Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Page 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 26. febrúar 2009
Úr blogghcimum:
Karl Gauti Hjaltason bloggar:
Trúverðugur
Horfði á Davíð í
Kastljósinu og
fannst hann trú-
verðugur. Veit þó
að ég á ekki marga
skoðanabræður, en
það skiptir þó litlu.
Man vel eftir uppá-
stungu hans um þjóðstjórn og spyr
af hverju menn urðu vitlausir vegna
þessarar tillögu Davíðs? Hefur
ekki einmitt komið f ljós að þetta
var kórrétt hjá honum.
Hljóta ekki menn einnig að taka
undir með honum að loforðið um
að hverjum steini yrði velt við
hefur ekki verið efnt svo nokkurt
vit sé í!
Og hvað með einkahlutafélögin
og vildarlánin til þeirra? Hvar eru
mál þeirra stödd og ég trúi bara
ekki að riftunarfrestir verði látnir
líða í karp um keisarans skegg.
Hefur enginn áhuga á neinu raun-
verulegu, bara að koma Davíð burt,
það er það eina sem kemst að.
Þá er ég sammála honum um að
stjómleysi og agaleysi sé algjört.
Hvað er þessi ríkisstjóm t.d. að
gera? Jú, koma honum frá og svo
hvað? Lækka skuldir um 20% - er
ekki allt í lagi með þingmennina?
Og er verið að telja kjark í allt það
fólk sem er að missa allt sitt?
Eg hef sagt það áður að við
hefðum betur átt að bregðast hart
við strax í upphaft eins og Bretar
gerðu með hryðjuverkalögunum,
skella öllu í lás svo menn hlypu
ekki út með góssið. En við gerðum
þveröfugt, réðum þessa sömu menn
til að stjóma bönkunum áfram og
réðum svo flokksgæðinga í allar
skilanefndir á sjálftökulaunum.
Vitleysan tekur engan enda.
Meira á:
http://eyjapeyji. blog. is
Georg Eiður Arnarson bloggar:
Núverandi
kvótakerfi og
hugmyndir FF
Stuðningsaðilar
núverandi kvóta-
kerfis eru að
rumska til lífsins í
aðdraganda kosn-
inga, en hver er
munurinn á
núverandi kerft og
hugmyndum FF að mínu mati?
Núverandi kerfi byggir á því, að
útgerðarmennimir eigi aflaheim-
ildimar og fari með þær eins og
þeim sýnist. Afleiðingamar höfum
við séð úti um allt land. Eitt af
nýjustu dæmunum eru afleiðingar
þess, að útgerðarmaður í Grímsey
ákvað að selja sínar aflaheimildir
hæstbjóðanda, sem varð til þess að
fyrir 2 ámm fóm 40% af aflaheim-
ildum í Grímsey frá eyjunni, sem
aftur gerði það að verkum að í dag
hafa um 40% íbúanna flutt á brott.
Stuðningsmenn núverandi kerfis
hér í Vestmannaeyjum tala oft um
það að Eyjamenn hafi nokkurn veg-
inn haldið sínum hlut í aflaheimild-
unum. Þetta er að vissu leyti rétt en
þó koma upp í hugann nokkrar
sölur, m.a. fyrir rúmu ári síðan var
hið fræga nafn, Binni í Gröf, selt
upp á land með öllum aflaheimild-
um og mér er sagt að það hafi verið
lögfræðingur sem keypti skipið
með aflaheimildum, með það að
markmiði að gera út á leigumark-
aðinn. I sjálfu sér má segja það, að
á sínum tíma, þegar lagt var af stað
með núverandi kvótakerfi, þá hafi
það verið fyrst og fremst ágætis
hugmynd, en þeirri hugmynd lauk í
raun og veru fyrir mörgum árum
síðan og við tók þetta braskkerfi
sem við þekkjum í dag.
Meira á:
http://georg. blog. is
Eyjamaður vikunnar:
Hefði aldrei getað betta ein
Svölukot var opnað við hátíðlega
athöfn á dögunum. í Svölukoti
geta listamenn leigt sér aðstöðu en
þar er einnig aðstaða til sýninga og
fundarhalda. Húsnæðið hefur tekið
miklum breytingum en síðast var
þar trésmíðaverkstæðið Sprossi.
Anna Svala Johnsen á heiðurinn af
Svölukoti en hún er Eyjamaður
vikunnar.
Nafn: Anna Svala Johnsen.
Fæðingardagur: 3. janúar 1955.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Látraprinsinn, Guðjón
Jónsson. Saman eigum við fimm
böm, sem em fvar Isak, Margrét
Sara, Daði, María og Elísa. Eg á
svo þrjú bamaböm, Hrafnhildi
Svölu, Heklu Sif og Davíð.
