum króna. Hlutdeild Vinnslu- stöðvarinnar í tapi Hugins ehf. nam 112 milljónum króna á rekstrar- árinu. Gengið var frá kaupum á 49% hlut félagsins About Fish ehf. í árslok og af þeim ástæðum er ekki tekin hlut- deild í afkomu þess. Rekstur fé- lagsins gekk ágætlega, heildartekjur voru tæpar 1.100 milljónir króna og nam hagnaður eftir skatta tæpum 9 milljónum króna á árinu. 248 milljóna hagnaður á fjórða ársfjórðungi Á fjórða ársfjórðungi 2006, voru tekjur 1.318 milljónir króna og rekstrargjöld námu 720 milljónum króna. Framlegð tímabilsins var því 598 milljónir króna en 248 milljón króna hagnaður varð af rekstri fjórðungsins. Tap var á rekstri fé- lagsins á sama tímabili í fyrra að fjárhæð 38 milljónir króna. Hlut- deild félagsins í hagnaði hlut- deildarfélagsins Hugins ehf. nam um 32 milljónum króna á fjórð- ungnum. Rekstur Vinnslustöðvarinnar gekk vel á haustmánuðum. Munar þar mestu um að stutt var að sækja síldarafla félagsins og var verulegur hluti aflans unninn til bræðslu sökum erfiðrar stöðu á mörkuðum fyrir sfldarafurðir til manneldis. Lfnahagur 1 árslok Heildarskuldir og skuldbindingar Vinnslustöðvarinnar hf. hækkuðu um 676 milljónir króna frá upphafi árs til ársloka og eru 6.708 milljónir króna. Nettóskuldir eru 4.467 milljónir króna en þær voru 4.731 milljónir króna í lok síðasta árs og lækkuðu því um 264 milljónir króna. Eigið fé lækkaði frá áramótum um 80 milljónir króna. Lækkun eigin fjár stafar fyrst og fremst af út- greiðslu arðs sem nam 445 millj- ónum króna. Á móti hækkaði eigið fé um hagnað ársins að upphæð 335 milljónir króna og 31 milljón króna vegna mismunar á kaupum og út- hlutun eigin bréfa til hluthafa. Rekstrarhorfur 2007 Rekstrarhorfur á yfirstandandi rekstrarári eru góðar og að óbreyttu er líklegt að tekjur og afkoma verði með svipuðum hætti og á síðasta ári ef gengissveiflur krónunnar eru undanskildar. Afurðaverð er í flest- um tilvikum hátt og ber þar sérstak- lega að nefna mjöl og lýsi þar sem afurðaverð er í sögulegu hámarki. Sveiflur á afurðaverði eru vel þekktar innan sjávarútvegsins og því vafasamt að gera ráð fyrir mjög háu afurðaverði til lengri tíma. Þá er mikill þrýstingur til hækkunar ýmissa kostnaðarliða félagsins. Af þeim sökum er vart hægt að gera ráð fyrir öðru en að framlegð lækki á árinu. Hagnaður Vinnslustöðvarinnar hf. er ávallt verulega mótaður af áhrif- um gengis íslenskrar krónu þar sem nánast allar tekjur félagsins og verulegur hluti skulda þess er í erlendum myntum. I ár eru litlar líkur á jafnmikilli veikingu krón- unnar og á síðasta ári og því bendir margt til þess að hagnaður félagsins verði meiri í ár en á síðasta ári. Ákveðið hefur verið að halda aðal- fund félagsins föstudaginn 4. maí 2007 í Akógeshúsinu og hefst fund- urinn kl. 16:00. Stjórn félagsins gerir tillögu um að arðgreiðsla nemi 30%. Magnús Kristinsson sér ekki ástæðu til að setja peninga í rannsóknir vegna ganga: Búið að ákveða Bakkafjöru Nú liggur fyrir að farið verður í gerð hafnar í Bakkafjóru og er gert ráð fyrir fjármagni til verks- ins í nýrri samgönguáætlun. Ekki eru allir Eyjamenn sáttir við þessa hugmynd og vilja frekar sjá göng hér á milli. I janúar var greint frá því að útvegsmenn í Eyjum hefðu ákveðið að leggja til 20 milljónir í rannsóknir á því hvort mögulegt sé að gera göng eða ekki. Magnús Kristinsson var tilbúinn að leggja til helminginn, 10 milljónir. Þegar haft var samband við hann á þriðjudaginn sagðist hann ekki sjá ástæðu til að halda þessu til þrautar. „Það er búið að ákveða að gera höfn í Bakkafjöru eins vitlaust og það er. Það er niðurstaða sem er öllum, sem að koma, til skammar. Ég sé því ekki ástæðu til þess að við höfum meiri afskipti af þessu,“ sagði Magnús. Gangamenn eiga hauk í horni á Morgunblaðin sem í leiðara í gær segir: „I samgönguáætluninni er gert ráð fyrir gerð ferjuhafnar á Bakkafjöru og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. Vestmanna- eyingar sjálfir hafa ekki gefið frá sér vonina um jarðgöng milli lands og Eyja. Greinilegt er að skiptar skoðanir eru um kostnað við gerð slíkra ganga og hag- kvæmni þeirra. Æskilegt er að þetta ágrein- ingsefni verði gert upp þannig að fyrir liggi skýrar upplýsingar um hvort yfirleitt er hægt að leggja göng undir hafsbotni þar og ef það er hægt hvað þau mundu kosta. Hér er um svo mikið hagsmunamál fyrir Vestmannaey- inga að ræða að sjálfsagt er að setja eitthvert fjármagn í að skera úr um þetta deiluefni." Fréttatilkynning frá VG: Öflugt starf í Eyjum Vinstri græn í Vestmannaeyjum hafa nú hafið öflugt málefnastarf vegna kosninganna í vor. Miðviku- daginn í síðustu viku var haldinn annar fundurinn í fundaröð um stefnumál. Atli Gíslason, sem skipar 1. sæti listans í Suður- kjördæmi og Rannveig Sigurðar- dóttir, kosningastýra, voru gestir fundarins. Farið var yfir þau málefni sem snerta Suðurkjördæmi og þá sérstaklega Vestmannaeyjar. Þá var einnig rætt um Landsfund Vinstri grænna sem haldinn verður í lok febrúar. Mikill hugur er í Vinstri grænum í Vestmannaeyjum og munu þeir senda 6 fulltrúa á lands- fundinn. Vinstri græn í Vestmannaeyjum ætla sannarlega að leggja sitt af mörkum til þess að hreyfingin eignist fulltrúa á Alþingi eftir kosn- ingarnar í vor. Næstu fundir í ofan- greindri fundaröð verða haldnir 21. febrúar, 7. mars og 21. mars nk. kl. 20:00 í Amardrangi (uppi). Fréttatilkynning. ALDÍS Gunnars- dóttir, frambjóðandi V-grænna í Suðurkjördæmi með nokkrum stuðn- ingsmönnum í Eyjum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.