Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Page 10

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Page 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 26. febrúar 2009 Einslitt lið á Alþingi íslendinga Qrein Arnar Einarsson skrifar: Höfundur erfyrrum skólastjóri. itm Það er svo sem langt síðan ég fór að veita því eftirtekt hversu einslitt það er það þingmannalið sem situr alþingi Islendinga. Eftir því sem menntun þjóðarinnar hefur aukist hafa sífellt fleiri háskólamenntaðir sest í stólana og þá um leið fækkað þeim sem koma úr hinum vinnandi stéttum, jafnvel þótt menntaðir séu, en á annan hátt. Nú má enginn taka það sem svo að ég hafi eitthvað á móti því að á alþingi sitji fólk menntað í háskóla, það ætti aðeins að vera af hinu góða. En ég vil vekja athygli á því að þessu fylgir ákveðin áhætta. Það er hætta á því að alþingi verði ekki sú spegilmynd sem það ætti að vera og geft ekki rétta mynd af þeirri fjöl- breytni sem þar ætti að ríkja. Það er auðséð að það vantar full- trúa hinna vinnandi stétta. Fulltrúar verkalýðsstéttarinnar eru fáir. Fáir em fulltrúar útgerðarmanna. Hvar eru fulltrúar kaupmanna og versl- unarstéttarinnar? Hvar eru fulltrúar iðnaðarins? Og ekki eru fulltrúar bænda og sjómanna margir. Ef til vill sitja færustu fulltrúar þessara stétta í feitum embættum fyrir há laun og kæra sig ekki um að taka þátt í argaþrasi alþingis fyrir mun minni laun en þeir hafa. Þannig mætti áfram telja og ætti að vera okkur kjósendum til athugunar sem og þeim sem skipuleggja prófkjör eða uppstillingu á lista í komandi kosningum. Það þarf meiri fjölbreytni í þing- liðið þannig að tryggt sé að sjón- armiða og þá um leið hagsmuna flestra stétta þjóðfélagsins sé gætt á löggjafarsamkunduni. Það þarf fleiri sem koma úr grasrótinni, fleiri sem unnið hafa við framleiðslu- störfm og vita frá fyrstu hendi um hvað málin fjalla og hvar skórinn kreppir. Það er ljóst að sitjandi þingmenn, menn með aðgang að Ijölskyldu- auði, eiga meiri möguleika á að ná langt í prófkjörum en hinir sem minni aðgang hafa að fjármagninu. Þá hefur það sýnt sig að fasteigna- braskarar og sölumenn stofnbréfa í sparisjóðum hafa náð langt. Það er því augljóst að minnka verður vægi peninga og auðs við framkvæmd prófkjörs og flokkamir verða að hafa forgang um að breyta og sam- ræma reglurnar um prófkjörin þann- ig að allir komi jafnt að. Fyrir komandi kosningar gefst því gott tækifæri til að endurmeta fram- boðsmálin. Mikill fjöldi kjósenda krefst þess að á framboðslistana komi fólk sem ekki tók þátt í græðgisvæðingunni, fólk með hreinan skjöld. Það vill hvfla hina sem sofnuðu á verðinum og létu slá glýju í augun, gættu ekki hagsmuna umbjóðenda sinna. Þá hefur sem fyrr borið á því í umræðunni að menn vilji auka hlut kvenna á alþingi, einkum konur og hefur þar margt verið tekið inn í umræðuna. Það skiptir mig engu máli hvort á alþingi sitja konur eða karlar. Mín vegna mættu allir alþingismenn vera konur en væri sú mynd ekki heldur skökk? Það hvort 5 konur sitja í núverandi ríkisstjórn skiptir mig heldur engu máli, aðeins að konurnar séu hæfar og leysi þau verkefni sem þeim eru falin. Það vita allir að „konan“, forsætis- ráðherrann, réði og vildi hafa þetta svona. Að setja reglur um það að konur skipi annað hvert sæti á framboðs- listum finnst mér algjörlega fráleitt. Séu konur körlum fremri á ein- hverju sviði á fortakslaust að taka þær fram yfir en þær verða að keppa á jafnréttisgrundvelli við karlana. Kvenréttindabarátta nútímans ber verulegan svip andlegrar nauðgunar þar sem taka á konur fram fyrir karla vegna kynferðis en ekki þess líffæris sem mestu skiptir, heilans. „Það er fleira matur en feitt kjöt“, sagði bóndinn og í anda þess segi ég: „Það er fleira menntun en háskólamenntun". Amar Einarsson. STIMPIAR Ýmsar gerðir og litir Eyjaprent Strandvegi 47 - Sími 481 1300 .'—V J~ Smáar Ibúð til leigu yfir þjóðhátíð Er með íbúð til leigu yfir þjóöhátíð. Uppl. í s. 848-6924. Kraftmagnari til sölu Yamaha kraftmagnari með DVD bíókerfi og sömuleiðis Yamaha bassabox til sölu á 40 til 45 þúsund. Uppl. í síma 481-2147. Til sölu Amerískt king size hjónarúm, með gafli, náttborði, kistli fyrir rúmteppi og rúmteppi til sölu. Uppl. í s. 445-1104 / 846-9340. Lopavörur óskast Vantar sárlega notaðar lopavörur, peysur, sokka, húfur, teppi, vett- linga o.