Fréttir - Eyjafréttir - 15.02.2007, Page 7
Fréttir / Fimmtudagur 15. febrúar 2007
7
m
EINAR Sigurfinnsson var í sex mánuði í Breiðuvík og lét vel af
vistinni.
INGI Einarsson var líka í sex mánuði og segir að þar hafi verið lærðir
og góðir kennarar. Hér er hann með konu sinni, Birnu Valgerði.
Eyjapeyjarnir Einar Sigurfmnsson og Ingi Einarsson voru í Breiðuvík:
Létu vel af dvölinni
-Þóttu latir í skóla sem gæti verið ástæða þess að þeir voru sendir vestur -
Umræðan hefur komið Inga verulega á óvart
Mikil umræða hefur verið
um vistheimilið á Breiðuvík
í fjölmiðlum undanfarna
daga og vikur. Menn, sem
þar dvöldu, lýsa hrylli-
legum aðbúnaði og
misþyrmingum sem þeir
urðu fyrir sem drengir og
virðist sem ekkert eftirlit
hafi verið með starf-
seminni.
Tveir strákar frá Eyjum
dvöldu á heimilinu á
Breiðavík um sex mánaða
tíma og komu þangað í
febrúar 1953. Það voru
Einar heitinn Sigurfinnsson
og Ingi Einarsson, kenndur
við Götu, en þeir eru báðir
fæddir 1940 og fermdust
báðir í Breiðavík.
Ingi býr nú í Reykjavík en
hefur ekkert nema gott að
segja um þann tíma sem
hann dvaldi á heimilinu.
Var gott heimili
Einar Sigurfmnsson lést í maí 2004
en Sigurfmnur, bróðir hans, segir
að Einar hafi almennt látið vel af
vistinni í Breiðavík. „Einar og Ingi
voru sendir til Breiðavíkur en þetta
var upphaflega sveitaheimili. Eg
hef upplýsingar um að þetta hafi
verið gott heimili og gott starfsfólk
þann tíma sem Einar dvaldi þarna.
Strákamir sinntu almennum
sveitastörfum og eitthvað sóttu þeir
sjó en á þessum tíma vom tíu
strákar á heimilinu.
Um vorið þegar Einar var þarna
kom Bergsveinn Skúlason í af-
leysingar og þess má geta að eftir
hann liggja bækur og greinar um
ýmsan fróðleik og þá aðallega um
Breiðfirskar sagnir. Þegar hann fór
frá Breiðavík, tók hann Einar með
sér en Bergsveinn var bóndi á Ögri,
frekar en Múla á Snæfellsnesi.
Einar var hjá honum í vinnu-
mennsku um tíma.“
Sigurftnnur segist ekki geta
fullyrt hver ástæðan var fyrir því
að Einar var sendur á Breiðavík en
sagðist vita að Einar hafi verið
latur að læra á þessum tíma. „Eg
lenti í mjög slæmu slysi 1948 en
þá var ég fjögurra ára og þurfti
mikið að vera á spítala. Foreldrar
mínir skiptust á að vaka yfir mér
og mér var vart hugað líf. Ég þurfti
í framhaldinu að fara í margar
aðgerðir t.d. þegar ég var átta ára.
Eg held að Einar hafi því þurft að
bjarga sér svolítið sjálfur á þessum
tíma og ég veit að hann þótti svo-
lítið ódæll, var kannski ekki mikið
að grúska í skólabókum. Ég man
að það var talað um að hann hafi
hent skólatöskunni undir tröpp-
umar þegar hann kom heim úr
skólanum og síðan lá leiðin beint
niður á bryggju.
Mamma fór vestur þegar Einar
var fermdur og hún talaði um að
það haft verið erfið ferð. En eins
og fram hefur komið í fjölmiðlum
þá er Breiðavík mjög afskekkt og
hún talaði um að þangað haft þurft
að fara á hestum.
Þegar Einar kom heim aftur fór
hann að blóta Bakkus en þeirra
leiðir skildu 1979. Einar var aldrei
vondur með víni og alltaf minn
ljúfi, góði bróðir,“ sagði
Sigurfmnur að lokum.
Vildi frekar vera 1 fiski en
skóla
Ingi Einarsson var á Breiðavík á
sama tíma og Einar og segir þetta
hafa verið venjulegt sveitaheimili.
„Þama vom lærðir og góðir
kennarar og fólkið sem vann þarna,
var úr sveitinni og þá var byggð á
Hvallátrum.
