Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 15.02.2007, Side 9

Fréttir - Eyjafréttir - 15.02.2007, Side 9
Fréttir / Fimmtudagur 15. febrúar2007 „Umboðsmaðurinn fékk fyrir- spurn frá ÍBV og í kjölfarið talaði ég við systur mína. Hún sagði mér að ÍBV væri með gott lið, væru meistarar og mælti með því að ég kæmi hingað," segir Branca en þær systur hafa alla tíð haldið góðu sambandi sín á milli og tala helst ekki minna saman en einu sinni á dag. Áhorfendur í Eyjum hafa líka séð Jelenu oftar en einu sinni á áhorfendapöllunum í Eyjum, jafn- vel þó systir hennar sé ekki að spila. En hvemig leist þeim stöllum á Vestmannaeyjar við komuna? „Þegar ég kom hingað í ágúst 2005 var hitastigið þokkalegt. Reyndar var bara fimmtán gráðu hiti en á sama tíma var þrjátíu stiga hiti heima þannig að ég fór úr sumar- veðri og í hálfgert haustveður þótt enn væri sumar,“ segir Pavla. „En héma er mjög fallegt, fjöll allt í kring og eldfjallið hér og hraunið er allt mjög nýtt fyrir mér. Þetta er auðvitað allt öðruvísi en í Prag sem er stórborg með fullt af fólki en á móti kemur að hér er vinsamlegra samfélag. Þar er lfka stórhættuleg umferðarmenning en hér labbar maður um allt á innan við fimm mínútum. Fólkið hérna er líka mjög vinsamlegt, heilsar mér á götu úti þannig að mér líður mjög vel héma.“ Branca tekur undir þetta og segist aldrei hafa lent í því áður að fólk komi að máli við hana úti á götu úti, ekki einu sinni í Danmörku. „Ég þekki þetta ekki og þetta þekkist ekki í stórborgum Evrópu. Þegar ég var í Danmörku var varla yrt á mann en svo kemur maður hingað og það em allir tilbúnir að spjalla við mann og heilsa manni úti á götu. Jafnvel fólk sem maður hefur ekki séð áður,“ bætir Branca við en hún segist hafa kynnt sér aðstæður á Islandi áður en hún kom hingað. „Jelena var dugleg að benda mér á, t.d. eldfjallið hérna og ýmislegt svoleiðis þannig að ég vissi að hverju ég gekk þegar ég kom. Svo lék ein af mínum betri vinkonum héma fyrir nokkrum ámm, Tamara Mandzic," en Tamara lék með ÍBV tímabilið 2000 til 2001 við góðan orðstír. Þær segja það hins vegar ekki hafa verið erfitt að venjast aðstæð- um hér eins og t.d. ferðalögum í leiki. „Mér finnst ekki gaman að ferðast með bátnum, betra að fljúga," segir Pavla. „Okkur finnst samt ekkert erfitt að ferðast svona í útileiki en þetta er samt frekar óhentugt, að eyða kannski heilum degi í ferðalag fyrir einn leik,“ bætir Branca við. „En svona er þetta bara og við tökum því,“ bætir hún við. Harðari handbolti á íslandi Báðar em þær á því að íslenskur handbolti sé á uppleið en Pavla segir handboltann hér hafa ýmis- legt fram yfir þann tékkneska. „Hér er t.d. varnarleikurinn mun harðari, mikið um brot en svona vamarvinna þekkist varla heima. Svo finnst mér líka meiri hraði hér en í tékkneska boltanum." Branca hefur mun meiri reynslu úr alþjóðlegum handbolta og því forvitnilegt að vita hvað henni finnst um handboltann hér á ís- landi. „Ég held að kvennahand- boltinn hérna, og kannski helst íslenska landsliðið, sé á uppleið. Mér finnst það reyndar nokkuð merkilegt í landi sem hefur ekki fleiri íbúa. Ég meina, það ætti ekki að vera mikið mál að finna fjórtán stelpur til að spila handbolta í borg sem telur milljónir. En að halda úti heilli deild í landi sem telur 300 þúsund. Það finnst mér merkilegt. Og líka að karlaliðið skuli ná svona merkilegum árangri er ekki síður athyglisvert." Þeir sem fylgjast með handbolt- anum hafa væntanlega tekið eftir því að árangur ÍBV liðsins það sem af er þessu