Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Blaðsíða 6
6 Fréttir / Fimmtudagur 26. febrúar 2009 Að skipta um klár í miðri á 0% Grein Páll Scheving skrifar: Höfundur er bœjar- táÍ fulltrúi V-listans Einhverju sinni á þorrablóti í Land- eyjasveit kvaddi sér hljóðs bóndi sem hafði, vægt til orða tekið, staðið í basli. Hann stóð upp, klæddur kjólfötum, sem var talsverð nýlunda í sveitinni, tók ofan pípuhattinn og fannst greinilega gott að horfa yfir gesti. Hann bar sig vel, var aðeins við skál og sagði frá því nokkuð rogginn að honum hefði nú gengið vel í rekstrinum undanfarið, hefði greitt upp sínar skuldir og ekki tekið nein ný lán, hans bú stæði vel, sprettan verið góð og fé komið fal- legt af fjöllum. Einhverjar rjómablöðrur, sem hvítvínsglas hafði rænt vitinu, sögðu ,jiiiiii, það er aldeilis" af mikilli innlifun. Þegar bóndinn er í miðri ræðu er galað fram í fyrir honum af greppitrýninu á næsta bæ, sem spurði hann hvort það hafi ekki örugglega verið 70 milljónir sem hann hafi unnið í Víkingalottóinu. Reyndar var þetta á allra vitorði í sveitinni. Róm féll því á augabragði. Þessari sögu skaut upp í kollinn á mér þegar ég las ansi dramatíska yfirlýsingu frá ágætum félögum mínum í bæjarstjórn, fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Þar segir meðal annars „Skuldir hafa verið greiddar niður um 1,2 milljarða og engin ný lán tekin á kjörtímabilinu." Ekki dettur mér í hug að halda því fram að í bæjarstjóm Vestmannaeyja sitji eintómir snillingar sem hafí með ótrúlegu hugmyndaflugi og framsýni rifið bæjarsjóð á mettíma upp úr skuldafeni og tómu brasi. Nei, Vesjmannaeyingar unnu nefni- lega í Útrásarvíkingalottóinu. Það vita allir Islendingar að hér riðu um héruð vitfirrtir fjárglæframenn og buðu offjár í alla steina sem hugsan- lega gætu staðið á gulli. Kistur fullar af gulli Hér kom við Hannes Smárason með kistur fullar af gulli og vildi í staðinn hlut Eyjamanna í Hitaveitu Suðurnesja. Þegar bæjarfulltrúar höfðu talið upp úr kistunum og Ijóst var að gullið var ósvikið og margfalt verðmætara en hlutur bæjarins í Hitaveitunni, voru gerð viðskipti. Það er því engin ástæða til þess að bera í gullstól eða hengja fálkaorð- una á undirritaðan eða aðra bæjar- fulltrúa fyrir það eitt að kunna að telja. Þeir sem eiga kistur fullar af gulli þurfa ekki að taka lán. Það gerði Lína langsokkur ekki. Það hefur bæjarstjórn Vestmannaeyja blessunarlega ekki gert. Bæjarstjórnin hefur hins vegar, algerlega einhuga, hlammað sér á kistulokið og hreyfir sig ekki af því. Við misjafnar undirtektir bæjarbúa. í yfirlýsingunni kemur líka fram að bæjarfulltrúamir hyggist ekki gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi og áður hafði komið fram að þeir muni ekki taka þátt í formannskjöri á komandi landsfundi. Þar verða sumir hreinlega mál- lausir Yfirlýsingunni er sennilega að ein- hverju leyti ætlað að slá á gríðar- legan ótta foreldra, ættingja og vina að einhver bæjarfulltrúanna tæki sæti á Alþingi, enda alkunna að í Alþingishúsinu gleymi menn strax heimahögunum, glati sinni bamatrú og allri siðferðisvitund. Svo verða sumir hreinlega mállausir. Ekki óttast undirritaður að nokkuð af þessu myndi henda þessa ágætu samstarfsmenn mína. Eg hefði reyndar viljað sjá ein- hvem úr bæjarstjórninni á Alþingi að ég tali nú ekki um í formennsku eins af stóm flokkunum. Það myndi örugglega stytta margar leiðir. Varla er skrifuð fundargerð í bæjarstjóm eða bæjarráði öðruvísi en að hún biðli til þingsins um sanngirni og stuðning. Sem því miður er sjaldan til staðar. Djúphugsað Akvörðun bæjarfulltrúanna er reyndar djúphugsuð, ef grannt er skoðað. í hástemmdri yfirlýsingunni segir „Það hefur aldrei þótt hyggi- legt að skipta um klár í miðri á og þá sérstaklega ekki þegar áin er straumþung og erfið viðueignar." Mér brá við þessi orð. Eg hafði ekki hugmynd um að bæjarfulltrúar væru hestar í brjáluðu pusi og íhugaði að segja af mér en ákvað þess í stað að mæta í flotbúningi á næsta bæjarstjómarfund. Ljóst er að ef einn af bæjarfulltrúunum tæki sæti á Alþingi myndi eitthvað reyna á varamenn flokksins. Þar gæti