Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 15.02.2007, Qupperneq 15

Fréttir - Eyjafréttir - 15.02.2007, Qupperneq 15
Frcttif / Fimmtudagur 15. febrúar 2007 15 |PHL deild kvenna: ÍBV - Fram 20:22, Valur - ÍBV 38:21 Sautján marka tap fyrir Val á útivelli „Einbeitum okkur núna að bikarleiknum," segir Einar Jónsson, þjálfari Valentina Radu, sem hér er í leik gegn Val fyrr í vetur hefur leikið sínn síðasta leik með IBV og sömuleiðis markvörðurinn Branca Javonovic. íslandsmeistarar ÍBV töpuðu með sautján mörkum gegn Val þegar liðin mættust á heimavelli Valsstúlkna á þriðjudaginn. Loka- tölur urðu 38:21, ótrúlegur munur og líklega eitt stærsta tap IBV hin síðari ár. Yfirburðir Vals voru algjörir, liðið skoraði fyrstu níu mörk leiksins og voru yfir í hálfleik 20:8. Einar Jónsson, þjálfari ÍBV hafði ekki mikið að segja um leikinn. „Þetta var náttúrulega bara búið í fyrri hálfleik og í raun áttum við aldrei möguleika. Þær komast strax níu mörkum yfir, spiluðu mjög góða vöm og keyrðu stíft á hraðaupp- hlaupum. A meðan vorum við ekki að spila neina vöm og því fór sem fór. Það er í raun fátt gott að segja um leikinn en ef það er eitthvað þá var það markvarslan því þær Heiða og Ecaterina vörðu vel miðað við aðstæður.“ Næsti leikur ÍBV er næstkomandi þriðjudag þegar ÍBV tekur á móti Gróttu í undanúrslitum bikarkeppn- innar. Miðað við þessi úrslit, hvernig leggst leikurinn í þjálf- arann? „Hann leggst bara vel í mig. Við verðum á heimavelli og höfum unnið þær áður í vetur. Við komum til með að reyna að gleyma Vals- leiknum sem fyrst og einbeita okkur að bikarleiknum. Ungu stelpurnar eru líka búnar að fá nokkuð margar mínútur í síðustu leikjum, búnar að gera sín mistök og liðið verður bara betra héðan í frá. En ég lofa því að við gefumst ekkert upp fyrirfram," sagði Einar. Mörk ÍBV: Pavla Plaminkova 13, Pavla Nevarilova 3, Sæunn Magnúsdóttir 2, Sædís Magnús- dóttir 1, Elísa Viðarsdóttir 1, Sara Sigurðardóttir 1. Ungu stelpurnar í stórum hlutverkum Á laugardaginn tóku Eyjastúlkur á móti Fram en fyrir leikinn var IBV í fimmta sæti deildarinnar og Fram í því sjötta. Með sigri hefðu Eyjastúlkur enn haft von um að komast upp á meðal fjögurra efstu liða deildarinnar en aðeins munaði einu stigi á IBV og Haukum, sem eru í fjórða sæti. Hins vegar voru það Framstúlkur sem höfðu betur, voru yfir 11:12 í hálfleik og unnu að lokum 20:22 í mjög svo bragðdau- fum leik. Skrautfjaðrirnar hafa verið að reytast af liði IBV að undanfömu, skyttan Valentina Radu og mark- vörðurinn Branca Javonovic vom ekki með og hornamaðurinn Renata Kári Horvath er aðeins skugginn af sjálfum sér vegna veikinda. Leikmannahópur IBV er vægast sagt mjög þunnur en í leiknum léku þrír leikmenn úr unglingaflokki stórt hlutverk hjá fslandsmeist- urunum og einn leikmaður úr fjórða flokki. ^ Mörk ÍBV: Pavla Plaminkova 6/1, Hekla Hannesdóttir 4, Sæunn Magnúsdóttir 4, Pavla Nevarilova 3, Renata Horvath 1, Elísa Viðarsdóttir 1, Sædís Magnúsdóttir I. Varin skot: Ecaterina Dzkukeva 15/1. Valentina og Branca á heimleið Það vakti athygli í leik ÍBV og Fram í DHL deild kvenna að örvhenta skyttan Valentina Radu sat á meðal áhorfenda og Branca Javonovic var ekki á leikskýrslu. Valentina