Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Síða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Síða 11
Fréttir / Fimmtudagur 26. febrúar 2009 11 Eru breytingar á stjórnarskrá og kosningalöggjöf brýnustu verkefnin? Grein............. Grímur Gíslason skrifar: Höfundur er framkvœmdastjóri. Dettur einhverjum heilvita skip- stjóra í hug að láta áhöfnina fara að skúra messann, í stað þess að koma vélinni í gang, ef skipið er vélarvana í ölduróti? Það er dapurlegt að fylgjast með hvemig reynt er að nota ástandið sem skapast hefur hér, í kjölfar efna- hagshrunsins, til að gera byltingar á innviðum samfélagsins. Það er hrópað á umbyltingu stjómarskrár- innar og umbyltingu á kosningalög- gjöfmni. Breytingar á þessum gmnnþáttum eru settar í forgang sem nauðsyn- legustu aðgerðir sem ráðast þarf í til að rétta af þjóðaskútuna eftir efna- hagshrunið. Hvurslags vitleysa er í gangi? Við höfum notast við þessa stjómarskrá áratugum saman og verið nokkuð sæl með okkur. Hér hefur verið byggt upp sam- félag, sem þróaðist reyndar á mikl- um hraða frá eymd og vesæld til vel- sældar, og það eru ekki margir mánuðir síðan allir töldu að íslenskt samfélag væri eitt það allra besta í heimi. Við höfum byggt þetta sam- félag okkar upp á grundvelli þeirrar stjómarskrár sem við höfum í dag og það er algjör fásinna að ætla að kenna stjórnarskránni um efna- hagshrunið. Hitt er svo aftur annað mál að það er sjálfsagt að endurskoða stjómar- skrána. Það á að gera á yfirvegaðan hátt en ekki kasta til þess höndum. Það verk er samt sem áður á engan hátt brýnasta verkefnið sem þarf að ráðast í við þær efnahagsaðstæður sem uppi eru í dag. Það er heldur ekki kosningalög- gjöfinni að kenna að hér varð efna- hagshrun og þvf leysir það ekki þann vanda sem við erum í, að rjúka til og eyða tímanum nú til að um- bylta henni þó að sjálfsagt sé að endurskoða hana einnig, en á yfir- vegaðan hátt eins og stjómarskrána. Þarf raunhæfar aðgerðir en ekki líknarmeðferð eða skammtalækn- ingar Stjómvöld eiga strax að hætta að eyða dýrmætum tíma í umræður um stjórnarskrárbreytingar eða breyt- ingar á kosningalöggjöf og snúa sér að þeim verkefnum sem brýnni eru. Skuldsett heimili og fyrirtæki em að sligast og lítið bólar á úrræðum sem duga til bjargar þeim. Það er ekki þörf á líknandi gjald- þrotameðferð eins og frumvarp hefur verið lagt fram um. Það er jafngott fyrir þá sem eru að verða gjaldþrota að horfast í augu við það strax í stað þess að lengja örlítið í snömnni þannig að gjaldþrotið verði ekki að veruleika fyrr en síðar á árinu, þ.e.a.s. eftir kosningar, eins og virðist vera meginmarkmið stjómvalda. Enginn er bættari með það. Það þarf raunhæfar aðgerðir til úrbóta en ekki einhverjar skammta- lækningar til að draga úr kvölunum. Stjórnmálamenn verða að hafa þor til að taka erfiðar ákvarðanir Stjórnmálamenn verða að hafa þor til að taka umræðu um erfið mál og taka erfiðar ákvarðanir, þó að kosn- ingar séu framundan. Þeir eiga að hafa þor til að segja sannleikann og það er ekki trúverðugt af fram- bjóðendum að ætla að vera í gervi jólasveinsins með fullan poka af lof- orðapökkum um stórframkvæmdir og fjárveitingar. Fólkið í landinu vill skýr skilaboð. Það vill vita hver staðan er, hverjir möguleikarnir eru og hvaða