leynst mikil hætta, slæmt að skipta um hest. Arnar Sigur- mundsson er fyrsti varamaður meirihlutans. Amar hefur gnðarlega reynslu af störfum í bæjarstjóm, samkvæmt gögnum frá Vest- mannaeyjabæ hafði Arnar um síð- ustu áramót setið 269 bæjar- stjómarfundi en fulltrúar meirihlut- ans allir til samans 183 fundi og samkvæmt sömu gögnum hafði Amar setið um áramót 531 bæjar- ráðsfund en fulltrúarnir með alþing- isfælnina samtals 230 fundi. En það er ekki magnið, það eru gæðin sem samstarfsmenn mínir em að hugsa um. Samstarfsmenn mínir, sem flestir em nýir í bæjarstjóm, tóku ekki við blómlegum aldingarði og alls ekki neitt hunangsflóð í gangi. Það er sannleikur. Amar þekkir ábyrgð sína og veit að tölumar tala sínu máli. Hann er töluglöggur. Kannski hefði verið einfaldara að sleppa öllu líkingamáli og segja bara að Amari verði ekki hleypt að gullkistunni. Bæjarbúar geti haldið ró sinni. Persónulega finnst mér afar ósann- gjarnt af samstarfsmönnum mínum að persónugera allar ófarir í stjóm Vestmannaeyjabæjar í Amari Sigur- mundssyni. Það er þungur dómur. Mér hefur líkað vel við Arnar og haft gaman að því vinna með honum. Það verður aldrei um hann sagt að ekki sé vel og nákvæmlega farið yfír alla hluti og smáa letrið er lúslesið þar sem hann fer með ferð- ina. Engu sleppt. Svo er hann við hestaheilsu og sprangar hnarreistur alla daga um götur bæjarins. Eg hef enga trú á því að Amar myndi mæta með kúbein og rífa upp gullkistuna og spandera öllu í tóma vitleysu. Hann er reynslunni ríkari. Ég hvet því endilega einhvem af hinum ágætu samstarfsmönnum mínum til þess að sækjast eftir for- mennsku í Sjálfstæðisflokknum og skunda á þing, kannski finnst þá olía á Austurvelli. Ég og Laugi skulum á meðan reyna að hanga í axlabönd- unum á Amari og hafa hemil á öllu útgjaldafylliríi. Góðar stundir. Páll Scheving Ingvarsson Undirritaður er oddviti Vestmannaeyjalistans. Skuld IBV afskrifuð A síðasta fundi bæjarráðs var tekið fyrir bréf frá IBV, dags. 17. febrúar sl. Bæjarráð samþykkti að afskrifa viðskip- taskuld ÍBV upp á 21.482.194 kr. Bæjarráð bókaði einnig að það fagnaði þeirri sterku viðleitni sem ÍBV hefur sýnt á seinustu misserum til að bæta fjárhagslegan rekstur félagsins. Einungis með ábyr- gum rekstri næst sá trúverð- ugleiki sem er nauðsynlegur til að blómlegt starf og frábær árangur ÍBV fái áfram við- gengist. Bæjarráð fól bæjarstjóra einnig að ganga frá lei- gusamningi um þær fimm íbúðir sem Vestmannaeyjabær á og IBV er með til umráða í Áshamri 75. Samgönguráðherra lofar að taka aftur lokun á flugvellinum og flugsstjórn Grcin Ámi Johnsen skrifar Höfundur er alþingismaður. Um leið og fréttir bárast af því að samgönguráðuneytið hefði valið til sparnaðar eina af hugmyndum Flugstoða með því að setja lokanir og takmarkanir á þjónustutíma Vestmannaeyjaflugvallar, þá hafði ég samband við Kristján Möller samgönguráðherra og óskaði eftir utandagskráramræðu í Alþingi um þessa fáránlegu aðgerð. Það gengur einfaldlega ekki að setja slíkar takmarkanir á flugvöll sem hefur ekkert vegasamband við þjóðvegakerfi landsins og er þar að auki skráður C flugvöllur, sem þýð- ir að þar geta verið erfið skilyrði. Ég benti samgönguráðherra á tvennt sem gengi ekki í þessu dæmi, lokanatíminn kl. 18:30 og 21.00 í stað 23:00 á sumrin og brottflutn- ingur flugumferðarstjóra, sérstak- lega yfir sumartímann þar sem aðeins flugumferðarstjórar hafa leyfi til að veita flugleyfi í öllu er lýtur að erfiðum skilyrðum. Þessi ákvörðun samgönguráðherra er bein árás á flugþjónustu við Vest- mannaeyjar og ekki síst allt flug tengt íþróttum, því reiknað er með verulegum greiðslum ef opna á flugvöllinn utan fyrrgreinds opnunartíma með skerðingum. í síðustu Fréttum var viðtal við full- trúa Flugstoða sem vissi auðsjáan- lega hvorki upp né niður í því hvað þessi þjónusta þýðir yfirleitt, hvað þá fyrir Vestmannaeyjar. Samgönguráðherra lofaði því hátíðlega að þessu yrði breytt innan skamms og ekki yrði gengið á þenn- an hátt að Vestmannaeyjum. Ég verð að trúa því þar til á reynir, en mun fylgjast grannt með og herma málið upp á samgönguráðherra með