hefur ekki þótt standa undir væntingum og hefur verið ákveðið að rifta samningi við hana. Valentina lék þrettán leiki með ÍBV og skoraði í þeim 50 mörk. Branca er hins vegar meidd og ekki útlit fyrir að hún muni ná sér áður en leiktíðinni lýkur. Því var sömuleiðis komist að samkomulagi við hana um að rifta samningnum. Hlynur Sigmarsson, formaður handknattleiksdeildar IBV sagði báða leikmennina meidda. „Branca bauðst til þess að rifta samningnum þar sem hún gengur ekki heil til skógar en við ákváðum að gera slíkt hið sama við Valentinu." Þar með hafa þrír leikmenn yfir- gefið herbúðir ÍBV en Andrea Löw fór frá liðinu í desember. Hlynur segir þó ekki útilokað að leikmenn komi í stað þeirra sem nú fóru. „Við höfum verið að reyna að fá tvo leikmenn til okkar og ég á von á því að það mál skýrist fyrir helgi,“ sagði Hlynur. 1. deild karla: ÍBV - Afturelding 33:34 Baráttan verður um annað sætið Karlalið ÍBV tapaði á heimavelli gegn Aftureldingu í uppgjöri topp- liða l. deildar um helgina. Afturelding hefur haft talsverða yfirburði í vetur og hefur ekki tapað leik en fram að leiknum höfðu Eyjamenn ekki tapað leik eftir áramót. Lokatölur urðu hins vegar 33:34 eftir jafnan og spennandi leik. Yfirleitt skildi ekki meira en eitt mark liðin að en í hálfleik var jafnt 15:15. Framan af síðari hálfleik var jafnt á öllum tölum en Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar tók þá til þess ráðs að skipta sjálfum sér inn á. Fljótlega eftir það náðu gestirnir undirtökunum og náðu mest þriggja marka forystu. Sigur Aftureldingar var að lokum nokkuð öruggur þó aðeins munaði einu marki í lokin. Þar með er ljóst að Afturelding er nánast örugg með efsta sætið en Eyjamenn hafa alla möguleika á að halda öðru sæti deildarinnar. Mörk IBV: Sigurður Bragason 15/5, Grétar Þór Eyþórsson 6, Leifur Jóhannesson 4, Remigijus Cepulis 4, Sindri Haraldsson 2, Eyþór Björgvinsson 1, Erlingur Richardsson 1. Varin skot: Kolbeinn A. Amarsson 10/1, Friðrik Sigmarsson 1. Körfubolti Héldu sæti í B-riðli Um helgina fór fram fjölliðamót í körfubolta í Eyjum fyrir sjöunda flokk karla. Um var að ræða keppni í B-riðli Islandsmótsins en auk IBV vom Grindavík, Haukar, ÍR og Breiðablik í riðlinum. Fyrri daginn mættu Eyjamenn tveimur sterkustu liðunum, Grinda- vík og ÍR. Leikurinn gegn Grind- víkingum var jafn og spennandi allt þar til í síðasta leikhluta að Grind- xvíkingar sigu framúr. Sömu sögu var að segja af leiknum gegn IR en þrátt fyrir töpin tvö voru strákarnir nokkuð bjartsýnir á að halda sæti sínu í riðlinum. Talið var að bar- áttan um fallið yrði milli ÍBV og Hauka en þau mættust í fyrsta leik sunnudagsins. Eyjapeyjar mættu full værukærir til leiks, sýndu litla baráttu og fór svo að Haukar unnu. Það var því ekkert annað en sigur sem kom til greina gegn Breiðablik og Eyjapeyjar sýndu loks sitt rétt andlit og unnu öruggan sigur á annars ágætu liði Breiðabliks. Þar með héldu strákarnir sæti sínu í B-riðlinum, enduðu í þriðja sæti sem telst mjög góður árangur enda eru flestir strákarnir með litla reynslu af körfubolta. Stigahæstir hjá ÍBV voru þeir Tómas Orri með 37 stig, Aron Valtýsson með 25 stig og Halldór Páll með tíu. Úrslit leikja ÍBV urðu þessi: ÍBV- Grindavík 