björg- unartæki þarf að nota til að koma okkur til lands úr efnahags- háskanum. Við eigum einhverja björgunarbáta sem setja má á flot, eins og t.d. lífeyrissjóðina, og stjómmálamenn verða að hafa dug og þor til að taka umræðu um slfkar mögulegar björgunaraðgerðir fyrir kosningar, en ekki fresta þeim fram yfir þær. Ekki brýnast að skúra messann ef skipið er vélarvana í öldurótinu Almennilegum skipstjóra eða öðr- um yfirmönnum á skipi dytti ekki til hugar að láta áhöfnina fara að skúra messann ef skipið væri vélarvana í ölduróti og brimsköflum. Það yrði gefin skipun um að ganga til verka við að koma vélinni í gang, væri þess nokkur kostur, eða að grípa til annarra þeirra aðgerða sem dygðu til að bjarga mannskapnum. Það sama á að eiga við um íslensku þjóðarskútuna. Hún velkist nú um, vélarvana, í ölduróti og brim- sköflum, en í stað þess að láta áhöfnina vinna með samstilltu átaki að því að koma vélinni í gang á ný er meira hugsað um að láta áhöfnina skúra messann. Breytingar á stjómarskrá og kosningalögum eru settar í forgang í stað þess að taka á því sem raunverulega þarf. Björgun heimila og fyrirtækja. Eg myndi reka skipstjóra og aðra yfirmenn á skipi sem ég ætti, yrðu þeir uppvísir að slíku verklagi. Kjósendur velja yfirmenn á skút- una í komandi prófkjörum I komandi kosningum þarf að kalla til verka fólk sem þorir að takast á við þann vanda sem bfður. Fólk sem hefur reynslu og þor til takast á við þau erfiðu verkefni sem bíða. Fólk sem þorir að segja almenningi í landinu satt um hver staðan er. Fólk sem einbeitir sér að því að koma vélinni í gang á ný og nota þau björgunartæki sem duga til að koma okkur öllum heilum í höfn. Það er í höndum kjósenda í landinu að velja yfirmenn í áhöfn á skútunar sem við öll siglum á. Yfirmenn sem þeir treysta að hafi það baráttuþrek og þor sem þarf í þeim átökum sem framundan eru við að sigla skútunni heilli til hafnar. Það val fer fram í þeim prófkjörum sem eru á næsta leiti. Grímur Gíslason Stór verkefni og baráttumál framundan Grein Ámi Johnsen skrifar Höfundur er alþingismaður. £i Þau stórmál sem skipta miklu máli í meðferð Alþingis fyrir Vestmanna- eyjar á næstu misserum og árum varðandi uppbyggingu á samgöng- um og þjónustu eru smíði nýrrar ferju milli Eyja og Fandeyjahafnar, uppbygging stórskipabryggju í Vestmannaeyjahöfn eða í tengslum við hana, uppbygging Skipalyft- unnar svo að hún geti þjónað öllum Eyjaflotanum, vöm og sókn kvótans fyrir Vestmannaeyjar og átak og aðstaða ferðaþjónustunnar. Ferjumálin verða að komast á hreint Hvemig smíði nýrrar feiju dróst á langinn er handvömm yfirvalda, sauðarleg handvömm. Enn liggur ekki fyrir hvort leigt verður notað skip eða stflað upp á að nota gamla Herjólf um sinn. Náttúrulegar aðstæður við Bakkafjöra gætu verið hagstæðar fyrir gamla Herjólf fyrstu tvö árin eftir að höfnin verður klár í júlí næsta ár, en óvissan um náttúr- lega dýpkun og grynningu í renn- unni er þó háð ýmsum óvissu- þáttum. Þessi mál eru nú alfarið í höndum Siglingastofnunar, en líklega myndi það flýta fyrir nýsmíði að nota gamla Herjólf í skamman tíma áður en ráðist verður í nýsmíði, sem að mínu mati getur orðið þegar á næsta ári ef vel er á spöðum haldið. Bygging stórskipalægis er að- kallandi verkefni Ég lagði fram