hæfi- legu millibili. Þetta era forkastanleg vinnubrögð á Flugstoðum að leggja þetta til varðandi Vestmannaeyjar miðað við það að þeim ætti að vera kunnug sérstaða Vestmannaeyja varðandi flug og veðurskilyrði sem era oft óútreiknanleg. Líklega hafa Flugstoðir og samgönguráðuneytið ætlað að spara um 7 milljónir króna með þessum skrípaleik að setja flugþjónustuna í uppnám. Ami Johnsen, alþingismaður. Flugvöllurinn: Kvöld- lokun á sumrin í síðasta blaði var ítarleg úttekt á þeim breytingum sem Flug- stoðir ohf. hafa ákveðið á þjónustu á flugvellinum í Vestmannaeyjum. Stærsta breytingin er að frá og með apríl stýra flugumferðarstjórar ekki lengur umferð um völlinn heldur svokallaðir flugradíó- menn sem veita flugupplýs- ingar til flugmanna, sem eru þær sömu og flugumferðar- stjórar gerðu áður. Flugradíó- mennimir eru þessar vikumar í þjálfun til þess að sinna þessari þjónustu að því er kemur fram hjá Flugstoðum. Upplýsingafulltrúi Flugstoða sagði í viðtali við Fréttir í síðustu viku að engin breyting verði á opnun flugvallarins en þar er um misskilning að ræða. Þegar hún er spurð um hvort einhverjar breytingar verði svarar hún með því að segja hvemig völlurinn verður opinn framvegis án þess að nefna hvemig þessu var háttað áður. Sé miðað við nýtt fyrirkomulag og opnun vallarins munar þar talsverðu og þýðir aukakostnað fyrir þá sem vilja fara um völlinn á kvöldin. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugstoða, sagði við Fréttir í síðustu viku að flugvöllurinn verði opinn eins og verið hefur þ.e. dagana frá 1. apríl til 10. júní frá klukkan 07:30 til 19:30, frá 11. júní til 10. ágúst frá klukkan 07:30 til 20:30, frá 11. ágúst til 30. september frá kl. 07:30 til 19:30 og frá 1. október til 1. apríl 07:00 til 19:00. Á sunnudögum er völlurinn opnaður klukkan 09:00 frá 1. október til 1. apríl. Heimilt er að opna flugvöllinn utan aug- lýsts opnunartíma gegn ákveðnu gjaldi. Breytingin er sú að völlurinn var opinn frá klukkan sjö á morgnana til klukkan sjö á kvöldin á tímabilinu frá 16. september til 14. maí og frá 15. maí til 15. september frá sjö á morgnana til klukkan ellefu á kvöldin. „Eftir lokun er okkur heimilt að leyfa flug um völlinn gegn opnunargjaldi sem er 15 þúsund krónur á sumrin og eitt- hvað meira yfir vetrartímann. Segir sig sjálft að það gjald er engan veginn raungjald fyrir opnun vallarins,“ sagði Ingi- bergur Einarsson, flugvallar- stjóri í Vestmannaeyjum. „Þetta er heldur ekki svo ein- falt því við verðum að skila 11 tíma lágmarkshvíldartíma á sólarhring og eigum erfitt með að uppfylla þetta skilyrði nema að bæta við okkur mannskap.“ Lögrcglan: Skemmdarverk, hraðakstur og umferðaróhapp Lögreglan: Tvö fíkniefnamál Eitt skemmdarverk var tilkynnt lögreglu í vikunni sem leið. Um var að ræða rúðubrot í bifreið sem stóð á Kirkjuvegi. Talið er að rúðan hafi verið brotin helgina 14. til 16. febrúar sl. Ekki er vitað hver þama var að verki og óskar lögreglan eftir upplýsingum um hugsanlegan geranda. Af umferðarmálum er það helst að frétta að þrír ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs í vikunni sem leið og voru þéir allir staðnir að verki á Strembugötu. Sá er hraðast ók mældist á 84 km/klst. Einn ökumaður var sektaður fyrir að aka gegn einstefnu á Brekkugötu. Þá vora eigendur ökutækja boðaðir til skoðunar með ökutæki sín. Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í vikunni og átti það sér stað við verslun Krónunnar. Var þama um minni háttar óhapp að ræða og engin slys á fólki. Tvö fíkniefnamál komu upp um helgina. Var í öðra tilvikinu um að ræða gran um sölu á fíkni- efnum en við húsleit í heimahúsi fundust um 50 gr af amfetamíni sem karlmaður á 18. ári viðurkenndi að eiga og hafi ætlað til sölu. Þá var kona um tvítugt handtekin á Vestmanna- eyjaflugvelli þegar hún sótti þangað pakka sem í reyndist vera lítilræði af kannabis- efnum. Stúlkan viðurkenndi að vera eigandi að efnunum. Málin teljast að mestu leyti upplýst. Hvorugur þessara aðila hefur áður komið við sögu lögreglu vegna fíkni- efnamála. 4

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.