21-34, ÍBV-ÍR 28-46, ÍBV-Haukar 28-37, ÍBV-Breiðablik 39-21. Tillaga KFS samþykkt Á ársþingi KSÍ, sem fram fór á laugardaginn var samþykkt álykt- unartillaga KFS er varðaði breytingar á bikarkeppninni. Nú koma öll úrvalsdeildarlið inn í keppnina í 24 liða úrslitum, fyrir utan þau fjögur sem leika í Evrópukeppninni en þau koma inn í keppnina í 16 liða úrslitum. í greinargerð sem fylgdi tillög- unni kom fram að litlar líkur væru á að litlu liðin mættu þeim stóru við núverandi fyrirkomu- lag. Þá voru þeir Jóhannes Ólafsson og Einar Friðþjófsson endur- kjömir í stjóm KSÍ. Hópfimleikar Flestar stelpurnar að stíga sín fyrstu skref Átta stelpur frá Rán keppti á byij- endamóti í hópfimleikum 3. febrúar síðastliðinn á Selfossi. Alls tóku ellefu lið þátt í mótinu og urðu okkar stelpur í þriðja sæti. Um helgina kepptu svo tíu stelpur frá Rán á Unglingamóti í hópfim- leikum en keppt var eftir alþjóða- reglum. Ránarstúlkur enduðu í sjötta sæti af átta liðum. Flestar stelpumar í liðum Ránar em að stíga sín fyrstu skref í hópfim- leikum. Keppt er í þremur greinum dansi, æftngum á dýnu og trampo- línstökkum með og án hests. Á myndinni er lið Ránar í Unglingamótinu. íþróttir Fjórði flokkur í undanúrslit A-lið fjórða flokks kvenna komst í undanúrslit bikarkeppninnar um helgina. Stelpurnar léku gegn Víking í átta liða úrslitum í Eyjum og unnu auðveldan sigur 21:12 en staðan í hálfleik var 7:7. I undanúrslitum fengu stelpurnar heimaleik gegn HK en ekki liggur fyrir hvenær leikurinn fer fram. Mörk ÍBV: Elísa 6, Lovísa 4, Aníta 4, Saga 3, Eva 3, Andrea 1. B-liðið lék tvo leiki um helg- ina. Fyrst var leikið gegn Gróttu og unnu Eyjastúlkur 12:28 en daginn eftir unnu stelpurnar HK 15:27. Markahæstar voru þær Ama með fjórtán mörk, Bylgja með tólf og Sandra með ellefu. Sigur hjá þriðja flokki Annar flokkur karla lék tvívegis gegn Aftureldingu um helgina. í fyrri leik liðanna, sem fram fór á laugardag skömmu eftir leik meistarallokksliðanna, áttu Eyja- menn fá svör við leik gestanna. Staðan í hálfleik var 6:18 en lokatölur urðu 18:36. Síðari leikurinn var mun betri af hálfu ÍBV, staðan í hálfleik var 9:12 en lokatölur urðu 19:23. Markahæstir um helgina voru þeir Grétar Stefánsson með sjö mörk og þeir Daði Magnússon og Sævald Hallgrímsson skoruðu fimm. Þriðja flokkslið félaganna léku sömuleiðis um hclgina. Eyja- menn voru einu marki yfir í hálfleik 13:12 og unnu að lokum með tveimur mörkum, 26:24. Mörk ÍBV: Kristinn Amarsson 8, Brynjar Karl Óskarsson 5, Bragi Magnússon 5, Þórhallur Friðriks- son 5, Vignir Stefánsson 2, Haraldur Pálsson I. Framundan Laugardagur 17. febrúar Kl. 13.30 HK-ÍBV Unglingaflokkur kvenna. Kl. 16.00 ÍBV-Afturelding 4. flokkur karla AB. Kl. 16.30 ÍBV-UMFH 2. deild karla, körfubolti. KI. 16.45 FH2-ÍBV Unglingaflokkur karla. Sunnudagur 18. febrúar Kl. 9.00 Afturelding-ÍBV Unglingaflokkur karla. Kl. 10.00 Stjarnan-ÍBV Unglingaflokkur kvenna. Kl. 10.00 ÍBV-Afturelding 4. flokkur karla AB. Kl. 11.00 ÍBV-UMFH 2. deild karla, körfubolti. Kl. 14.00 Haukar2-ÍBV 1. deild karla. Kl. 14:00 Breiðablik-ÍBV Deildarbikar karla, Fífunni. Þriðjudagur 20. febrúar Kl. 19.00 ÍBV-Grótta SS bikar kvenna.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.