Draumabíllinn: Bfllinn sem ég á
núna er draumabfllinn, Toyota
Landcmiser. Til þessa höfum við
aldrei keypt okkur fjölskyldubfl,
bara vinnubfla en létum verða af
því núna og keyptum þá auðvitað
draumabílinn.
Uppáhaldsmatur: íslenskt lamb,
heimaslátrað og eldað af natni.
Versti matur: Borða ekki súrmat.
Uppáhalds vefsíða: Það em frétta-
síðumar.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Ég er nú eiginlega alæta á
tónlist. En ef það er eitthvað
umfram annað þá er það blús,
gospel og flott rokk.
Anna Svala Johnsen
er Eyjamaður vikunnar
Aðaláhugamál: Fjallgöngur og
útivist. Geng mikið á fjöll hér í
Eyjum.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Ég væri til í að hitta Frelsarann
sjálfan. Það væri gaman að fá að
setjast niður með honum og ræða
eitt og annað.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Fyrir utan eyjuna mína
fögm, þá er það Hænuvík fyrir
vestan og svo gekk ég Laugaveginn
í sumar og þar er mjög fallegt.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: IBV er mitt félag en
ég á mér engan uppáhalds íþrótta-
mann.
Ertu hjátrúarfull: Nei.
Stundar þú einhverja íþrótt: Já
ég stunda fjallgöngur mér til
heilsubótar. Og svo spilaði ég
handbolta með ÍBV í gamla daga.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Heimildaþættir og breskir saka-
málaþættir.
Vantaði stað eins og Svölukot í
Eyjum: Já, alveg pottþétt, tví-
mælalaust.
Hefurðu fengið góð viðbrögð við
Svölukoti: Já rosalega, alveg ótrú-
leg og mikil viðbrögð.
Ertu sjálf að fást við list: Ég veit
nú ekki hvort ég á að kalla það list.
En ég smíða garðhúsgögn, ljós og
skúlptúra úr rekaviði.
Ertu með fleiri hugmyndir í mag-
anum: Þær em nokkrar en það
kemur bara í Ijós síðar hverjar þær
em.
Eitthvað að lokum: Það er ótrú-
legasta fólk, sem ég þekkti jafnvel
ekki, sem hefur hjálpað til og gefið
hluti, unnið og hvatt mig áfram í
þessu. Svo hefði þetta aldrei verið
hægt ef Látraprinsinn væri ekki
eins og hann er. Ég hefði aldrei
getað þetta ein.
Matgazðingur vikunnar:
Humar í hvftlauk og kókosmjólk
Ég vil þakka minni ástkæru móður
fyrir áskorunina enda kannski
kominn tími til að hún fái eina upp-
skrift til baka frá mér. Það sem ég
ætla að bjóða upp á er Tælenskur
humarréttur og er sérstaklega
frábær fyrir þá sem elska hvítlauk.
Tælenskur humarréttur
20-24 stórir humarhalar
2 tómatar
3 sellerýstilkar
3 vorlaukar eða blaðlaukur
'A rauð paprika
5 stilkar af fersku kóríander
10-20 hvítlauksrif, nota sjálfur 15
1 msk. olía
1 dl kjötsoð eða sama magn af
vatni með kjötkrafti
5 dl kókosmjólk
'h tsk. salt
Vi tsk. hvítur pipar
5 msk. sykur
2 msk. ferskar grænar baunir, má
líka nota Ora
Takið humarhalana úr skelinni.
Skerið tómata í fjóra bita. Skerið
Freyr Atlason
er matgœðingur vikunnar
sellerý, vorlauk, papriku og kóri-
ander í jafnstóra bita og leggið til
hliðar. Skerið hvítlaukinn mjög
smátt. Hitið olíu á pönnu og steik-
ið hvítlaukinn í stutta stund, passið
að brúna hann ekki. Setjið kjötsoð,
kókosmjólk, salt og pipar ásamt
sykri saman við. Hrærið vel.
Setjið annað hráefni á pönnuna
nema kórianderstilkana, látið sjóða
í eina mínútu. Látið á disk og stráið
kóriander yfir. Berið fram með
hrísgrjónum, smábrauðum og ekki
skemmir að sötra gott hvítvín með.
Þar sem ég missi mig yfirleitt í
aðalréttinum er sjaldan pláss fyrir
neinn eftirétt. Annað sem mér
finnst mjög gott þegar það fer að
sjatna í manni er að opna eina góða
rauðvín og fá sér glænýjan ís-
lenskan lakkrís með.
Ég œtla að lialda matgœðingnum
innan Varmadalsœttarinnar og
skora á listakonuna Freyju Önund-
ardóttur þar sem ég veit að hróður
hennar úr eldhúsinu hefur borist
um allan heim.
