Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Side 8

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Side 8
8 Fréttir / Fimmtudagur 26. febrúar 2009 kostar MYNDARLEGUR HÓPUR Starfsfólk setursins sem er fleira en flesta grunar. Vel heppnað Stefnumót atvinnulífs og Þekkingarseturs: Að kynna starfsemina og opna á nýja samstarfsfleti í síðustu viku átti Þekkingarselur Vestmannaeyja stefnumót við at- vinnulífið með athyglisverðri ráðstefnu í Alþýðuhúsinu þar sem stofnanir í Þekkjngarsetrinu kynntu starfsemi sína. A eftir var hópnum skipt upp í þrjá umræðuhópa sem fjölluðu um málefni sem tengjasl atvinnulífmu og starfseminni. „Markmiðið var að kynna þá starfsemi sem fram fer í Þekking- arsetrinu og opna á nýja samstarfs- fleti milli Þekkingarseturs og at- vinnulífsins," sagði Páll Mavin Jónsson, framkvæmdastjóri setursins, eftir stefnumótið og var hann mjög ánægður með hvemig til tókst. Gestir hefðu að ósekju mátt vera fleiri en dagskráin hófst á því að allar stofnanir innan Setursins kynntu starfsemi sína og verkefni sem þar eru í vinnslu eða undirbún- ingi. Mjög kom á óvart hvað verkefnin eru mörg og fjölbreytt. Yfir fjöru- tíu verkefni eru í vinnslu eða undir- búningi innan Setursins miðað við upptalningu á helstu verkefnum stofnana á fundinum. Eftir kynningu á starfsemi stofn- ana var hópnum skipt upp í þrjá umræðuhópa sem fjölluðu um mál- efni sem tengjast atvinnulífmu og starfseminni innan Þekkingar- setursins. Málefnin voru sjávarút- vegur og atvinnumál, náttúra og ferðamennska og menntun. Fyrir hvem hóp var búið að útbúa leið- beinandi spurningar til að koma umræðunum af stað en síðan kemur samantekt fyrir hvern hóp. Sjávarútvegur og at- vinnumál Farið var almennt yfir punktana sem lagðir voru fyrir hópinn. Rædd var hugmynd um sameiginlega söluskrifstofu fyrir sjávarútveginn í Eyjum. Fram kom að fyrirtækin em að greiða aðilum í Rvík umboðs- laun þannig að með því að setja upp sameiginlega söluskrifstofu kæmu þau störf hingað. Ahugi fyrir slíkri söluskrifstofu er væntan- lega háður stærð fyrirtækjanna. Hugtakið „local food“ var rætt og að allur fiskur frá Vestmannaeyjum fengi ákveðinn gæðastimpil. Þetta gæti tengst sameiginlegri sölu- skrifstofu. Þannig að hvert fyrirtæki gæti selt undir sýnu vömmerki en með „local food“ gæðastimpli. Spumingin er hvort Vestmanna- eyjar eru ekki of litlar til að þetta sé mögulegt og einnig gæti komið upp vandamál vegna mismunandi gæða milli fyrirtækja. Líka var bent á að þetta gæti nýst í öðmm atvinnu- geirum. Verkefnabankinn Verkefnabankinn mæltist vel fyrir og var Þekkingarsetrið hvatt til að hafa hann opinn á heimasíðu sinni. Rætt var um höfundarrétt á hug- myndum í bankanum. Þótti ljóst að með því að setja inn hugmynd í bankann afsali viðkomandi sér ákveðnum réttindum. Kom fram að það þyrfti að vera á hreinu þegar hugmyndir eru lagðar inn í bank- ann hver rétturinn er og setja þurfi reglur og upplýsingar um þær inn á netið. Tengsl og samstarf Rætt var um hvernig mætti auka tegnsl ÞSV og atvinnulífsins. Hvatt var til að fleiri tækifæri yrðu notuð til að hittast og jafnvel að halda óformlega fundi, s.s. súpufundi, til að bera saman bækur og vinna að hugmyndum. „Nauðsynlegt er að halda lifandi tengslum með reglu- legum fundum," sagði Páll. Rætt var mikilvægi samstarfs milli Þekkingarseturs og atvinnulífs og kom fram að þegar eru fjölmörg samstarfsverkefni í gangi. „Dæmi má nefna um verkefni á vegum Matís um þurrkun loðnuhrogna og markaðssetningu á harðfiski," sagði Páll. Umræðuhópur um nátt- úru og ferðamenn f umræðuhópi um náttúru og ferða- menn voru Kristján Egilsson, Krist- ín Jóhannsdóttir, Þórður Svansson, Ingvar A. Sigurðsson, Sigurmundur G. Einarsson, Erpur S. Hansen, Gunnar