Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Blaðsíða 1
Bílaverkstæðið BrAGGINN sf. Flötum 20 Viðgerðir og smurstöð - Sími 481 3235 Réttingar og sprautun - Sími 481 1535 36. árg. I 08. tbl. I Vestmannaeyjum 26. febrúar 2009 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is -Þegar útlitið var hvað svartast á síðasta ári dreymdi spekinga VSV fyrir loðnugöngum. Það stóðst, segir aðstoðarforstjóri Loðnuvertíð virðist um það bil að ljúka því ekki hefur tekist að mæla nægjanlegt magn til að gefa út leyfi fyrir frekari veiði. I byrjun febrúar var gefinn út 15.000 tonna rann- sóknarkvóti í loðnu. Isfélagið er u.þ.b. að Ijúka veiðum á 3000 tonn- um sem þeir fengu úthlutað og Vinnslustöðin 1500 tonn. Þar á bæ treysta menn nú á draumspaka menn Forseti ASÍ , Gylfi Ambjörnsson, sendi fimm stéttarfélögum bréf í vikunni en sex stéttarfélög innan ASI hafa mótmælt því að um- samin taxtahækkun á launum taki ekki gildi 1. mars eins og samið var um. Félögin sex lögðu fram tiliögu þess efnis að félags- menn fengju sjálfir að kjósa um tiilögu samninganefndar ASI, þ.e. um að fresta launahækk- unum þar sem þau telja samninganefndina ekki hafa og konur sem hafa oft haft rétt fyrir sér um gang loðnuvertíða. „Við fengum 3000 tonna rannsókn- arkvóta og erum komnir langt með hann. Guðmundur fékk 850 tonn, Álsey landaði 600 tonnum á þriðjudag, Júpíter er að landa um 900 tonnum og Álsey er farin út til að sækja restina,“ sagði^ Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Isfélags- umboð til að skerða samninginn. Arnar Hjaitalín, formaður Drífanda, staðfesti að forseti ASÍ vildi að félögin sex segðu sig frá samfloti ASI og að félögin stæðu þá saman ein og sér. „Okkur finnst það skjóta skökku við og stangast á við kjörorð ASÍ, „Stöndum sterkari saman“ þegar kemur fram til- laga um að vísa okkur frá sam- starfi. Virðist ástæðan vera sú að samninganefnd ASÍ vill komast ins þegar leitað var frétta hjá honum á miðvikudagsmorgun. „Það lítur út fyrir að þessari loðnu- vertíð sé lokið því það næst ekki að mæla nægilegt magn til að hægt sé að gefa út meiri kvóta. Við verðum að taka því, enda viljum við stunda ábyrgar veiðar. Vonandi finnum við leið til að bæta þetta upp,“ sagði Eyþór en nú er verið að frysta hrogn hjá því að taka afstöðu til tillög- unnar sem gengur út á það eitt að efla lýðræði innan hreyfing- arinnar. Við vildum ekki gera þeim það til geðs og ítrekum tillöguna sem liggur hjá samninganefnd ASÍ. Við höldum félagsfund í næstu viku og förum yfir stöðuna með okkar félagsmönnum,“ sagði Arnar þegar hann var spurður út í málið. og hann reiknaði með að vinnu við það yrði lokið á laugardag. „Það ríkir óvissa með framhaldið og það hvort menn reyna við gull- deplu eða bíða eftir norsk-íslensku sfidinni sem hefst um miðjan maí.“ Sighvatur VE var á miðvikudag að sækja það sem upp á vantaði, þ.e. úr 1500 tonna rannsóknarkvótanum sem Vinnslustöðin fékk úthlutað. Stefán Friðriksson, aðstoðarfor- stjóri Vinnslustöðvarinnar sagði að loðnan sem komið hefði í land hefði verið fryst og aflinn sem kæmi úr Sighvati í dag, fimmtudag, færi í hrognavinnslu. Þegar hann var spurður hvort hann gæti eitthvað spáð um framhaldið sagði hann það eina sem þeir gætu stuðst við væru draumar góðra manna og kvenna. „Draumspakir menn segja að fram- hald verði á veiðum og við verðum að hanga á því,“ sagði Stefán en í fyrra þegar útlitið var hvað svartast í fyrra dreymdi spekinga Vinnslu- stöðvarinnar fyrir loðnugöngum. Það stóð allt heima. Nú er bara að vona það besta. Höllin 28. febrúar: Bryndís túlkar Janis Laugardag- inn 28. febrúar verða haldnir í Höllinni sérstakir „Tribute tónleikar" Janis Joplin. Þar verða öll helstu lög goðsagnarinnar flutt. Það er Bryndís Ásmundsdóttir, söngkona, sem mun túlka lög Joplin en henni til fulltingis er fimm manna hljómsveit. Tónleikamir eru unnir út frá sýningunni Janis 27 sem sýnd var í Islensku Operunni. Bryndís sagði í stuttu samtali við Fréttir að Eyjamenn verði fyrstir til að njóta tónleikanna. „Við reyndar tókum generalprufu í Rósenberg um síðustu helgi og fengum mjög góð viðbrögð. Þarna erum við með öll flottustu lögin, 19 til 20 lög og öll hennar bestu lög. Með mér eru strákar sem sjá til þess að við náum rétta „rokksoundinu" en við pössum sérstaklega upp á það. Lög Janis Joplin voru öll mjög hrá og við berum fulla virðingu fyrir því.“ Ertu sjálf aðdáandi? „Já, ég hef verið aðdáandi Janis Joplin lengi. Byrjaði auðvitað, eins og allir, að syngja með í hennar vinsælustu lögum í part- ýum, Bobby McGee, Mercedes Benz og fleiri og var eiginlega farin að syngja þessi lög óum- beðin,“ sagði Bryndís hlæjandi. Hún segir jafnframt að það sé krefjandi að flytja lög Joplin. „Janis Joplin söng öll lögin út frá hjartanu og lagði mikla tilfinn- ingu í þetta. Þú kemst ekkert upp með að syngja þessi lög nema leggja áhica mikla tilfinningu í flutninginn og þess vegna tökum við hlé,“ segir Bryndís og hlær ekki minna. „Ég verð bara að pústa aðeins enda standa tónleik- amir í rúman einn og hálfan tíma og að syngja þessi lög í svona langan tíma er ekki eðlilega erfitt. En ég skora á Eyjamenn að koma á tónleikana, sama hvort þeir eru Joplin aðdáendur eða ekki. Við hlökkum til að spila fyrir ykkur öll.“ Tónleikamir hefjast klukkan 21:15 en húsið er opnað kl. 20.30. Forsala miða hófst síðasta mánudag en miðaverð er 2900 krónur Ut með landsbyggðarfélögin? Á ÞRIÐJUDAGINN var byrjað að kreista hrogn úr loðnunni og hér er Kristján Hilmarsson að fylgjast með þeim koma út úr skiljun- Enn ekki verið gefinn út meiri loðnukvóti - Halda þó í vonina Draumspakir þó bjartsýnir SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA VÉLA- OG BÍLAVIÐGERÐIR mar VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI <35» ÞJÓNUSTUAÐILITOYOTA í EYJUM / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMU FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM. 864-4616

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.