tímabili hefur líklega ekki verið jafn slakur í ein sjö ár. Reyndar er liðið í undanúrslitum bikarkeppninnar en þegar þetta er skrifað er það aðeins fjarlægur möguleiki að Islandsmeistaralið ÍBV verji titil sinn. En í hverju liggur munurinn? „Á síðasta ári voru fleiri Islend- ingar í liðinu og þær voru eldri en þær sem nú eru. Stelpumar núna eru reynslulitlar en í fyrra voru t.d. Ingibjörg, Eva og Ragna Karen sem spiluðu stórt hlutverk í liðinu. Svo er hópurinn minni núna en í fyrra, færri leikmenn en ungu stelpumar fá góða reynslu núna.“ Og Pavla segir möguleika IBV í undanúrslitum bikarkeppninnar gegn Gróttu vera jafna. „Við unnum þær héma síðast og ég held að við getum alveg gert það aftur. Þá vorum við heppnar og það þarf heppni.“ „Ég er ekki sammála að við höfum verið heppnar gegn Gróttu," skýtur Branca inn í. „Svona er handbolti. Stundum skilur bara eitt mark að og það skiptir ekki máli hvort sigurmarkið kemur þrjátíu sekúndum eða þremur fyrir leikslok. Maður skapar sér sína eigin heppni en við getum alveg unnið Gróttu," segir hinn leik- reyndi markvörður ÍBV. Þegar talið berst að framtíðinni kemur í ljós að það er óljóst hjá þeim báðum. „Mig langar að stofna fjölskyldu og ég veit ekki hversu lengi ég kem til með að spila handbolta," segir Pavla en útilokar ekki að spila eitt ár í viðbót. Branca segist hins vegar taka aðeins eitt tímabil fyrir í einu og skal engan undra, enda verður hún 36 ára í apríl. „Ég svara engu enda veit ég ekki hvað tekur við næst. Þú getur spurt mig í sumar," segir Branca að lokum. Stefnum á að komast upp -segir Gintaras Savukynas, þjálfari karlaliðsins GITARAS segir að sér líði nokkuð vel í Vestmannaeyjum, hér sé rólegt og gott að vera. Hann segir hins vegar IBV líða nokkuð fyrir samgöngur. „Það er eins með yngri flokkana sem ég þjál- fa, 2. flokk og unglingaflokk. Þessi lið voru kannski að spila þrjá eða fjóra leiki hvort um sig fyrir áramót vegna þess að það var alltaf verið að fresta leikjum. Svo hrúgast allir leikirnir saman á stuttum tíma og það er vonlaus staða fyrir leikmenn og þjálfara. Sem dæmi get ég nefnt að núna um helgina léku nokkrir strákar fjóra leiki, þar af einn mjög erfiðan meistaraflokksleik og sama dag Iéku strákarnir í öðrum flokki. Gintaras Savukynas hefur séð um þjálfun karlaliðs IBV í vetur en þessi litháenski þjálfari hóf störf hjá félaginu nú í haust. Árangur IBV var þokkalegur fyrir áramót en liðið hefur heldur betur hrokkið í gang eftir áramót og hefur nú aðeins tapað einum leik. Auk þess er liðið í öðru sæti 1. deilarinnar, þremur stigum á undan FH sem er í þriðja sæti. Tvö efstu liðin komast upp í úrvalsdeild í vor. Gintaras var þó þekktastur fyrir afrek sín inni á handboltavellinum frekar en utan hans því hér á árum áður lék hann við góðan orðstír með Aftureldingu og síðar hálft tímabil með Gróttu. Áður fyrr lék hann með Granitas Kaunas, fyrst í gömlu, sovésku 2. deildinni en eftir að þau urðu að engu lék hann áfram með liðinu í litháensku deildinni. Gintaras kom einnig við í Noregi í einn vetur þegar hann lék með Kristianssand. Meiðsli bundu hins vegar enda á feril hans þegar hann lék með Gróttu og þá sneri hann sér að þjálfun. „Ég tók við Viking Malt Panevezys í Litháen strax eftir að ég kom heim frá Gróttu. Ég hafði komist að samkomulagi um að rifta samningi mínum þar vegna meiðsla sem ég hafði orðið fyrir og ég vissi að ég gæti ekki náð mér nógu fljótt. Eftir stuttar viðræður við forráðamenn Viking Malt þá var ákveðið að ég tæki við liðinu í febrúar