Gamla myndin:
Þessa mynd er að finna í
Ljósmyndasafni Vestmannaeyja
en á henni má sjá Sesselju
Einarsdóttur, konu Finnboga
Finnbogasonar frá Vallartúni,
með dætur þeirra.
Ljósmyndasafnið vantar nöfn á
heimasæturnar í Vallartúni en
myndin er tekin árið 1936. Þeim
sem geta gefið upplýsingar um
myndina er bent á að hafa sam-
band við Ljósmyndasafnið í
Safnahúsinu í síma 893-3488 eða
senda póst á netfangið
gunnariodda@gmail.com
I síðustu viku var mynd af hjón-
unum Steini Sigurðssyni,
klæðskera og Kristínu
Friðriksdóttur ásamt börnum
þeirra. Einungis hjónin þekktust
á myndinni en nöfn hinna skiluðu
sér strax en á myndinni voru, í
aftari röð frá vinstri: Anna
Guðrún, Friðrik bakari,
Ásmundur rennismiður og Anna. Auður, Ingólfur og Sigurður.
Fremri röð frá vinstri: Jóhann,
Kirkjur bœjarins:
Landakírkja
Fimmtudagur 26. febrúar
Kl. 10.00. Foreldramorgunn.
Kl. 20.00. Æfing hjá Kór Landakirkju
Kl. 20.00. Biblíuleshópur.
Kl. 20.00. Æskulýðsfélagsfundur í
KFUM/K-húsinu.
Föstudagur 27. febrúar
Kl. 13.00. Æfing hjá Litlu læri-
sveinunum, yngri hópur.
Kl. 14.00. Æfing hjá Litlu læri-
sveinunum, eldri hópur.
Laugardagur 28. febrúar
Kl. 14.00. Útför Hreins Gunnars-
sonar.
Sunnudagur 1. mars
Æskulýðsdagurinn
Kl. 11.00. Bamaguðsþjónusta.
Messudagur leikskólans Sóla. Böm
frá Sóla boðin sérstaklega velkomin
eins og allir aðrir.
Kl. 14.00. Æskulýðsmessa. Á
æskulýðsdegi sér æskulýðsfélag
Landakirkju að mestu um stundina
ásamt leiðtogum. Hefðbundin
guðsþjónusta er brotin upp og ritn-
ingarlestur og guðspjallslestur er í
höndum æskulýðsfélagsins. Gísli
Stefánsson, æskulýðsfulltrúi,
prédikar og sr. Guðmundur Öm
Jónsson þjónar fyrir altari. Litlu
lærisveinamir syngja í guðsþjón-
ustunni og upplestur á reisubók
Ólafs Egilssonar hefst í kirkjunni
og verður framhaldið í Safnaðar-
heimilinu eftir guðsþjónustu. Þá
verður hægt að koma og hlusta á
upplesturinn og kaupa kaffi og með
því af æskulýðsfélaginu.
Kl. 15.15. Guðsþjónusta á
Hraunbúðum.
Kl. 20.30. Æskulýðsfélagsfundur í
Safnaðarheimili Landakirkju.
Mánudagur 2. mars
KI. 19.30. Vinir í bata.
Þriðjudagur 3. mars
Kl. 14.30. Fermingarfræðsla.
Kl. 20.00. Fundur hjá Gídeon-
félaginu
Kl. 20.00. Æskulýðsfélagsfundur í
KFUM/K-húsinu.
Miðvikudagur 4. mars
Kl. 11.00. Helgistund á
Hraunbúðum.
Kl. 13.00, 13.45, 14.30. Fermingar-
fræðsla.
Kl. 16.00. NTT (9-10 ára) í safn-
aðarheimili Landakirkju.
Kl. 17.00. ETT (11-12 ára) f safn-
aðarheimili Landakirkju.
Kl. 20.00. Samvera Aglow-kvenna.
Viðtalstímar prestanna eru
þriðjudaga til föstudaga milli 11.00
og 12.00.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 26. febrúar
Kl. 20:30 Biblíulestur.
Föstudagur 27. febrúar
Kl. 20:00 Unglingahittingur í takti.
Laugardagur 28. febrúar
Kl. 20:30 Brauðsbrotning með
bænastund.
Sunnudagur 1. mars
K1 13:00 Samkoma, ræðumaður
Guðni Hjálmarsson. Vertu
velkominn.
Bœnastundir alla virka daga kl.
7:15. Allir hjartanlega velkomnir
œvinlega.
Aðventkirkjan
Laugardaginn 28. febrúar
Kl. 10.30 Samkoma. Boðið verður
upp á biblíufræðslu fyrir böm og
fullorðna.
Kl. 11.30 Guðsþjónusta. Eric Guð-
mundsson prédikar. Allir hjartan-
lega velkomnir.