Þór Friðriksson og Lovísa Ásbjömsdóttir. Þar kom fram að hingað til hafi lundi og eldgos verið aðalaðdráttar- afl ferðamanna í Vestmannaeyjum. Einnig að í ÞSV sé mikil þekking og menntun, sem gæti nýst atvinnu- líftnu. Samstarf þar á milli er mikil- vægt að mati hópsins. Upplýst var að erlendir ferðamenn sem fara um Leifsstöð séu um 500 þúsund á ári. Þar af eru um 80% „tengifarþegar“ milli fluga. Það eru því um 100 þúsund ferðamenn sem koma til að ferðast um landið. Til Vestmannaeyja koma um 10 til 15 þúsund ferðamenn. Skemmti- ferðaskip sem koma til Eyja eru að meðaltali um 14 á sumri. Ferðamönnum, sem hingað koma, hefur ekki fjölgað og niðurstaða hópsins er að auka þurfi afþrey- ingu, til að ferðamenn stoppi lengur. Farið var yfir möguleika á að komast til og frá Eyjum, m.a. hug- myndir um flug á milli Vestmanna- eyja og Akureyrar sem myndi auka ýmsa möguleika í ferðaþjónustu. Hópurinn sagði að tilkoma Bakka- fjöru tengi Eyjar við Suðurland og þar skapist nýir möguleikar. Aftur á móti sé erfitt að skipuleggja ferðir til Eyja, sé miðað við að ferðamenn komi með flugi sem fellur oft niður. Litið var á þyrluflug sem kost fyrir efnameiri ferðamenn, bæði sem kost til að komast til Eyja og til útsýnisflugs. Náttúrufræðsla fyrir skólahópa Breskir skólahópar hafa heimsótt Vestmannaeyjar undanfarin ár og var upplýst að nokkrir hópar hefðu komið í þessum mánuði, aðallega í jarðfræðiferðir. Þessar ferðir hafa verið markaðs- settar og kom 10. bekkur best út en um 500 þúsund börn eru í 10. bekk á Bretlandi. Annað slagið berast fyrirspurnir að utan frá stúdentahópum í fram- haldsskólum sem vilja koma í sér- stakar fræðsluferðir til Eyja. Þekkingarsetur og skóli, erlendir ferðamenn eða skólahópar koma í þekkingarleit, fræðsluferðir o.s.frv. Áður voru 2000 íslensk skólaböm sem komu árlega til Eyja. Núna eru þau um 800, Þessir skólahópar þurfa gistinu og mat í Eyjum. Hvemig er hægt að auka aftur komur íslenskra skólabarna til Eyja? Menningarhús og sæ- dýrasafn Um 200 milljóna framlag er til reiðu í menningarhús auk framlag rrkisins. Hugmyndin um Eldheima, Sæheima og Sagnheima varð til á síðasta ári sem hluti af menningar- húsi en fjármagn vantar. Þeirri spumingu var varpað fram hvort ekki væri rétt að setja fjár- magn í eitt áhugavert safn og gera það vel? Var þama litið til Sædýra- safnsins í Hirtshals sem er fiskasafn og fræðasetur sem 5 milljónir heimsækja árlega. Þar eru, auk sýn- ingarsala, stundaðar rannsóknir, fræðsla og þar er glæsilegur fyrir- lestrasalur. Vill hópurinn að leitað verði fjár- festa sem vilja kosta uppbyggingu á safni en spuming sé hvort fiskasafn hafi nægilegt aðdráttarafl fyrir fjár- festa á Islandi? Eru þeir reiðubúnir í dag, miðað við núverandi ástand, að leggja peninga í safn? Sjóstangveiði, siglingar, úteyjar Markaðssetning á sjóstangveiði, siglingum og úteyjum hefur verið í gangi og ferðamenn hafa lýst mikl- um áhuga, enda veiðist vel að því er kom fram hjá hópnum. Veðurfar getur sett strik í reikninginn en þegar vel tekst til eru ferðamenn ánægðir, ekki síst í siglingu um úteyjarnar og sjóstangaveiði þegar aflinn er borðaður þegar komið er í land. Þau sjá fyrir sér að markaðssetja úteyjar fyrir efnameira fólk en tryggingamál gætu orðið þrándur í götu því um leið og ferðamaðurinn stígur af bátnum sem flytur hann út í eyju, verður einhver að taka við ábyrgð á öryggi hans. Siglingar gætu verið hluti af náttúmtengdri fræðslu en efasemdir vom um siglingar umhverfis Surtsey, þær væm of langar og hætta á að ferða- menn verði sjóveikir. Fuglaskoðun, ljós- myndaferðir Lundinn hefur alltaf verið vinsæll og var vinsælt að bjóða skólakrökk- um að fylgjast með lundapysjum á

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.