og myndi stýra því út tíma- bilið. Árangurinn var góður, reyndar náðum við ekki neinu af toppsætunum en liðið bætti sig mikið og því var komist að sam- komulagi um að ég myndi halda áfram. Ég stýrði liðinu í tvö ár til við- bótar. Fyrra árið urðum við bikar- meistarar og enduðum í öðru sæti í litháensku deildinni en síðara árið urðum við litháenskir meistarar og töpuðum bikarúrslitaleiknum mjög naumlega,“ Eins og sjá má virtist Gintaras vera með liðið í góðum málum en af hveiju að skipta og koma til ÍBV? „Hlynur Sigmarsson, formaður IBV, hafði samband og við ræddum saman. Ég tel það hollt fyrir þjálfara að taka að sér mis- munandi verkefni við mismunandi aðstæður. Það er rétt, mér gekk vel með Viking Malt en ég vildi sækja mér reynslu og ég vissi nokkurn veginn að hverju ég gengi hér. Hlynur sagði mér að liðið væri ungt með nokkra reynslubolta, eins og Erling Richardsson, Sigurð Bragason og fleiri og að liðið væri í 2. deild. Það var því ekkert sem kom mér á óvart.“ En ertu ánægður með stöðu liðsins eins og hún er núna og þá á ég ekki bara við stöðuna í deildinni? „Já, mjög svo. Fyrir tímabilið þá stefndum við á að vera í öðru af tveimur efstu sætum deildarinnar og þar erum við núna. Liðið sjálft er farið að spila mjög vel, sérstak- lega eftir að nokkrir reynsluboltar bættust við eins og Sindri Har- aldsson, Sigþór Friðriksson og landi minn Remigijus Cepulis. Allir hafa þeir aukið breiddina og styrkt liðið mikið. Hins vegar verður fólk að vera þolinmótt. Við byggjum ekki upp meistaralið á nokkrum mánuðum, það verður að gefa þessum strákum tíma til að þroskast." Gintaras segir að sér líði nokkuð vel í Vestmannaeyjum, hér sé rólegt og gott að vera. Hann segir hins vegar IBV líða nokkuð fyrir samgöngur. „Það er eins með yngri flokkana sem ég þjálfa, 2. flokk og unglingaflokk. Þessi lið voru kannski að spila þrjá eða fjóra leiki hvort um sig fyrir áramót vegna þess að það var alltaf verið að fresta leikjum. Svo hrúgast allir leikirnir saman á stuttum tíma og það er vonlaus staða fyrir leikmenn og þjálfara. Sem dæmi get ég nefnt að núna um helgina léku nokkrir strákar fjóra leiki, þar af einn mjög erfiðan meistara- flokksleik og sama dag léku strákarnir í öðrum flokki. Sumir þeirra voru orðnir ansi þreyttir í lokin," sagði Gintaras. „Ferðalögin geta líka verið mjög erfið og langdregin en við búum við þetta og reynum að gera það besta úr því sem við höfum.“ Þú sagðir áðan að markmiðið fyrir tímabilið hafi verið að komast upp í úrvalsdeild. Er ÍBV með nógu góðan mannskap til að spila þar í dag? „Nei. Það þyrfti að styrkja liðið eitthvað ef við ætlum að tefla fram liði í efstu deild. Við erum hins vegar með mjög efnilegt lið og stefnum ótrauðir upp í úrvals- deild.“ Hvað með samanburðinn á lit- háenskum handbolta og íslenskum? „Handboltinn er í raun mjög svipaður hér og í Litháen. Það er kannski helst að hann sé harðari í Litháen en annars finnst mér hand- boltinn vera að þróast víðast hvar í sömu átt. Núna sjáum við mun meira af mörkum en áður. Það voru t.d. sjaldan skoruð yfir þrjátíu mörk í sovésku deildinni en núna skora lið varla minna en um og yfir þrjátíu mörk.“ Þegar þjálfarinn er spurður út í það hvort hann geti hugsað sér að vera áfram þjálfari ÍBV, verður hann sposkur á svip. „Það er eitt- hvað sem ekki á heima í blöðunum heldur er það einungis milli mín og stjómar ÍBV. Þegar náðst hefur samkomulag verður það gert opin- bert,“ sagði Gintaras að lokum. julius @ eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.