Við vorum sendir vestur í febrúar
1953 og okkur sagt að við yrðum
þama í tvö ár. Við vomm bara
krakkar og fólkið á staðnum sá
fljótlega að við Einar áttum ekki
heima þama. Njáll, kennarinn
minn, hjálpaði mér að skrifa bréf
heim þar sem staða mín var skýrð
og það er örugglega til í gögnum
hjá Vestmannaeyjabæ. Ég fékk
aldrei neitt svar frá barnaverndar-
nefnd, en þetta varð ábyggilega til
þess að ég komst heim aftur eftir
sex mánuði á Breiðavík."
Ingi segir einu ástæðuna fyrir því,
að hann var sendur í burtu til
Breiðavíkur, vera að hann vildi
ekki vera í skólanum. „Ég vildi
vinna í fiski, og það var ástæðan og
ég er að því leyti ósáttur við að
hafa verið sendur í burtu. En þarna
voru góðir kennarar og við lærðum
heilmikið.
Um sumarið kom Bergsveinn
Skúlason sem okkur líkaði mjög
vel við. Einar fór svo með honum
enda var Einar duglegur að vinna.
Trúlega var hann samt lokaðri og
dulari en ég.“
Ingi segist lika muna vel eftir
Ársæli vitaverði á Hvallátrum sem
hafi verið frábær maður sem strák-
amir hafi alveg dýrkað. „Þarna
voru góðir kennarar og gott starfs-
fólk. Ég hef ekki nema góða sögu
að segja frá þessu heimili sem
byrjaði vel en ég veit ekkert hvað
gerðist eftir að við vorum þarna.
Ætli það haft ekki verið spamaðar-
ráðstafanir hjá ríkinu, þá fer þetta
allt í vitleysu.
Þessi umræða um Breiðavík hefur
komið mér mjög á óvart og greini-
legt að það hefur eitthvað mikið
farið úrskeiðis. Það er sorglegt,"
sagði Ingi þegar hann var spurður
út í tímann sem hann dvaldi á
Breiðavík.
Gudbjorg @ eyjafrettir. is
Af vettvangi bæjarins:
Dagfor-
eldrar
óskast
-Vilt þú njóta dagsins
með litlum börnum?
I Vestmannaeyjum er þörf fyrir
fleiri dagforeldra í heimahúsum
til að gæta yngstu Vestmanna-
eyinganna. Ef til vill er það eitt-
hvað fyrir þig? Starf sem dag-
foreldri í heimahúsum felur í sér
spennandi og kreíjandi verkefni
með litlum bömum.
Fyrir hverja?
Til að gerast dagforeldri þarft þú
að hafa rika ábyrgðartilfmningu
og geta veitt bömunum góða um-
önnun, öryggi og hlýju. Þú þarft
ekki að hafa aðra menntun en
námskeið fyrir dagforeldra og
taka þátt í skyndihjálpamám-
skeiðum og öðrum námskeiðum
og fræðslu sem boðið er upp á
hverju sinni.
Sjálfstæð vinna
Sem dagforeldri starfar þú sem
sjálfstæður verktaki, en starfsleyfi
og eftirlit er í höndum leikskóla-
fulltrúa Vestmannaeyjabæjar.
Sparnaður
Sem dagforeldri gætir þú barna á
þínu eigin heimili og sparar þér
þannig tíma og peninga við að
koma eigin bömum í gæslu.
Tími fyrir eigin börn
Sem dagforeldri skapar þú þér
atvinnu, sem gefur þér möguleika
á að verja meiri tíma með eigin
börnum um leið og þú hefur
tekjur af að gæta bama annarra.
Leyfi er veitt fyrir allt að fjórum
bömum fyrsta árið og fimmta
baminu eftir eitt ár, þar með eru
talin eigin börn undir grunn-
skólaaldri.
Námskeið fyrir starfandi og nýja
dagforeldra hefst 28. febrúar og
stendur til 4. apríl.
Er þetta eitthvað fyrir þig?
Þjónustumiðstöð Vm:
Eyjatré á
lægsta
tilboðið
Tilboð í framkvæmdir vegna
útveggjaklæðningar o.fl. á hús-
næði Þjónustumiðstöðvar Vest-
mannaeyja að Heiðarvegi 14,
voru opnuð þriðjudaginn 13.
febrúar.
Þrjú tilboð bárust, það lægsta frá
Eyjatré ehf. að upphæð
2.997.142,- kr. sem er 96,35% af
kostnaðaráætlun, frá JR verk-
tökum að upphæð 4.592.570,- kr,
eða 147,64% af kostnaðaráætlun
og frá Steina og Olla ehf., að
upphæð 7.124.300,- kr. sem er
229,02% af kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
3.110.730,- kr..