Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Blaðsíða 14
14 Fréttir / Fimmtudagur 26. febrúar 2009 SYSTKININ Margrét Rut, Birgir Reimar, Jóhann Rafn og Kristján Róbert. ÞÆR Eru góðar beyglurnar í USA. Margrét Ruth, Birgir og Kristján. Fjölskyldan hans Birgis Reimars var ánægð með Vildarbarnaferðina til Flórída: Vorum Viðtal Guðbjörg Sigurgeirsdóttir gudbjorg @ eyjafrettir.is Birgir Reimar Rafnsson fór í draumaferðina ásamt móður sinni og systkinum til Flórída í boði Vildarbarna Icelandair í byrjun mánaðarins. Birgir Reimar er með Downs-heilkenni og var ferðin sannkallað ævintýri fyrir hann og fjölskylduna. Jóhanna Birgisdóttir, móðir Birgis, er í skýjunum yfir vel heppnuðu fríi en fjölskyldan fór út 2. febrúar og kom heim 15. febrúar. „Við erum öll ofboðslega ánægð og það gekk allt mjög vel upp. Við vorum á frábær- um stað rétt fyrir utan Orlando, allt svo hreint og bæði þægilegur og rólegur staður. íbúðin sem við fengum var á neðstu hæð og er örugglega ætluð Vildarbörnum því aðgengi er mjög gott og kemur líkamlega fötluðum börnum vel. Það var allt til taks í íbúðinni þannig að við gátum ekki haft það betra. Bíllinn sem við fengum var æðis- legur og ég keyrði um eins og her- foringi allan tímann og er mjög stolt af því,“ sagði Jóhanna, alsæl með allt í einu forgangshópur vel lukkaða ferð. „Við fórum miklu meira um en við ætluðum í byrjun og í bílnum var GPS tæki sem auðveldaði okkur að rata um og ef við villtumst þá var það allt í lagi, við stoppuðum bara og borðuðum nesti úti í guðs grænni náttúrunni. Veðrið var gott allan tímann og alveg steik seinni vikuna. Þá vorum við mikið við sundlaugina og höfðum það gott. Svo fórum við líka í Disneyland og í öll tækin sem voru í boði. Við fengum sérstaka passa af því að Birgir Reimar er fatl- aður og þurftum ekki að bíða í röð eftir að komast í tækin. Hann spáði ekkert í það, en systkinum hans fannst það algjört æði,“ segir Jó- hanna og hlær. „Við vorum bara allt í einu forgangshópur, alveg hálftíma bið í sum tækin en við fengum að fara framfyrir og það var auðvitað þægilegt. Við erum öll ofsalega ánægð með veruna úti en þetta var hörkuferðalag. Það tók smátíma að jafna sig á tímamismuninum og auðvitað alltaf gott að koma heim,“ sagði Jóhanna og sagðist afar þakklát Vildarbörnum og þeim sem stóðu að ferðinni fyrir þetta tækifæri enda ferðin ógleymanleg. FJÖLSKYLDAN í Disneyworld.. VINATTA. Kryddlegin lundahjörtu á borðum forseta og ráðherra Magnús Bragason hefur tekið þátt í verkefni sem snýr að því að nýta afurðir lundans betur s.s. hjörtu og lifur. Þetta er nýjung í matreiðslu en réttir úr þessum afurðum þykja nú herramanns- matur og voru m.a. bornir fram í hátíðarkvöldverði sem Klúbbur matreiðslumanna stóð fyrir í janúar. „Ég fór að hirða hjörtun og lifr- ina úr lundanum í fyrra og vildi sjá hvort ekki væri hægt að nýta þessa afurð en það hefur ekki verið gert áður. Við fórum í þetta verkefni með stuðningi Atvinnu- þróunarsjóðs Suðurlands og fcngum nokkra af helstu kokkum landsins til að þróa rétti úr þess- um afurðum. Éinn þeirra er Sigurður Gíslason, matreiðslu- meistari og hann bauð m.a. upp á kryddlegin lundahjörtu og hvalkjötsþynnur á hátíð- arkvöldverði sem Klúbbur matreiðslumanna stóð fyrir á veitingastaðnum Lava í Bláa lón- inu í janúar. Þar voru saman- komnir helstu fyrirmenn landsins s.s. forseti og ráðherrar. Þetta lukkaðist mjög vel og rétt- irnir þóttu framandi og mjög góðir, “ sagði Magnús og var í framhaldinu spurður hvernig honum datt í hug að fara að þróa rétti úr innmat úr lunda. „Rúrý, konan hans Palla frænda, kom einu sinni til mín og EYJAMAÐURINN Sigurður matreiðslumeistari að störfum. HVALKJÖTSÞYNNURNAR voru marineraðar í sölvasósu og blóð- bergi úr Aðaldalnum. Rétturinn var kaldur en lundahjörtun í tempura voru volg. Myndina tók Guðjón Þór Steinsson matreiðslumeistari skammaði mig fyrir að henda þessu og sagði að þetta væri gæðamatur. Hún hafði smakkað hjörtun og ég ákvað að slá til þegar veiðin dróst saman í lundanum. Við höfum ákveðið að nýta þetta hráefni áfram og við Einar Björn Arnason, mat- reiðslumeistari hjá Einsa kalda, höfum prófað okkur áfram enda er hægt að útbúa úr þessu fyrir- taks forrétti sem eru fullgildir í fínustu veislum. Okkur langar að halda áfram þessari þróun þ.e. nýta afurðir sem ekki hafa verið nýttar hingað til. Til dæmis má nýta súluna betur því það er nóg af henni, sagði Maggi sem er alltaf jafn hugmyndaríkur og fer ótroðnar slóðir í verðmæta- sköpun. Kryddlegin lundahjörtu og hvalkjötsþynnur: Lundalifrar terrine með létt- reyktum bringum, kryddlegin og stökk lundahjörtu frá Vestmannaeyjum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.