á Alþingi á síðasta ári þingsályktunartillögu um undirbún- ing og smíði stórskipalægis fyrir a.m.k. tvö stór skip í Vestmanna- eyjahöfn, aðstöðu sem gæti sinnt stærstu flutningaskipum og stærstu skemmtiferðaskipum. Allir þing- menn Suðurkjördæmis vora með- flutningsmenn mínir að þessari tillögu sem byggir á því að fyrsta skref verði að hefjast þegar handa um líkanatilraunir því ekki verður unnt að taka ákvörðun um fram- kvæmdir fyrr en þær liggja fyrir. Það eru þrír möguleikar sem Siglingastofnun horfir til, stórskipa- lægi norðan við Eiðið, stórskipalægi sunnan Löngunnar og við Naust- hamarsbryggju og stórskipalægi við Skansfjörana frá hafnargarðinum og austur fyrir Ystaklett með nýjum hafnargarði frá Viðlagafjöra í átt að Faxaskeri, en Ystiklettur yrði þá nyrðri hafnargarðurinn. Siglinga- stofnun mun með líkanaprófunum skera úr um þessa þrjá möguleika, kostnað, aðstæður sjávar og vinds, dýpi, eitt eða tvö skipalægi o.s.frv. Þessu máli þarf að fylgja vel eftir því á næstu áram má reikna með að flutningaskipin, sem þjóna milli- landasiglingunum, muni stækka veralega og þau skip geta ekki at- hafnað sig við núverandi aðstæður í Vestmannaeyjahöfn. Þetta verkefni verður því eitt af höfuðverkefnum okkar á vettvangi Alþingis og bæjarstjórnar sem hefur nú þegar lagt mikið upp úr undirbúningi. Stórskipalægi mun stórauka tekjur Vestmannaeyjahafnar í framtíðinni og það er ámóta óklókt að láta stóru skemmtiferðaskipin sigla hjá Eyjum eins og að leyfa loðnunni að fara hjá án þess að drepa fingri. Á næstu áram mun höfuðborgarsvæðið verða frekt til fjárkrafna og þá verðum við að duga eða drepast og gefa hvergi eftir. Það kemur ekkert af sjálfu sér. Fullkomin upptökumannvirki eiga að vera aðalsmerki Vest- mannaeyjahafnar Endurreisn Skipalyftunnar og upp- bygging hefur dregist úr hömlu og er það mál til skammar fyrir ríkisstjóm íslands, bæði stjóm Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks og stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar. Loðmullan, þjónkunin við Brassel, metnaðar- leysið og máttleysið var algjört, en nú hefur bæjarstjóm Vestmannaeyja markað fjármagn í verkefnið og svo þarf að sjá á næstu mánuðum hvort hægt verður að hrinda þessari framkvæmd af stað eins og til stóð með aðstöðu fyrir allan Eyjaflotann, eða fara skemmri leið sem væri mjög bagalegt. Eyjamenn eru þekktir fyrir að halda sínum hlut og láta ekki beygja sig. Það mun því reyna á okkur á öllum vígstöðum, en stærsta verstöð landsins verður að bjóða upp á full- komin upptökumannvirki bátaflot- ans, annað er hreinlega ekki boðlegt. Það verður sótt að sjávarút- veginum Staða sjávarútvegsins verður bar- áttumál í náinni framtíð og kerfis- fólkið, dekraða fólkið á höfuðborg- arsvæðinu, braskaramir sem töpuðu nýju fötum keisarans munu setja klæmar á loft. Þar, eins og í svo mörgu, verðum við að standa vakt- ina og bregðast við með viðeigandi ráðstöfunum með sóknarleik fyrir okkar byggðarlag. Bylting í fjölda ferðamanna með Landeyjahöfn Nú er ekki seinna vænna en hefja skipulegan og markvissan undirbún- ing fyrir stóraukningu ferðamanna með tilkomu Landeyjahafnar í Bakkafjöra, Til að mynda þurfum við að freista þess að byggja allt að 200 herbergja hótel, því með slíku móðurskipi skapast margir