þ.h. Kem og sæki. Unndís, kennaranemi við HÍ, s. 869-8881. Bílskúr óskast Bílskúr óskast til geymslu á forn- bíl. Uppi. í s. 846-2787, Gísli. íbúðir á spáni Hæ öll, Eyvi hér, enn örfáar íbúðir eftir á Spáni í sumar, alódýrasta leiðin til að sleikja sólina í sumar. Fyrstir fá er koma, kreppuverð, sólarkveðja. Uppl. í s. 696-3667. Herbalife M.a. fyrir þá sem þurfa að jafna sig eftir bolluát og saltkjöt að undanförnu. Sími 481-1920 og 896-3438. Hefur þú séð sjóræningja- hattinn minn? Brúnn sjóræningjahattur, merktur með símanúmeri og nafni inn í, tapaðist á Öskudeginum í miðbæ Vestmannaeyja. Finnandi er vin- samlegast beðinn um að fara með hattinn á Hólagötu 43. Auglýsingasíminn er 481-1300 AA fundir AA fundir eru haldnir sem hér segir að Heimagötu 24: sun. kl. 11.00 þri. kl. 18.00 mið. kl. 20.30 fim. kl. 20.30 fös. kl. 19.00 lau. kl. 20.30 Opinn fundur Athugið, allir fundir reyklausir Móttaka nýliða hálfri klst. fyrir hvern auglýstan fundartíma. Ath. símatíma okkar, sem eru hvern dag, hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn fundartíma og eru 2 klst. í senn. Sími 481 1140 Nýtt - Neyðarsími opinn allan sólarhringinn 618-0071 Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu? Al-Anon fyrir ættingja og vini alkóhólista Fundir á þriðjudögum kl. 20.30 Byrjendafundir kl. 20.00 að Heimagötu 24 Nudd er heilsurækt! Nudd er lífsstíll! Erla Gísladóttir n u d d a r i Faxastíg 2a Sími: 481 1612 UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu cmbættisins að Heiðarvegi 15, Vestmannaeyjum fimmtudaginn 5. mars 2009 kl. 09:30 á eftir- farandi eignum: Bárustígur 11, 218-2625, þingl. eig. Dominik Lipnik, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður. Birkihlíð 24, 218-3869, þingl. eig. Una Sigríður Ásmundsdóttir, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf. Brekastígur 5a, 218-2850, þingl. eig. Jólína Bjamason, gerðarbeið- endur Ibúðalánasjóður, Lögmannsstofa Vestmannaeyja ehf og Sjóvá- Almennar tryggingar hf. Hásteinsvegur 11, 218-3580, þingl. eig. Guðrún Linda Atladóttir og Sverrir Þór Guðmundsson, gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær. Heiðarvegur 43, 218-3781, samkvæmt kaupsamningi, þingl. eig. Sigurður Einar Gíslason og Gerhard Guðmundsson, gerðarbeiðendur Sigurður Einar Gíslason og Vestmannaeyjabær. Suðurgerði 4, 218-4888, 50% eignarinnar, þingl. eig. Sigurmundur Gísli Einarsson, gerðarbeiðandi Lögmannsstofa Vestmannaeyja ehf. Vesturvegur 19, 218-5078, þingl. eig. Gylfí Valberg Óskarsson, gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, 24. febrúar 2009. Sntkkartnn Þar sem stefna min er tekin á nám erlendis hef ég lagt fyrirtækinu mínu um óákveðinn tíma. Vil ég þakka góðar móttökur og viðskiptin á starfstimanum. Með bestu kveðju Sigurður Oddur Til sölu 2 góðir Honda Jazz 1.4.LS. árg. 2004. ek. aðeins 52 hús. km. beinsk. Viðmiðunarverð. 1.205.000.- okkar verð 970.000.- ýmis aukabúnaður. Nánast framleíðir bensín!! Nissan Terrano II. 2.4. árg. 1999. ek.162 bús. km. 7.sæta 4x4. Viðmiðunarverð. 1.106.000.- okkar verð 630.000.- álfelgur, stigbretti ogfl.ogfl. Þessir bílar eru nýl. skoðaðir og yfirfarnir af verkstæði okkar. Uppl. Bílverk Ægisgötu sími 481-2782 / gsm.866-4161 (nánast á öllum tímum sólarhríngs) m 0PINN STJÓRNMÁLAFUNDUR Framsóknarfélag Vestmannaeyja boðar til opins fundar á Kaffi Kró laugardaginn 28. febrúar kl. 14:00. Gestir fundarins verða frambjóðendur í efstu sæti lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Allir velkomnir og heitt á könnunni. Framsóknarfélag Vestmannaeyja Dagskrá í Safnaðarheimili Landakirkju Sunnudaginn 1. mars er minningardagur séra Ólafs Egilssonar er andaðist þann dag árið 1639. Af því tilefni stendur Sögusetur 1627 í samstarfi við bókasafnið, Grunnskóla Vestmannaeyja og æskulýðsstarf Landakirkju fyrir upplestri á gervallri Reisubók séra Ólafs. Dagskráin hefst sem liður í æskulýðsmessu í Landakirkju sem hefst kl. 14 og heldur áfram eftir messuna i Safnaðarheimilinu kl. 1 S. Nemendur 7. bekkjar GV og félagar í æskulýðsstarfi Landakirkju munu skipta með sér lestrinum að stærstum hluta. Auk þess stendur hverjum sem vill til boða að koma og skrá sig í upplesturinn á staðnum. Verið hjartanlega velkomin að hlýða á upplesturinn á Reisubók sr. Ólafs. Kaffi og meðlæti verða á boðstólum á hagstæðu verði. Allur ágóði rennur til æskulýðsstarfs Landakirkju. Sögusetur 1627 | Bókasafn Vestmannaeyja Grunnskóli Vestmannaeyja | Æskulýðsstarf Landakirkju

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.