mögu- leikar sem m.a. munu styrkja smærri hótelþjónustuna í Eyjum ef vel er að verki staðið. Það er ótrú- lega margt óunnið á vettvangi ferðaþjónustunnar í Eyjum og möguleikamir meiri háttar ef menn setja í fjórða gír. Arni Johnsen, alþingismaður. Prófkjör Samfylkingarinnar í Suðcirkjördazmi: Þessi ætla að bjóða sig fram í Suðurkjördæmi Eftirtaldir gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjör- dæmi sem fer fram frá kl 06:00 þann 5. mars til kl 18:00 þann 7. mars: Björgvin G. Sigurðsson alþingis- maður, Selfossi 1. sæti, Skúli Thoroddsen framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ 1. sæti, Guðrún Erl- ingsdóttir sérfræðingur í kjaramál- um, Vestmannaeyjum 1.-2. sæti, Anna Margrét Guðjónsdóttir forstöðumaður, Brassel 1 .-3. sæti, Andrés Sigurvinsson verkefnis- stjóri, Selfossi 1 .-4. sæti, Oddný Guðbjörg Harðardóttir bæjarstjóri, Garði 2. sæti, Róbert Marshall að- stoðarmaður samgönguráðherra, Reykjavík í 2.-3. sæti, Þóra Þórar- insdóttir fyrrum ritstjóri, Selfossi 2.-3. sæti, Ámi Rúnar Þorvaldsson grannskólakennari, Höfn 2.-4. sæti Páll Valur Bjömsson nemi, Grinda- vík 3.-4. sæti, Hilmar Kristinsson formaður Uglu - UJ á Suðumesj- um, Reykjanesbæ 4. sæti, Lúðvík Júlíusson sjómaður, Sandgerði 4. sæti og Hjörtur Magnús Guðbjarts- son framkvæmdastjóri og nemi, Reykjanesbæ 5. sæti. Kosningarétt hafa allir sem era á íbúaskrá í Suðurkjördæmi þann 1. mars og verða orðnir 18 ára þegar alþingiskosningar fara fram þann 25. apríl. Kosning fer fram á net- tengdum tölvum. Kjósa skal 5 frambjóðendur og raða þeim í sæti með númeram. Nánari upplýsingar era á www.samfylking.is ÞESSI mynd er tekín af klettunum í haust. Ásýnd Heimakletts breyttist í síðustu viku þegar stór klettur, sem staðið hefur við annan stein rétt neðan við toppinn vestanverðan, hrandi. Þetta gerðist einhvem tíma milli klukkan þrjú og hálf fjögur á fös- tudaginn. Að sögn Svavars Steingríms- sonar, sem ásamt Má Jónssyni og Ragnari Guðnasyni gengur reglu- lega á Heima- klett, var klett- RAGGI við klettinn sem hvarf. EINN og yfirgefinn.. urinn a sinum stað klukkan Drjú. „Þá var Már þama uppi og neitar að hafa átt nokkuð við klettinn. Það var svo um hálf fjögur að Einar Hallgríms hringdi í mig og tilkynnti að kletturinn væri farinn. Már neitar að hafa hreyft við honum en hann rann niður norðurhlíðina og í sjóinn. Skiidi hann eftir sig ljóta slóð,“ sagði Svavar. Kosningarnar: Guðrún vill 1. eða 2. sætið hjá Sam- fylkingu Guðrún Erlingsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. til 2. sæti í prófkjöri Samfylk- ingarinnar í Suðurkjördæmi 7. mars nk. Guðrún er 46 ára gömul, búsett í Vestmanneyjum og starfar sem sérfræðingur í kjaramálum. „í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu tel ég að 16 ára reynsla mín sem forystumaður í stéttarfélagi og kjarabaráttu, áratuga reynsla af félagsmálum og 8 ára seta í sveitarstjóm nýtist vel í þau krefjandi verkefni sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir. Ég vil svara kalli þjóðarinnar um nýtt fólk, ný vinnubrögð og nýja hugsun og býð fram krafta mína í Suðurkjördæmi til upp- byggingar á réttlátara samfé- lagi,“ segir Guðrún um þessa ákvörðun sína. Breyttur Heimaklettur

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.